Bæjarins besta - 10.01.2008, Qupperneq 8
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 20088
Mikilvægara að vera jákvæð en oft áður
Ísfirðingurinn Arna Sigríð-
ur Albertsdóttir er Vestfirð-
ingur ársins 2007 að mati les-
enda Bæjarins besta en já-
kvæðni hennar og þrautseigja
eftir að hún lamaðist eftir
skíðaslys í Geilo í Noregi þann
30. desember 2006 hefur verið
mörgum innblástur. Slysið
hafði þær afleiðingar að hún
hlaut innvortis blæðingar og
hryggáverka. Síðan þá hefur
hún verið í endurhæfingu og
þurft að læra margt nýtt er
kemur að daglegu lífi enda
hefur margt breyst hjá þessari
17 ára gömlu stúlku. Hún er
við nám við Menntaskólann á
Ísafirði og staðráðin að bæta
upp þann tíma sem hún missti
í kjölfar slyssins. Sjálfri finnst
henni lítið um dugnað sinn og
segir að hún telji sig aðeins
vera að gera það sem allir
myndu gera í hennar stöðu.
Lesendur Bæjarins besta eru
ekki sammála þar sem Arna
Sigríður hefur þrátt fyrir
ungan aldur tekist á við
erfiðleikana með jákvæðni og
bros á vör, sem ekki margir
gætu leikið eftir. Bæjarins
besta tók Vestfirðing ársins á
spjall en þess má geta að hún
er sú yngsta sem hlotið hefur
þessa nafnbót.
– Til hamingju með heiður-
inn að hafa verið valin Vest-
firðingur ársins. Kom það þér
á óvart?
„Já þetta kom mér mjög
mikið á óvart. Ég hafði heyrt
af því að einhverjir hefðu kos-
ið mig en ég bjóst samt ekki
við þessu. Mér finnst þetta
alveg frábært.“
– Lesendur Bæjarins besta
völdu þig þar sem þú hefur
sýnt ótrúlegan styrk og dugn-
að eftir slysið sem þú lentir í
fyrir rúmu ári síðan. Hafðirðu
gert þér grein fyrir hversu mik-
il áhrif barátta þín hefur á aðra?
„Nei ég get ekki sagt það.
Mér finnst ég ekkert vera svo
dugleg, finnst ég bara vera að
gera það sem allir myndu gera
í minni stöðu. Ég spái allavega
ekki mikið í því hvort ég sé
dugleg eða ekki. Bara geri það
sem þarf að gera en auðvitað
tekur maður eftir því að maður
vekur athygli.“
– Nú hafa margir fylgst með
blogginu þínu og dáðst að já-
kvæðni þinni við erfiðar að-
stæður. Hefurðu lagt þig fram
um að vera jákvæð eða ertu
það að eðlisfari?
„Bæði og myndi ég segja.
Ég reyni jú að vera jákvæð
sem er mikilvægara nú en oft
áður.“
– Hvernig hefur ferlið verið
hjá þér frá slysinu?
„Ég fer á hverjum degi upp
á sjúkrahús í sjúkraþjálfun en
ég fer ekki meira á Grensás
þar sem ég var lengi í endur-
hæfingu eftir slysið. Ég var
þar frá því að ég fór af sjúkra-
húsinu og þar til í ágúst. Þegar
ég lít til baka þá var mjög góð-
ur andi á Grensási og starfs-
fólkið mjög fínt. En þegar ég
var þar fannst mér það mjög
leiðinlegt enda hugsaði maður
þá mjög mikið um slysið og
afleiðingar þess og þær að-
stæður sem ég var komin í.“
– Voru einhverjir á svipuð-
um aldri og þú á Grensási svo
að þú hafðir félagsskap?
„Nei ég var oftast yngst.
Fólk kom og fór en oftast nær
var ég langyngst af þeim sem
þarna voru. En vinir mínir og
fjölskylda voru dugleg heim-
sækja mig.“
– Fékkstu einhvern sálræn-
an stuðning á Grensási?
„Já það var sálfræðingur
þarna sem hjálpaði mér mjög
mikið. Andlegi þátturinn við
að lenda í svona slysi er alveg
jafn stór partur og sá líkam-
legi. Það þarf því líka að huga
að því.“
Jákvæð með
stuðningi vina og
vandamanna
– Hvernig líður þér í dag?
