Iðnaðarmál - 01.01.1956, Page 16
8. mynd. Hluti af aðalsalnum, ]>ar sem
vinnuföt eru saumuð.
9. mynd. Tölur saumaðar á skyrtur.
10. mynd. Saumaðir vettlingar.
Myndirnar tók Hjálmar R. Bárðarson.
tækinu þá kleift að stækka verksmiðjuhús sitt á ný árið 1940, svo
að gólfflötur þess var nú kominn upp í 900 m2 og vélakostur þess
aukinn að sama skapi. Hóf þá verksmiðjan jafnframt framleiðslu
á kuldafatnaði sínum, sem nú er löngu landsþekktur.
Dúka. sem verksmiðjan notar til framleiðslunnar, flytur hún
alla inn frá útlöndum, að undanteknum íslenzkum ullardúkum, er
notaðir eru í fóður á skjólflíkur og nema allverulegu magni. Gær-
ur þær, sem verksmiðjan fóðrar kuldaúlpur sínar með, keypti hún
í upphafi sútaðar hjá starfandi sútunarverkstæðum hér. En sökum
þess, að gærur sútaðar með þeirn aðferðum, sem hér höfðu tíðk-
azt, reyndust þola illa að blotna og þorna á víxl, var horfið að því
ráði að fá hingað ungverskaii sútunarfræðing, Zabo að nafni, sem
á vegum Vinnufatagerðarinnar hóf hér sútun á gærum með nýrri
aðferð, sem gerir gærurnar hæfar til að þola bleytu og endurtek-
inn þurrk. Rekur nú fyrirtækið eigin sútunarverksmiðju og sútar
með fyrrnefndri aðferð allar þær gærur, sem hún notar við fram-
leiðslu sína.
Húsnæði Vinnufatagerðarinnar er nú yfir 2000 m2 að gólffleti,
og starfslið hennar er 140—150 manns.
í vinnulaun greiddi verksmiðjan á árinu 1955 hátt á fjórðu
milljón króna, og varlega áætlað má segja, að hún hafi með starf-
semi sinni sparað þjóðarbúinu 5—6 milljónir króna í erlendum
gjaldeyri.
Aðalhvatamaður að stofnun Vinnufatagerðar Islands var
Sveinn B. Valfells, sem þá hafði um skeið unnið við innflutning ó
vinnufatnaði. Hefur hann frá
upphafi verið framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins og jaln-
framt formaður stjórnar þess.
Verkstjóri í verksmiðjunni um
næríellt 20 ára skeið hefur ver-
ið Böðvar Jónsson. Má segja,
að rekstur fyrirtækisins hafi
fyrst og fremst hvílt á þessum
tveim mönnum. En auk þess hef-
ur fyrirtækið notið krafta fjöl-
margra annarra góðra starfs-
manna, sem það á vöxt sinn og
Sveinn B. Valjells forstjóri. viðgang að þakka. Þ. R.
IÐN AÐARMÁL
12