Iðnaðarmál - 01.01.1956, Page 14
VINNUFATA- OG SKIÓLl
4
10
Verksmiðjuframleiðsla á fötum á sér ekki langan
aldur frekar en annar iðnaður hér á landi. Sjóklæði
og vinnuföt var eitt af því fyrsta, sem framleitt var í
stórum stíl, en í kjölfar þeirrar framleiðslu kom svo
verksmiðjuframleiðsla annarra tegunda af fötum. Nú
er svo komið, að allmargar verksmiðjur hér á landi
framleiða alls konar fatnað á karla, konur og börn.
Fyrsta verksmiðjan, sem stofnsett var hér á landi
með það fyrir augum að framleiða vinnuföt í stórum
stíl, var Vinnufatagerð íslands í Reykjavík.
Hugmyndina að stofnun þessa fyrirtækis má rekja
allt til ársins 1929, en formlega var það ekki stofnað
fyrr en 24. marz 1932. Voru þá helztu vélar og annað,
5 6