„Ágætlega. Dagarnir eru
misjafnir en ég reyni að vera
jákvæð.“
– Og hvar færðu styrk til
þess að vera jákvæð?
„Hjá vinum mínum og fjöl-
skyldu. Ég fæ mjög mikinn
stuðning frá þeim og ég á góða
að.“
– Hvernig hafa viðtökurnar
verið eftir að þú komst heim á
Ísafjörð?
„Þær voru mjög góðar. Allir
voru að heilsa manni og hrósa.
Allir þekkja alla á Ísafirði og
allir virtust vita hver ég var
þegar ég kom aftur.“
– Hvað tekur nú við hjá
þér?
„Ég er á öðru ári í Mennta-
skólanum á Ísafirði en ég tók
mér frí fyrstu önnina eftir slys-
ið og er því örlítið eftir á, en
ég ætla mér að bæta það upp.
Skólinn er aðalatriðið hjá mér
núna en ég er að byrja á
vorönn. Ætli það sé ekki það
helsta sem er framundan hjá
mér núna.“
– Það hefur sést til þín á
tryllitæki, eða sem sagt fjór-
hjóli í bænum. Hvenær fékk-
stu þér það?
„ Ég keypti það áður en ég
kom endanlega heim í haust,
en við fjölskyldan eigum sum-
arbústað í Leirufirði þar sem
erfitt er að komast um, fjór-
hjólið er aðallega ætlað til að
komast þar um. En ég hef
verið að prófa það hérna í bæn-
um og mér finnst æðislegt að
komast út, geta farið hvert sem
ég vil og fengið vindinn í and-
litið, það er æðisleg frelsistil-
finning. Hjólið er knúið áfram
af bensíni og bensíngjöfin og
bremsan eru í stýrinu.“
Tekur tíma
að átta sig
– Þegar þú lentir í slysinu,
gerðirðu þér strax grein fyrir
hversu alvarlegt það væri?
„Nei, alls ekki, en ég áttaði
mig á því að það væri eitthvað
alvarlegt að. En ég er varla
búin að átta mig á þessu ennþá
þótt það sé ár liðið. Þetta tekur
tíma.“
– Manstu eftir slysinu?
„Ég man ekki eftir slysinu
sjálfu en man eftir aðeins fyrir
slysið og þegar ég lá í brekk-
unni og þyrlan var að sækja
mig. Ég held að ég hafi fengið
heilahristing og muni þess
vegna ekki eftir því og mér
finnst það bara alveg ágætt.
Held að það sé bara betra
þannig.
Ég var flutt á sjúkrahús í
Noregi þar sem ég var í fimm
daga. Pabbi kom út að hitta
mig en ég hitti mömmu og
bróður minn þegar ég kom til
Reykjavíkur.“
– Var ekki erfitt að vera í
ókunnu landi við þessar að-
stæður?
„Jú að mörgu leiti en ég er
fegin að hafa verið í Noregi
sem er nálægt Íslandi er kemur
að menningu og siðum. Allir
töluðu ensku svo maður skildi
hvað fólk var að segja og það
hefði verið mun verra að vera
einhvers staðar lengra í burtu
þar sem maður gæti ekki einu
sinni talað við fólkið. Það var
líka gott að því leiti að ég fór
í tvær aðgerðir úti og þeir
læknar sem ég hef hitt síðan
þá segja að þetta hafi verið
mjög vel gert.“
– Hefurðu þurft að fara í
fleiri aðgerðir síðan þá?
„Nei, ég fór í aðgerð strax
og ég kom á sjúkrahúsið eftir
slysið þar sem stöðvuð var
innvortis blæðing og daginn
eftir var spengt á mér bakið,
það þýðir að skrúfum og
plötum er komið fyrir í hrygg-
num til þess að rétta hann af
og skorða hryggjaliðina sem
brotnuðu.“
– Er það versta yfirstaðið
eða er mikið eftir?
„Ég er búin að læra helling
en á eftir að læra mikið um
hjólastjórafærni og hæfni dag-
legs lífs. Það er samt heilmikið
eftir“, segir hin 17 ára gamla
Arna Sigríður.
– Eitthvað að lokum?
„Ég vil koma þökkum til
allra sem kusu mig og fyrir
stuðninginn sem ég hef fengið
síðastliðið ár“, segir Vestfirð-
ingur ársins með bros á vör.