Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.12.2008, Síða 19

Bæjarins besta - 04.12.2008, Síða 19
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008 19 Sælkerar vikunnar eru Nanný Arna Guðmundsdóttir og Rúnar Óli Karlsson á Ísafirði Ógeðsleg rauð grænmetis- súpa og Fífutungubrauð Horfur á föstudag: Norðlæg átt og víða él eða dálítil snjókoma, en yfirleitt bjart suðvestantil. Frost 0-7 stig. Horfur á laugardag: Útlit fyrir suðlæga átt með vætu og hlýindum. Horfur á sunnudag: Útlit fyrir suðlæga átt með vætu og hlýindum. Helgarveðrið er hálfgerður spilaklúbbur og við höfum mjög gaman af því að spila saman.“ – Hvernig tónlist leikur hljómsveitin? Jón: „Við reynum að hafa tónlistardagskrá sveitarinnar sem fjölbreyttasta. Við spilum íslensk og erlend lög í bland.“ – Hafið þið spilað á mörg- um tónleikum? Guðmundur: „Nei, ég get ekki sagt það. Við erum rétt að komast í gang. Fyrstu al- vöru tónleikarnir okkar voru á opnun Edinborgarhússins. Þeir tónleikar áttu sér langan aðdraganda. Við vorum búnir að ganga með þá í maganum veturinn á undan.“ Jón: „Það má því segja að við höfum farið rólega af stað.“ Guðmundur: „Já, mjög rólega. En við erum að fara af stað núna með nýja tónleika- dagskrá.“ – Voru þið ekki að spila í veislu hjá Orkubúi Vestfjarða um daginn? Jón: „Jú, vetrarstarf hljóm- sveitarinnar er rétt að hefjast. Það má segja að þetta sé alls ekki tímabært viðtal.“ Jón og Guðmundur hlæja dátt. – Á Yxna sér enga frægðar- drauma? Jón: „Jú, svo sannarlega. Við ætlum að slá í gegn og hyggjum á útrás þó að það orð sé ekki vinsælt í dag. Þetta er útrásarhljómsveit.“ Jón og Guðmundur hlæja dátt. Guðmundur: „Þetta er kreppu- hljómsveit. Þetta er okkar svar við kreppunni til að reyna að drýgja tekjur okkar.“ Jón og Guðmundur hlæja dátt og galsinn orðinn mikill á þeim þessi lokaorð félaganna enda eru þeir uppteknir menn. En það er greinilegt eftir þetta spjall að þeir hafa mjög gaman af tónlist og þykir ekki síður gaman að spila hana í félags- skap hvors annars. Ef eitthvað af þessari lífsgleði þeirra tveggja skilar sér í spilamenn- sku þeirra uppi á stóra sviðinu er það nokkuð sjálfgefið að gleðin mun smita út frá sér og gera fólk glaðara og ánægðara með lífið. Þess má til gamans geta, að hljómsveitarfélagarnir eru allir stjórnendur í sínum störf- um. Guðmundur er hafnar- stjóri Ísafjarðarbæjar, Jón er forstöðumaður Byggðasafns Vestfjarða, Valdimar er safn- vörður á Hrafnseyri og Þorgeir er framkvæmdastjóri Atvinnu- þróunarfélags Vestfjarða. og ljóst að þeir yngjast upp um þrjátíu ár við að tala um hljómsveitina. Jón: „Það er svolítið skemm- tilegt að Muggi skuli minnast á kreppuna í tengslum við hljómsveitina því að við í Diabolus in musica áttum tvö eða þrjú lög á plötu sem hét Kreppan. Útgáfufyrirtæki Stein- ars Berg gaf hana út og þar var meðal annars að finna Kreppulagið, sem hann samdi.“ – Nú hefur hljómsveitin frekar góð ítök í hátíðinni Aldrei fór ég suður. Kemur hún til með að spila á næstu hátíð? Guðmundur: „Það er aldrei að vita. Það er allavega ágætis hugmynd.