Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.01.2008, Side 4

Bæjarins besta - 10.01.2008, Side 4
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 20084 Örn Elías Guðmundsson: „Framúrskarandi tónlistarmaður sem vekur athygli á Vestfjörðum við hvert tækifæri – Frábær og jarðbund- inn gæi – Ber höfuð og herðar yfir aðra tónlistar- menn – Boðberi vestfirskr- ar menningar – Stofnsetti bestu tónlistarhátíð á Ís- landi „Aldrei fór ég suður“ – Topp tónlistarmaður og frábær manneskja – Ein besta kynning fyrir norð- anverða Vestfirði – Mað- urinn er snillingur – Flott- astur! – Drengurinn er ekk- ert nema ofur jákvæð ímynd fyrir Vestfirði – Frábær í alla staði – Snillingur! – Mikil lyftistöng fyrir Vestfirði – Listamaður af Guðs náð – Semur hreint út sagt frábær tónlist – Eykur hróður Vestfjarða með jákvæðni sinni og eykur stolt Vestfirðinga með stórkostlegri snilld sinni á tónlistar- sviðinu – Átti söluhæstu plötu ársins – Ljúfur töffari!“ Vilborg Arnardóttir: „Einbeitt og öflugt starf í þágu samborgara sinna – Ósérhlífin í vinnu að ferðamálum – Hefur lyft grettistaki í ferðaþjónustu í Súðavík – Hefur óbilandi kjark og dugnað í öllu sem snýr að velferðarmálum – Dugn- aðarforkurinn í Súðavík – Kom upp Raggagarði, sjá um bryggjudaga og Sum- arbyggðina í mörg ár – Hefur lyft grettistaki í ferðaþjónustu í Súðavík – Hefur lagt gjörva hönd á flest sem til framfara horfir í byggðarlaginu – Sann- kölluð athafnakona – Ótrúleg kona sem hefur áorkað meiru en hægt er að ímynda sér þrátt fyrir meira mót- læti en flestir fá á sig – Það þarf Boggu í hverja byggð – Hefur bakað 2,8 tonn af kleinum til að fjármagna leiktækjakaup í Raggagarði – Dugleg kona sem leggur sig fram við allt sem hún tekur sér fyrir hendur.“ Jón Bjarnason: „Lætur land sitt undir olíhreinsistöð í Arnarfirði – Harður stuðningsmaður olíuhreinsistöðvar – Lætur eigin hagsmuni ekki ganga fyrir hagsmunum sveitar- félagsins – Með framtíðar- sýn í lagi varðandi atvinnu- uppbyggingu – Hefur framtíðarsýn allra Vest- firðinga að leiðarljósi – Mikill framfaramaður – Hann á það skilið fyrir áræðni og óeigingirni – Maður að mínu skapi – Maður með kjark og þor – Býður land sitt til að bjarga Vestfirðingum – Mikill listamaður sem heiðarlega fram – Bjartsýnn og traustur – Góð refaskytta og frumkvöðull.“ Arna Sigríður Albertsdóttir: „Hún er hugrökk hetja – Kraftmikil og dugleg stelpa þar sem alltaf er stutt í brosið þrátt fyrir alvarlegt slys – Hefur sýnt mikla lífsbar- áttu og bjartsýni – Hefur með miklu æðruleysi tekist á við nýjar og breyttar að- stæður í lífi sínu – Dugleg stelpa sem lætur ekkert stoppa sig – Lætur alvar- legt skíðaslys og veikindi ekki stöðva sig – Algjör perla sem tekst á við lífið í hjólastól af einstakri yfir- vegun – Hefur óbilandi trú á eigin getu – Baráttan, eljan og krafturinn í stelpunni er ótrúlegur. Algjör hetja – Jákvæð baráttukona sem gefst ekki upp – Flott stelpa sem geysist um götur bæjarins á fjórhjólinu sínu eftir alvarlegt slys – Sýnir mikinn styrk í erfiðum að- stæðum – Veit ekki um neinn sem á þennan heiður meira skilið.