Bæjarins besta - 04.12.2008, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 20086
Oft var þörf –
nú er nauðsyn
Ritstjórnargrein
Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564
Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693
og 849 8699, thelma@bb.is · Birgir Olgeirsson, símar 456 4560 og 867 7802, birgir@bb.is
· Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125,
halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 400
eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. ·
Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X
Húsið – Ljósbrot frá Ísafirði
Út er komin hjá Vestfirska forlaginu bókin Húsið – Ljósbrot frá Ísafirði eftir Hörpu Jónsdóttir. Harpa bjó
lengi á Vestfjörðum, lengst á Ísafirði þar sem hún var grunnskólakennari. Þetta er önnur bók Hörpu, hún
fékk Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2002 fyrir „Ferðina til Samiraka“ og sama ár var hún valin bæjar-
listamaður Ísafjarðarbæjar. Harpa er einnig þekkt hannyrðakona. Sagan af húsinu segir fyrst og fremst frá
fólkinu í kring um það, bænum og nánasta umhverfi. Höfundur bregður upp hlýlegum en jafnframt skarp-
skyggnum myndum af bæjarbrag og samfélagi á Ísafirði, séð með augum þess sem tilheyrir því – en þó
ekki. Fjöldi ljósmynda setur svip á verkið, en þær eru bæði eftir Hörpu og aðra vestfirska ljósmyndara.
Vestri valið efnilegasta liðið
Sundfélagið Vestri á Ísafirði hlaut Hvatningarbikar Sundsambands
Íslands í ár en hann er veittur því félagi sem mest hefur komið á
óvart á liðnu sundári. Hvatningarbikar SSÍ árið 2008 er veittur
Sundfélaginu Vestra á Ísafirði. „Mikil fjölgun hefur orðið á iðk-
endum hjá Vestra og stærð hópsins og árangur á sundmótum
hefur vakið mikla athygli, sérstaklega þegar tekið er með í reikn-
inginn stærð sveitarfélagsins og aðstæður til sundiðkunar.“
Rekstrarniðurstaða sam-
stæðureiknings Súðavíkur-
hrepps er neikvæð um 648.
000 kr. samkvæmt fjárhags-
áætlun Súðavíkurhrepps og
stofnana hans fyrir árið 2009
sem lögð var fram til fyrri
umræðu á sveitarstjórnarfundi
í síðustu viku. Með áorðnum
breytingum á fjárhagsáætlun
fyrir árið 2009 eru tekjur
samstæðureiknings Súðavík-
urhrepps, (A og B hluta), áætl-
aðar 169.627.000 kr. og út-
gjöld áætluð 170.275.000 kr.
Súðavíkurhreppur hefur
samþykkt fjárhagsáætlun sveit-
arfélagsins og stofnana hans
fyrir árið 2008 Niðurstaða
reksturs án fjármagnsliða og
afskrifta er því neikvæð um
648.000 kr. Fjármunatekjur
umfram fjármagnsgjöld eru
áætlaðar neikvæðar um 45
þúsund og afskriftir áætlaðar
9.476.000 kr.
Ekki verður tekin ákvörðun
um framkvæmdir á árinu 2009
fyrr en það liggur fyrir hver
framlög verða frá Jöfnunar-
og húsafriðunarsjóði.
Sveitarstjórn samþykkti
fjárhagsáætlunina samhljóða
og vísaði henni til seinni um-
ræðu.
– thelma@bb.is
Neikvæð rekstrarniðurstaða
Háskólasetur Vestfjarða
hefur í haust tekið á móti um-
sóknum í frumgreinanám á
vorönn 2009. Umsóknarfrest-
ur rennur út 10. desember og
segir Martha Lilja Marthens-
dóttir Olsen kennslustjóri, fáar
nýskráningar hafa borið í
haust. Hún segir að í ljósi
harðnandi áferðis í þjóðfélag-
inu hafi verið ákveðið að gefa
fólki tækifæri á að hefja nám
við fyrstu önn frumgreina-
námsins eftir áramót.
Á Ísafirði stunda 20 manns
frumgreinanám við Háskóla-
setrið en það sinnir einnig fjar-
kennslu fyrir frumgreinanám
við Háskóla Reykjavíkur en
30 manns stunda fjarnám frá
Reykjavík. Fyrsta önnin verð-
ur engu að síður kennd eftir
áramót þótt þátttaka verði
dræm, að sögn Mörthu. „Fjar-
námið fyrir sunnan heldur
fyrstu önninni gangandi og
svo erum við með nokkra
nemendur sem halda áfram
námi á annarri önn frum-
greinanámsins eftir áramót,“
segir Martha.
– birgir@bb.is
Fáar skráningar í frumgreinanám
„Það hefur aldrei verið spurt
eins mikið um kennarastöður
við skólann eins og núna og
ég hef aldrei orðið vitni að
jafn miklum áhuga fyrir starf-
inu. Það hefur hins vegar ekki
verið mikið spurt um þá
kennarastöðu sem okkur vant-
ar þ.e. ensku kennara. Ef ég
fæ ensku kennara til starfa við
skólann, erum við í mjög góð-
um málum,“ segir Jón Reynir
Sigurvinsson, skólameistari
Menntaskólans á Ísafirði,
aðspurður hvort hann hafi orð-
ið var við aukna ásókn í nám
við skólann undanfarin miss-
eri sem og í stöður kennara.
Jón Reynir segir of snemmt
að segja til um hvort ásókn í
nám við skólann hafi aukist
því nemendur sæki iðulega
ekki um nám við skólann fyrr
en í desember. „Ef það verða
auknar fyrirspurnir þá berast
þær oftast til okkar í desem-
ber,“ segir Jón Reynir.