“ Jón: „Já, og örugglega byrj- unin á einhverju stórfeng- legu.“ Við létum staðar numið við Af hverju… Á flestum íslenskum heim- ilum tíðkast að kveikja á kert- um á aðventukrans á hverjum sunnudegi aðventunnar. Kveikt var á fyrsta kertinu síðast liðinn sunnudag. Ýmsar hefðir eru fyrir því hvernig kransin- um er háttað og er hann úr ýmsum og stærðum og gerð- um. Sumir eiga gamlan og brunninn krans sem ekki má skipta út vegna allra minn- inganna sem honum tengjast, aðrir gera nýjan krans hver einustu jól og eflaust allt þar á milli. En af hverju kveikjum við á kerti á hverjum sunnu- degi í aðventu? Flestum börn- um kennt að fyrst er kveikt á svokölluðu spádómakerti, því næst Betlehemskerti, svo hirðakerti og á síðasta sunnu- dag fyrir jól er kveikt á engla- kerti. En af hverju er það? Blaðamanni Bæjarins besta fannst tilvalið að bursta rykið af kristnifræðibókunum og rifja upp þann fróðleik sem honum var kenndur í bernsku. „Aðventukransinn byggist á norður-evrópskri hefð. Hið sígræna greni táknar lífið sem er í Kristi og hringurinn táknar eilífðina. Fyrsta kertið nefnist spádómakertið og minnir á fyrirheit spámanna Gamla testamentisins er höfðu sagt fyrir um komu frelsarans. Annað kertið nefnist Betle- hemskertið. Þar er athyglinni beint að þorpinu sem Jesús fæddist í, og þar sem ekkert rúm var fyrir hann. Þriðja kert- ið nefnist hirðakertið en snauðum og ómenntuðum fjárhirðum voru sögð tíðindin góðu á undan öllum öðrum. Fjórða kertið nefnist síðan englakertið og minnir okkur á þá sem báru mannheimi fregn- irnar. Aðventukransinn, sem tal- inn er vera upprunninn í Þýskalandi á fyrri hluta 19. aldar, barst til Suður-Jótlands og varð algengur í Danmörku eftir 1940. Frá Danmörku barst þessi siður til Íslands. Í fyrstu var aðventukransinn aðallega notaður til að skreyta búðarglugga en á milli 1960 og 1970 fór hann að tíðkast á íslenskum heimilum og er nú orðinn ómissandi hluti þess- arar árstíðar“, segir á vísinda- vefnum en þar er einnig að finna þennan fróðleiksmola um aðventuna. „Orðið aðventa er dregið af latnesku orðunum Adventus Domini, sem þýða „koma Drottins“ og hefst hún á 4. sunnudegi fyrir jóladag. Þessi árstími var löngum - og er reyndar víða enn - kallaðar jólafasta, sem helgast af því að fyrr á öldum mátti þá ekki borða hvaða mat sem var, til dæmis ekki kjöt.“ – thelma@bb.is „Uppskrift vikunnar er mein- holl grænmetissúpa sem við eld- um oft. Börnin eru mis spennt fyrir þessu góðgæti en yngsti meðlimur fjölskyldunnar talar um ógeðslegu rauðu grænmetis- súpuna með fýlusvip en innbyrðir yfirleitt heilan disk. Okkur full- orðna fólkinu finnst fátt betra en heit og góð grænmetissúpa á köldum vetrardögum, með mis- munandi tónfalli sem fer eftir innihaldi ísskápsins. Í augnablik- inu er engifer- og chillikeimur í miklu uppáhaldi. Þessar krydd- tegundir eru bragðmiklar og getur sviðið undan chillipiparnum. Best er að prófa sig áfram og nota aðeins 1/3 af chillialdinunum í fyrsta sinn. Við skerum grænmet- ið í nokkuð grófa bita svo yngsti meðlimurinn geti tínt frá það sem hún vill ekki borða. Næringarefn- in eru að sjálfsögðu