“ Ummæli um fjóra efstu Eftirtaldir einstaklingar fengu atkvæði í valinu á Vestfirðingi ársins 2007: Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, Kristján Erlingsson, Kristinn H. Gunnarsson, Benedikt Sigurðsson, Harpa Oddbjörnsdóttir, Stefán Dan Óskarsson, Guðbjört Lóa Sæmundsdóttir, Skúli Berg, Guðmundur M. Kristjánsson, Sr. Magnús Erlingsson, Sigurgeir Steinar Þórarinsson, Guðrún Stella Gissurardóttir, Þorsteinn Másson, Magnús Hauks- son, Einar Örn Konráðsson, Lárus Mikael Knudsen Daníelsson, Páll Gunnar Loftsson, Matthías Vilhjálmsson, Jón Guðbjartsson, Elvar Logi Hannesson, Grímur Atlason, Matthildur Helgadóttir, Barði Önundarson, Hlynur Snorrason, Sigríður Magnúsdóttir, Hafþór Halldórsson, Elías Guðmundsson, Gunnar Kristinn Jóhannesson, Magnús Freyr Jónsson, Bjarni E. Brynjólfsson, Stefán B. Önundarson, Inga María Guð- mundsdóttir, Óðinn Gestsson, Soffía Vagnsdóttir, Reimar Vilmundarson, Áskell Benediktsson, Anna Maggý Gunnarsdóttir, Guðmundur Halldór Björnsson, Hermann Hermannsson, Örn Elías Guðmundsson (Mugison), Halldór Sveinbjörnsson, Jón Páll Halldórsson, Lilja Rafn- ey Magnúsdóttir, Barði Ingibjartsson, Halldór Smárason, Sigurður Ólafsson, Jón Jónsson, Vilborg Arnardóttir, Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, Ragnar Ágúst Einarsson, Úlfur Þór Úlfarsson, Jón Friðrik Jóhannsson, Sandra Dögg Guðmundsdóttir, Úlfar Ágústsson, Sigurður Jón Hreinsson, Kolbrún Sverrisdóttir, Þorsteinn J. Tómasson, Magnús Ólafs Hansson, Hjalti Proppé, Guðmundur Jónsson, Sunneva Sigurðardóttir, Sigrún Elísabet Halldórsdóttir, Anna Guðrún Edvarsdóttir, Jón Bjarnason, Einar Hreinsson, Guðfinnur Hafliði Einarsson, Þorlákur Ragnarsson, Einar K. Guðfinnsson, Þorbjörn Steingrímsson, Ólína Þorvarðardóttir, Guðmundur Óli Lyngmó, Konráð Eggertsson, Eiríkur Bjarkar Ragnarsson, Haraldur Kristinn Leifsson, Halldór Gunnar Pálsson, Jónas Guðmundsson, Þorsteinn Bragason, Arna Sigríður Al- bertsdóttir, Ásthildur Cesil Þórðardóttir, Jón Þórðarson, Örn Torfason, Jón E. Alfreðsson, Þröstur Ólafsson, Sigmundur Þórðarson, ÓB hópurinn, Vestfirska fólkið, Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, Þórir Traustason, Kristinn Þröstur Jónsson, Samúel Samúelsson, Sigurður Atlason, Ólafur Sveinn Jóhannesson, Erlingur Tryggvason, Steinn Ólafsson, Huldumaðurinn á Patreksfirði, Ingólfur Eggertsson, Eydís Hulda Jóhannesdóttir, Jónas Skúlason, Hallgrímur Sveinsson, Katrín Steinarsdóttir, Ólafur B. Halldórsson, Karólína Guðrún Jónsdóttir, Einar Oddur Kristjánsson, Bjarni Jóhannsson, Guðmundur Halldórsson, Halldór Halldórsson, Jóna Benediktsdóttir, Þórður Vagnsson, Kristján Bjarni Valdimarsson, Guðmundur