Menntaskólinn er sagður
geta tekið á móti 350 nemend-
um í fullt nám en ekki hefur
enn komið til þess að vísa
þurfi nemendum frá skólanum
vegna fjölda. „Á haustin höf-
uð við sett þak á þá upphafs-
áfanga sem eru fjölmennastir.
Að því leiti má segja að við
séum að setja mörk á fjölda
nemenda, en með tilkomu
upplýsingatækniþjónustu skól-
ans getum við verið með mun
fleiri nemendur en 350, því
þá erum við ekki eins bundin
við kennslustofur. Staða okkar
í skólanum er góð en það vant-
ar fleira fólk á svæðið,“ segir
Jón Reynir Sigurvinsson, skóla-
meistari MÍ.
– birgir@bb.is
Mikil eftirspurn eftir
kennarastöðum við MÍ
Menntaskólinn á Ísafirði.
Kakó og lummur með
sannfæringakrafti
Á þessum degi fyrir 22 árum
Það var mikið um að vera á Silfurtorgi og þar í kring á laug-
ardaginn. Hin árvissa torgsala til styrktar húsbyggingu Tón-
listarskólans dró til sín fjölda fólks. Harmónikufélagið nýja lét
til sín heyra. Félagið úr Lúðrasveit Tónlistarskólans léku og
Jónas Tómasson stjórnaði kórsöng. Á langborðum fengust
ýmsar veitingar og hlýjum drykkjum var ausið upp úr stórum
ílátum í frostinu. Inni á Hótel Ísafirði spilaði jólasveinn á
píanó. Hestar áttu leið um torgið og verslanir voru opnar. Á
laugardaginn var eins og maður skynjaði loksins að jólin eru í
nánd. Nýlega hefur verið rutt í burtu öllum vafa um þátttöku
Ísafjarðarkaupstaðar í byggingu hins nýja húss Tónlistarskóla
Ísafjarðar á Torfnesi. Nú er orðið ljóst að hægt verður að halda
áfram með sannfæringarkrafti hinu ötula starfi áhugafólks um
þetta mál, þegar fullvissa er fengin um stuðning bæjarins. Nú
er ljóst að starfið á umliðnum árum hefur ekki verið til einskis.
Nú þarf ekki að hætta við bygginguna. Nú er hægt að halda áfram
að selja kakó og lummur með sannfæringakrafti á torginu.
,,Nú þegar efnahagskerfi Íslands er hrunið og stjórnvöld
vinna hörðum höndum við að koma því í starfshæft ástand að
nýju, væri gott að heyra hugmyndir frá vestfirskum ráðamönn-
um um hvernig þeir hyggjast beita sér til að koma í veg fyrir
hrun þeirra fyrirtækja sem eftir eru starfandi í fjórðungnum,“
sagði atvinnurekandi á Ísafirði í viðtali við BB um miðjan
október. Og hann bætti við: ,,Almenningur og fyrirtæki, sem
búið hafa við neikvæðan hagvöxt um árabil á Vestfjörðum á
meðan góðærið vall um allt höfuðborgarsvæðið, hafa þurft að
þreyja þorrann. Nú berast þau tíðindi frá stjórnvöldum að allir
landsmenn þurfi að axla byrðarnar, m. a. af óstjórnlegri ofneyslu
– nú séu allir á sama hripleka bátnum.“ Sem við er að búast
bregður þeim meira við þegar byrinn þrýtur, sem lítt eru barn-
ingnum vanir. Af þessu tilefni lagði Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og formaður Sambands ísl. sveitar-
félaga, orð í belg: ,,Við reyndum að njóta þeirra tækifæra sem
voru í uppganginum þó að það hafi ekki skilað sér nema að
hluta til okkar og því miður er það langt frá því að vera nóg.
Við reyndum auðvitað að beina öllum viðskiptum í heima-
byggð.“ Hvað það síðasta áhrærir er næsta víst að í gegnum
tíðina hefði betur mátt að standa á ýmsum sviðum.
Efnahagspakki ríkisstjórnarinnar til verndar heimilunum
liggur fyrir. Sitt sýnist hverjum þar um, enda aldrei gert svo að
öllum líki. Og nú er beðið eftir fyrirtækjapakkanum, sem
stjórnvöld kalla svo; aðgerðum, sem eru undirstaða alls þess
er gera þarf, að sérhver vinnufús hönd hafi vinnu, sem frekast
er kostur. Undanfarið hefur berlega komið í ljós vilji fólks til
búferlaflutninga á landsbyggðina, svo fremi að til staðar sé
húsnæði og vinnu að fá. Sumstaðar er húsnæði fyrir hendi en
atvinnutækifæri fá eða engin, annars staðar er þessu öfugt
farið. Með því að koma þarna að verki slægi ríkisvaldið
margar flugur í einu höggi. Efling sveitarfélaga á landsbyggð-
inni er eitt mikilvægasta verkefnið sem ríkisvaldið stendur
frammi fyrir; verkefni sem gæti skotið styrkum stoðum undir
,,hið nýja Ísland“ sem menn sjá fyrir sér þegar við náum að
rísa upp úr öskustónni.
Líkt og reglubundnar hreingerningar hafa verið siður á
flestum heimilum hefur BB annað slagið tekið fram afþurrk-
unarklútinn og dustað rykið af málum sem dúkkað hafa upp
sem tækifæri til aukinnar fjölbreytni í atvinnulífi á Vestfjörðum
en hafa einhverra hluta vegna aldrei orðið annað og meira en
orðin tóm, brostnar vonir. BB mun ekki leggja af þennan góða
vana þótt listinn verði ekki tíundaður að þessu sinni. Sveitar-
stjórnarmenn ættu hins vegar að dusta rykið af blaðabunkanum.
Oft var þörf, nú er nauðsyn.
s.h.