Bæjarins besta - 04.12.2008, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008 7
Evrópskt skátamót í Ísafjarðarbæ
Hluti evrópsks skátamóts verður haldið á Ísafirði og á Hornströndum næsta sumar.
Áætlað er að um 100 skátar komi til Ísafjarðarbæjar í tengslum við mótið. Bandalag
íslenskra skáta hefur beðið Ísafjarðarbæ um styrk að fjárhæð kr. 459.900.-, til að
mæta kostnaði við gistingu, aðgengi að sundstöðum, söfnum og matarkostnað. Bæjar-
ráð Ísafjarðarbæjar fjallaði um styrkbeiðnina á síðasta fundi og samþykkti að verða við
styrkbeiðni skátanna með vísun til bókunar íþrótta- og tómstundanefndar en þar var
samþykkt að styrkja bandalagið án þess að fara út í beinan útlagðan kostnað við mótið.
Ungur Bolvíkingur sást í Portúgal
Jaðrakan-ungi sem var merktur í Syðridal í Bolungarvík í júlí í
sumar sást í nóvember nálægt Lissabon í Portúgal. Einnig sást
jaðrakan sem var merktur sem fullorðinn við Holt í Önundarfirði
2003. Sá fugl hefur sést á hverju sumri síðan við Holt. Íslensku
jaðrakanir hafa aðallega vetursetu við England, Írland, Frakkland
og Portúgal og hafa flestar endurheimtur komið frá þessum
löndum. Frá þessu var sagt á vef Náttúrustofu Vestfjarða.
Eimskip er hætt strandsigl-
ingum til Ísafjarðar að sögn
Ólafs William Hand, upplýs-
ingafulltrúa Eimskipa. Var
ákvörðun þess efnis tekin í
síðustu viku og er hún partur
af stórfelldum niðurskurði fé-
lagsins. Tvö skip hafa sinnt
flutningum frá Bandaríkjun-
um til Íslands fyrir Eimskip
og verður eitt þeirra lagt af en
Eimskip notaði annað þessara
skipa til strandsiglinga til Ísa-
fjarðar. Eimskip hefur einnig
sagt upp 72 starfsmönnum en
enginn þeirra starfar hjá fyr-
irtækinu á Ísafirði en hins veg-
ar lækka allir starfsmenn fyr-
irtækisins sem eru með 300
þúsund króna mánaðarlaun
eða hærra um 10% í launum.
Ólafur segist ekki telja að
ákvörðun um að hætta strand-
siglingum til Ísafjarðar sé end-
anleg og segir hana verða end-
urskoðað þegar birtir til í efna-
hagsmálum.
„Við reyndum eins og við
gátum að halda strandsigling-
um til Ísafjarðar á floti en því
miður var ekki grundvöllur
fyrir þeim. Við erum búin að
tala við alla viðskiptavini okk-
ar á Ísafirði og við höfum ein-
ungis mætt skilningi af þeirra
hálfu vegna þessarar ákvörð-
unar,“ segir Ólafur.
Einfaldara mál yrði að draga
úr landflutningum hjá Flytj-
anda að sögn Ólafs. „Tíðni
landflutninga getur minnkað
en í dag höldum við uppi áætl-
unum okkar varðandi land-
flutninga og erum við mun
sveigjanlegri í þeim efnum.
Fólk á ekki eftir að finna fyrir
því ef kemur til samdráttar í land-
flutningum,“ segir Ólafur.
Strandsiglingum hætt
Tvö skip hafa sinnt flutningum frá Bandaríkjunum til Íslands fyrir Eimskip og verður
eitt þeirra lagt af en Eimskip notaði annað þessara skipa til strandsiglinga til Ísafjarðar.
Skortur á íbúðarhúsnæði hamlar vexti
Niðurstöður fjögurra vinnu-
hópa frá íbúaþinginu í Súða-
vík, sem haldið var á fyrsta
degi vetrar, voru kynntar á
síðasta fundi sveitarstjórnar
Súðavíkurhrepps. Sköpuðust
miklar umræður um hug-
myndir vinnuhópanna og ætl-
ar sveitarstjórnin að vinna
frekar með tillögurnar á næstu
mánuðum. Meðal þess sem
vinnuhóparnir leggja til er að
hreppurinn verði umhverfis-
vænn, að sveitarfélagið komi
meira að atvinnulífinu á staðn-
um til að ýta undir sjálfbærni
og nýsköpun sem og að 5-10
manns gætu starfað við fram-
leiðslu kattarmats. Einnig
lýstu hóparnir yfir áhyggjum
vegna skorts á leigu- og íbúð-
arhúsnæði í sveitarfélaginu
sem gerir Súðavíkurhrepp erf-
itt fyrir að vaxa og dafna.
Sameiningarmál voru einn-
ig rædd og var ekki nokkur
vilji hjá þeim til að sameinast
öðrum sveitarfélögum. Ein-
ungis yrði mögulegt að hefja
viðræður um sameiningu ef
samgöngur yrðu bættar til
Súðavíkur og eru jarðgöng frá
Álftafirði til Skutulsfjarðar af-
ar mikilvægur þáttur í því
ásamt því að reisa brú þvert
yfir Álftafjörðinn til að gera
svæðið sterkara í heild sinni.
Málefni fyrirhugaðar olíu-
hreinsistöðvar á Vestfjörðum
voru rædd og mætti stöðin
almennt neikvæðu viðmóti
innan hópanna en þrátt fyrir
þá neikvæðu afstöðu töldu
þeir að sambærileg innspýting
inn í hagkerfið yrði alltaf áhuga-
verð.
Einnig var rætt um málefni
Langeyrartjarnarsvæðisins og
var samstaða um að ekki ætti
að vera frístundarsvæði né
íbúabyggð á svæðinu. Vernda
þurfi Langeyrartjörn og um-
hverfið í kringum hana. Vilja
hóparnir að frístundasvæði
verði fyrir ofan þjóðveginn.
Yfir vetrartímann ætti Lang-
eyrartjarnarsvæðið að vera
nýtt sem gönguskíða- og
skautasvæði og lýsa þyrfti upp
svæðið fyrir þá iðkun.
– birgir@bb.is
Súðavík. Ljósm: © Mats Wibe Lund.