Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.01.2008, Qupperneq 6

Bæjarins besta - 10.01.2008, Qupperneq 6
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 20086 Vestfirðingur ársins 2007 Ritstjórnargrein Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is · Sigríður Gísladóttir, símar 456 4694 og 697 8797, sigridur@bb.is og Smári Karlsson, sími 866 7604, smari@bb.is. Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 300 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. · Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X Síðan Hitaveitan kom í notkun hefur aldrei komið eins mikið kuldakast hér í Reykjavík eins og nú um áramótin. Frostið var oft um 8-10 stig og allt upp í 13 stig. Og með því oft allmikið hvassviðri. Ásóknin til heita vatnsins hefur því af eðlilegum ástæðum aldrei verið eins mikill, eins og þessa dagana. Og vatnið ekki hrokkið til, sem er eðlilegt er, þareð Hitaveitunni hefur ekki verið ætlað að full hita íbúðarhúsin upp í 20 gráða herbergjahita nema í 5 gráða frosti eða svo. Væri henni ætlað að fullnægja hitunarþörfinni í meiri kulda þá næði hún ekki til líkt því eins margra húsa og hún gerir nú. Þegar Hitaveitan frá Reykjum var komin í fulla notkun vorið 1944 og til bæjarins komu um eða yfir 200 sekúndu lítrar af hitavatninu. Jafngilti þessi hitagjafi 30 þúsund kola tonnum á ári. Síðan hefur Reykjavatnið aukist með því að haldið hefur áfram borunum og afköst borholanna aukin með dælingu. Hitaveitan jafngildir 45 þúsund kolatunnum Á þessum degi fyrir 59 árum Dag skal að kveldi lofa. Hvað morgundagurinn ber í skauti sínu fáum við í mörgum tilfellum ekki ráðið við. Þegar laugardagurinn 30. desember 2006 rann upp áttu ísfirsku ungmennin sem voru við skíðaiðkun í Geilo í Noregi ekki von á öðru en að dagurinn yrði þeim jafn ánægjulegur og fyrri dagar þar um slóðir höfðu verið þeim. Sú varð ekki raunin á. Áður en dagur var runnin var hann orðinn örlagadagur í lífi Örnu Sigríðar Albertsdóttur, 16 ára efnilegrar ísfirskrar skíðakonu. Á snöggu augabragði dró ský fyrir sólu. Slys gera ekki boð á undan sér. Þeim sem hafa fylgst með Örnu Sigríði eftir þennan ör- lagaríka dag kemur ekki á óvart að lesendur Bæjarins besta og bb.is. skuli nú, ári síðar, velja hana Vestfirðing ársins 2007. Staðfesta hennar og dugnaður og hvernig hún ,,hefur þrátt fyrir ungan aldur tekist á við erfiðleikana með jákvæðni og bros á vör, sem ekki margir gætu leikið eftir,“ eins og segir í viðtali sem blaðamaður BB átti við hana af tilefninu. Aðspurð hvort hún hafi gert sér grein fyrir hversu mikil áhrif barátta hennar hafi haft á aðra, svarar hún: ,,Nei, ég get ekki sagt það. Mér finnst ég ekkert vera svo dugleg, finnst ég bara vera að gera það sem allir myndu gera í minni stöðu. Ég spái allavega ekki mikið í því hvort ég sé duglega eða ekki. Bara geri það sem þarf að gera en auð- vitað tekur maður eftir því að maður vekur athygli.“ Tvennt er öðru dýrmætara fólki sem stendur frammi fyrir þeim vanda að þurfa að hefja lífið á nýjn leik, ef svo má að orði komast. Annars vegar vonin og hins vegar kjarkurinn, sem sér til þess vonarneistinn slokkni ekki. Sé þetta til staðar ásamt stuðningi ættingja og vina og samfé- lagsins aukast líkurnar á því að sjáist til sólar á ný. Arna Sigríður er yngst þeirra sem hlotið hafa nafnbótina Vestfirðingur ársins og sjöunda í röðinni. Hún stundar nú nám við Menntaskólann á Ísafirði, staðráðin í að vinna upp þann tíma sem hún missti úr námi vegna slyssins. ,,Ætli það sé ekki það helsta sem er framundan hjá mér núna,“ segir þessi unga baráttukona, staðráðin í að láta ekkert aftra sér frá því að lifa lífinu og hefur því til sönnunar sést á fjórhjóli í bænum, en það hyggst hún nota til að komast leiðar sinnar við sumarbústað fjölskyldunnar í Leirufirði. ,,Mér finnst æðislegt að komast út, geta farið hvert sem ég vil og fengið vindinn í andlitið, það er æðisleg tilfinning.