komin í súpuna sjálfa svo hollustan fer ekki forgörðum þó svo að mauk- soðin paprika eða brokkolí sé sett til hliðar. Okkur finnst ómissandi að borða nýbakað brauð með súp- unni. Við notumst yfirleitt ekki við uppskrift, heldur hendum ein- hverju í skál áður en við brytjum grænmetið, látum svo deigið hefast á meðan grænmetið er skorið og bökum brauðið á meðan súpan sýður,“ segja sælkerarnir. Ógeðslega rauða grænmetissúpan 1 cm af eingiferrót 1/3 chillipipar 2 hvítlauksrif 1 laukur 1-2 tsk kumenduft 1-2 tsk pipar 1-2 tsk salt 1-2 tsk kóriander 1-2 tsk rósmarin 1 msk currypaste 1 dós tómatpúrre 1 dós niðursoðnir tómatar 1 lítri vatn 2 grænmetisteningar 2 gulrætur 5 kartöflur 1 dl grænar linsubaunir ½ sæt kartafla ½ rauð paprika ½ græn paprika Lítill haus af brokkolí Engifer, chillipipar (muna að fræhreinsa aldinið og þvo hendur á eftir) hvítlaukur og laukur er skorið smátt og mýkt í olíu. Kryddinu er síðan stráð yfir ásamt tómatpúrrunni og curry- paste. Gott að láta þetta krauma smá stund en passa að það brenni ekki. Niðurskornum gulrótum og kartöflum blandað saman við og látið veltast aðeins í kryddinu. Vökvanum bætt útí ásamt niður- soðnum tómötum, grænmetisten- ing og linsubaunum. Gott er að láta súpuna sjóða í klukkutíma eða svo. Paprikunni og brokkolí- inu er bætt útí sjóðandi súpuna svona 15 mín. áður en suðutíma lýkur. Ef ykkur finnst súpan bragðlítil þá má bara bæta við kryddi. Fífutungubrauð „Grunnurinn í Fífutungu- brauði er uppskrift af pizzabotni sem ég lærði í heimilisfræði í Gagganum á Akureyri“, segir Nanný. 4 dl vatn við 37° 3 msk matarolía 1 tsk salt 1 poki þurrger 8 dl þurrefni 1 lúka fræ Hér á Vestfjörðum er óhætt að nota heitt vatn beint úr krananum. Setjum það í skál ásamt þurrgeri og látum standa í smá stund á meðan gerið lifnar við, matarolíu og salti bætt út í ásamt fræblöndu t.d sólblómafræ og graskersfræ. Við setjum helminginn af þurr- efnunum úti áður en deigið hefast og notum í jöfnum hlutföllum hveiti, spelt og haframjöl. Við látum deigið hefst í 30-40 mín hnoðum upp í það með 4 dl af hveiti og spelthveiti. Brauðið er bakað í 30-40 mín í 180° heitum ofni. Gott er að pensla brauðdeigið með mjólk áður en það er sett í ofninn. Ef við erum með gesti í mat þá bjóðum við upp á kaffi og súkku- laðirúsínur á eftir annars leggj- umst við bara á meltuna í sófan- um því við borðum alltaf aðeins of mikið af þessum mat. Við skorum svo á Gunnar Bjarna Guðmundsson og Ásgerði Þorleifsdóttur að koma með næstu uppskrift og af fenginni reynslu verður það eitthvað gott. 23,5% af jarðgangagerðinni lokið Gangagröftur í Bolungarvíkurgöngum gekk vel í síðustu viku. Frá Hnífsdal voru sprengdir 56 metrar og var lengd þar 481 metrar í vikulokin. Frá Bolungarvík voru sprengdir 67 metrar og var lengd þar 731 m í vikulokin. Samtals var því búið að sprengja 1.212 m eða 23,5% af heildarlengd ganganna og jókst því heildarlengd ganganna um 2,5% en jarðgangagerðinni hefur haldist á því róli s.l. misseri og er það talinn eðlilegur framgangur á jarðgangagerðinni.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.