Iðnaðarmál - 01.01.1956, Blaðsíða 16

Iðnaðarmál - 01.01.1956, Blaðsíða 16
8. mynd. Hluti af aðalsalnum, ]>ar sem vinnuföt eru saumuð. 9. mynd. Tölur saumaðar á skyrtur. 10. mynd. Saumaðir vettlingar. Myndirnar tók Hjálmar R. Bárðarson. tækinu þá kleift að stækka verksmiðjuhús sitt á ný árið 1940, svo að gólfflötur þess var nú kominn upp í 900 m2 og vélakostur þess aukinn að sama skapi. Hóf þá verksmiðjan jafnframt framleiðslu á kuldafatnaði sínum, sem nú er löngu landsþekktur. Dúka. sem verksmiðjan notar til framleiðslunnar, flytur hún alla inn frá útlöndum, að undanteknum íslenzkum ullardúkum, er notaðir eru í fóður á skjólflíkur og nema allverulegu magni. Gær- ur þær, sem verksmiðjan fóðrar kuldaúlpur sínar með, keypti hún í upphafi sútaðar hjá starfandi sútunarverkstæðum hér. En sökum þess, að gærur sútaðar með þeirn aðferðum, sem hér höfðu tíðk- azt, reyndust þola illa að blotna og þorna á víxl, var horfið að því ráði að fá hingað ungverskaii sútunarfræðing, Zabo að nafni, sem á vegum Vinnufatagerðarinnar hóf hér sútun á gærum með nýrri aðferð, sem gerir gærurnar hæfar til að þola bleytu og endurtek- inn þurrk. Rekur nú fyrirtækið eigin sútunarverksmiðju og sútar með fyrrnefndri aðferð allar þær gærur, sem hún notar við fram- leiðslu sína. Húsnæði Vinnufatagerðarinnar er nú yfir 2000 m2 að gólffleti, og starfslið hennar er 140—150 manns. í vinnulaun greiddi verksmiðjan á árinu 1955 hátt á fjórðu milljón króna, og varlega áætlað má segja, að hún hafi með starf- semi sinni sparað þjóðarbúinu 5—6 milljónir króna í erlendum gjaldeyri. Aðalhvatamaður að stofnun Vinnufatagerðar Islands var Sveinn B. Valfells, sem þá hafði um skeið unnið við innflutning ó vinnufatnaði. Hefur hann frá upphafi verið framkvæmda- stjóri fyrirtækisins og jaln- framt formaður stjórnar þess. Verkstjóri í verksmiðjunni um næríellt 20 ára skeið hefur ver- ið Böðvar Jónsson. Má segja, að rekstur fyrirtækisins hafi fyrst og fremst hvílt á þessum tveim mönnum. En auk þess hef- ur fyrirtækið notið krafta fjöl- margra annarra góðra starfs- manna, sem það á vöxt sinn og Sveinn B. Valjells forstjóri. viðgang að þakka. Þ. R. IÐN AÐARMÁL 12

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.