“ Bæjarins besta sendir Örnu Sigríði bestu kveðjur og óskar henni til hamingju með titilinn Vestfirðingur ársins 2007. Hún er svo sannarlega vel að honum komin; fyrirmynd sem margur getur lært mikið af. s.h. Guðbjörg leikmaður ársins hjá KFÍ KFÍ hefur valið Guðbjörgu Einarsdóttir sem leikmann ársins 2007. Hún er, eins og áður hefur komið fram, fulltrúi KFÍ í vali á íþróttamanni Ísafjarðarbæjar 2007. Guðbjörg er 19 ára gömul og hóf að æfa körfuknattleik 12 ára. Fjórtán ára var hún búin að vinna sér byrjunarliðssæti í meistaraflokki kvenna hjá KFÍ. Hún lék svo með kvennaliði KFÍ á meðan að hægt var að tefla fram kvennaliði, en því var hætt vegna skorts á leikmönnum 2006. Þegar meistaraflokkur kvenna hjá KFÍ var lagður niður hélt Guðbjörg til Camden í Arkansas í Bandaríkjunum sem skiptinemi og þar lék hún með Lady Bulldogs í Hampton high skólanum og stóð sig frábærlega, segir á heimasíðu Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar, kfi.is. Einn vill úrskurðarvald Aðeins ein umsókn barst Sýslumanninum á Ísafirði um nýja stöðu sem verið er að setja á laggirnar hjá embættinu sem felst í því að taka við sérverkefni á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins Verkefnið kallast úrskurðarvald í útlendingamálum. Er umsóknin nú til meðferðar hjá ráðuneytinu. Auglýst var staða lögfræðings við sýslumannsembættið á Ísafirði, vegna þessa. Á hann að hefja störf sem fyrst en umsóknarfrestur rann út 31. desember. Fyrsti Íslendingurinn til að koma í heiminn á árinu 2008 fæddist í Björgvin 38 mínút- um eftir miðnætti á nýársnótt að íslenskum tíma, eða klukk- an 1.38 að staðartíma. Barnið reyndist stúlka og er hún af bolvísku bergi brotin. Hún hefur hlotið nafnið Ída María og eru foreldrar hennar Valde- mar Sæberg Valdemarsson og Steinunn Adolfsdóttir en þau hafa átt heima í Björgvin undanfarin fimm ár. Valdemar er sonur Valdemars Guð- mundssonar sem betur er þekktur undir nafninu Valli lögga en Steinunn er dóttir Adolfs Adolfssonar sem var sýslumaður þeirra Bolvíkinga um tíma. Frá þessu er greint á fréttavef Bolvíkinga, vikari.is. Á vef norska dagblaðsins Bergens Tidende kemur fram að Ída María hafi verið að flýta sér í heiminn því hún kom tveimur vikum fyrir tímann og varð fyrsta barn ársins í Bergen og nágrenni, Vesturlandinu, og fyrsta ís- lenska barn ársins því hún fæddist á undan fyrsta barninu sem fæddist á Íslandi, en það kom í heiminn rúmum 20 mín- útum seinna í Reykjavík. – sigridur@bb.is Fyrsta íslenska barnið 2008 var Bolvíkingur Hiti í júní á síðasta ári var meiri en þremur stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 á Vestfjörðum. Mánuð- urinn er annar eða þriðji hlýjasti júnímánuður frá upp- hafi mælinga frá aldamótun- um 1900. Að því er fram kemur í ársyfirliti Veðurstof- unnar er heldur óhægt um samanburð vegna sífelldra flutninga veðurstöðva. Mjög þurrt var á landinu, fádæma þurrt norðaustanlands og hefur aldrei mælst jafnlítil úrkoma á Akureyri og í júní í fyrra, en þar mældist mánaðar úrkoman aðeins 0,4 mm. Árið var mjög hlýtt, það tíunda hlýjasta frá upphafi mælinga á velflestum stöðvum um sunnan- og vestanvert landið en það 14. til 15. hlýjasta norð- austanlands. Í Reykjavík var hitinn 1,2 stigum ofan meðal- lags, lítillega hærra en árið 2006 og aðeins kaldara en 2004, en meir en hálfu stigi kaldara en metárið 2003. Samgöngutruflanir á heið- arvegum voru með tíðara móti á árinu sökum illviðra, en snjór var með minna móti í lágsveitum miðað við árstíma. Þrálát snjóflóðahætta var norðan til á Vestfjörðum þó að snjór væri ekki mikill að magni til. Júlí var mjög hlýr um landið sunnan- og vestanvert, hiti var í ríflegu meðallagi víðast fyrir norðan, en við austur- og suð- austurströndina var hitinn nærri meðallagi. Óvenjuþurrt var um mikinn hluta landsins mestallan mánuðinn, jafnvel svo að gróðri hrakaði og vatns- ból þornuðu. Mestir voru þurrk- arnir inn til landsins á Vestur- landi, víðast hvar á vestan- verðu Norðurlandi austur til Eyjafjarðar og sums staðar á Vestfjörðum. Einnig var óvenju- þurrt í Hornafirði og sums staðar sunnan til á Austfjörð- um þar til allra síðustu daga mánaðarins. Mest var úrkom- an að tiltölu norðan til á Aust- fjörðum en náði þó ekki með- alúrkomu að magni til. Einn hlýjasti júnímánuð- ur frá aldamótunum 1900 Júní síðast liðinn var annar eða þriðji hlýjasti júnímánuður frá aldamótunum 1900. Mynd úr myndasafni.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.