Fylkisson, Svava Ingþórsdóttir, Steini og Óli sjúkraþjálfarar og Skellur, blakdeild öldunga. Vestfirðingur ársins 2007 samkvæmt vali lesenda frétta- vefjarins bb.is er Arna Sigríð- ur Albertsdóttir, 17 ára nemi við Menntaskólann á Ísafirði, sem slasaðist alvarlega í skíða- slysi í Geilo í Noregi 30. des- ember 2006. Hún fékk nær 25% greiddra atkvæða. Arna Sigríður, sem lamaðist fyrir neðan mitti, hefur sýnt mikla þrautseigju, jákvæðni og styrk þrátt fyrir að vera bundin við hjólastól. „Hún er góð fyrir- mynd og kemur fólki í skilning um að lífið hefur upp á svo margt að bjóða og hvað maður má vera þakklátur fyrir það sem maður hefur, eins og einn lesandi vefjarins orðaði það. Arna Sigríður er þriðja konan sem kjörinn er Vestfirðingur ársins af lesendum bb.is. Vest- firðingur ársins 2006 var Sunn- eva Sigurðardóttir, sem opin- beraði fyrir alþjóð kynferðis- lega misnotkun sem hún varð fyrir í æsku og stofnaði í fram- haldi af því sjálfshjálparhóp í samstarfi við Stígamót, til handa þeim sem lent hafa í svipuðum raunum. Vestfirð- ingur ársins 2005 var Sigríður Guðjónsdóttir, íþróttakennari á Ísafirði, sem átti því láni að fagna að bjarga ungum dreng frá drukknun. Áður höfðu fengið nafn- bótina þeir Örn Elías Guð- mundsson (Mugison) árið 2004, Magnús Guðmundsson á Flat- eyri árið 2003, Hlynur Snorra- son á Ísafirði árið 2002 og Guðmundur Halldórsson í Bolungarvík árið 2001. Í öðru sæti í vali á Vest- firðingi ársins 2007 varð Jón Bjarnason, bóndi að Hvestu í Arnarfirði, í þriðja sæti Vil- borg Arnardóttir, stofnandi Raggagarðs í Súðavík, í fjórða sæti varð Örn Elías Guð- mundsson (Mugison) tónlist- armaður í Súðavík og í fimmta sæti varð Reimar Vilmundar- son skipstjóri í Bolungarvík. Í næstu sætum komu Matthild- ur Helgadóttir, framkvæmda- stjóri á Ísafirði og stofnandi Óbeislaðrar fegurðar, Grímur Atlason bæjarstjóri í Bolung- arvík, Elvar Logi Hannesson, leikari á Ísafirði, Jón Guð- bjartsson útgerðarmaður á Ísa- firði og Matthías Vilhjálms- son, knattspyrnumaður frá Ísafirði. Alls fengu 114 einstakling- ar atkvæði í kosningunni en á sjöunda hundrað manns tóku þátt í kjörinu sem er rúmlega tvöföldun frá því í fyrra. Þeir einstaklingar sem voru í fyrstu fimm sætunum fengu 60% greiddra atkvæða. Næstu fimm fengu 10% greiddra atkvæða og aðrir minna. Arna Sigríður tók við viðurkenningu í tilefni útnefn- ingarinnar á laugardag sem og eignar og farandgrip sem smíðaður er af Ísfirðingnum Dýrfinnu Torfadóttur, gull- smið. Aðstandendur valsins á Vest- firðingi ársins 2007, Gullauga á Ísafirði, hugbúnaðarfyrir- tækið Eskill hf., í Reykjavík og fréttavefurinn bb.is þakka lesendum þátttökuna og óska þeim velfarnaðar á árinu 2008. – bb@bb.is Arna Sigríður kjörinn Vestfirðingur ársins 2007 Arna Sigríður Albertsdóttir, Vestfirðingur ársins 2007 að mati lesenda bb.is.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.