Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.01.2008, Side 14

Bæjarins besta - 10.01.2008, Side 14
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 200814 Biskupinn fer fyrir göngunni. Álfadrottningin og álfakóngurinn voru ánægð með dansinn. Þar rauður loginn brann Það var hátíðlegur blær við Gamla sjúkrahúsið á Eyrartúni að kvöldi þrettándadags þegar árleg þrett- ándagleði Kvenfélagsins Hlífar á Ísafirði var haldin. Á síðari árum hefur skapast hefð fyrir því að Ísfirðingar og Bolvíkingar skiptist á að halda þrettándabrennur þó svo að komið hafi fyrir að fagnaðurinn hafi fallið niður vegna veðurs. Veðrið lék hinsvegar við viðstadda að þessu sinni sem nutu þess að sjá konungborna úr álf- heimum með hirð sinni, í þetta eina skipti á árinu sem okkur dauðlegum er það mögulegt. Lúðrasveit Tónlistarskólans gaf tóninn í upphafi dagskrárinnar og spilaði nýárslög og nokkur jólalög, til að minna á að jólin voru kvödd. Álfadrottning og álfa- kóngur gengu þá í skrúðgöngu frá skátaheimilinu að Gamla sjúkrahúsinu og á eftir þeim fylgdu álfameyjar og álfasveinar, blómálfar, ljósálfar, dökkálfar og bændur og búalið. Álfaþjóðin steig dans um bálið og félagar úr Harmónikkufélagi Ísafjarðar og Sunnukórnum spiluðu og sungu lög eins og Máninn hátt á himni skín og Nú er kátt hjá álfum öllum. Þegar konungshjónin höfðu fengið sér sæt í hásætum sýndu nokkrar hulduverur dansatriði sem kallaðist Rauður loginn brann við mikinn fögnuð viðstaddra. Grýla mætti að lokum með syni sína tvo Hurðaskelli og Stúf og hafði Leppalúða í afturdragi. Þau sögðu börnunum frá jólunum og virtust jólasveinarnir ekki átta sig á hvað tímanum leið, því þeir eiga vissulega að vera komnir til fjalla á þessum degi. Engir púkar úr hyski Grýlu voru til að hrella börnin, enda voru þau öll stillt og prúð. Konungs- hjónin stigu lokadansinn og svo gekk hersingingin fylktu liði með álfabiskupinn í fararbroddi að Hlíf og þaðan nið- ur að Neista þar sem sjá mátti flugeldasýningu frá höfninni. Kvenfélagið Hlíf nýtur aðstoðar margra við dagskrár- gerð þrettándagleðinnar. Þar ber helst að telja Skátafélagið, Björgunarfélagið, Ísafjarðarbæ, Harmonikkufélagið, Lúðrasveit Tónslitarskólans, Kómedíuleikhúsið og félaga úr Litla Leikklúbbnum, en það eru um 100 manns sem taka þátt í Þrettándagleðinni með einhverjum hætti. Hátíðinni lauk með veglegri flugelda- sýningu frá Björgunarfélaginu.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.