Bæjarins besta - 03.09.2009, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2009
Inn að beini Kristín Völundardóttir,lögreglustjóri á Vestfjörðum
Kristín Völundardóttir tók við sýslumannsembættinu á Ísafirði árið 2006 en það nokkru frá starfinu sem hún
ætlaði sér að gegna þegar hún yrði stór þegar hún var á barnsaldri en þá var ætlunin að vinna í sælgætisverslun.
Afdrifaríkasta ákvörðun lífs þíns?
Að læra lögfræði en ekki innanhúsarkitektúr.
Hvar langar þig helst að búa?
Á Íslandi.
Hver var hamingjusamasta stund lífs þíns?
Fæðing dóttur minnar.
Mestu vonbrigði lífs þíns?
Að ég er ekki rauðhærð.
Mesta uppgötvunin í lífi þínu?
Að ég get ekki sungið vel.
Uppáhaldslagið?
Pie Jesu.
Uppáhaldskvikmyndin?
Hringadróttinssaga (allar myndirnar).
Uppáhaldsbókin?
Hamskiptin eftir Kafka.
Ógleymanlegasta ferðalagið?
Fræðaferð lögfræðingafélagsins til Kúbu.
Uppáhaldsborgin?
Kaupmannahöfn.
Besta gjöfin?
Singstar.
Telur þú að líf sé á öðrum hnöttum?
Ég vona það.
Hvaða hlutar geturðu alls ekki verið án?
GSM síma.
Fyrsta starfið?
Barnapía og síðar útburður Morgunblaðsins í 13 ár!
Draumastarfið?
Umm, farsæll rithöfundur.
Hvaða frægu manneskju hefur þér verið líkt við?
Lucy Lu og Kate Moss-lygilegt!
Fallegasti staðurinn á Íslandi?
Aðalvík á Hornströndum.
Skondnasta upplifun þín?
Þegar þjóðverji bankaði upp hjá mér hér á Ísafirði
og kvaðst heita Völundur en væri þó ekki faðir minn!
Aðaláhugamálið
Dóttir mín?
Besta vefsíðan að þínu mati?
BB að sjálfsögðu!
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Vinna í sælgætisverslun.
Hver er þinn helsti kostur að þínu mati?
Ákveðni.
En helsti löstur?
Hvatvísi.
Besta farartækið?
Tveir jafnfljótir, nota þá reyndar ekki nóg!
Hver er uppáhaldshátíðardagurinn þinn?
Aðfangadagur.
Hvaða manneskju lítur þú mest upp til?
Móður minnar, Hildar Högnadóttur.
Ef þú mættir heita hvað sem er, hvað myndirðu heita?
Íunn Högna.
Á hvaða tíma sólarhrings kanntu best við þig?
Á kvöldin.
Í hvaða stjörnumerki ertu?
Vatnsbera.
Lífsmottóið þitt?
Að vera heiðarleg og ærleg.
Landsfund-
ur á Ísafirði
Landsfundur jafnréttis-
nefnda sveitarfélaga verður
haldinn í Edinborgarhúsinu
á Ísafirði dagana 10. og 11.
september nk. Yfirskrift fund-
arins er sveitarstjórnarkosn-
ingarnar 2010. Landsfundur-
inn er opinn fulltrúum í jafn-
réttisnefndum sveitarfélaga,
en einnig eru velkomnir á
fundinn fulltrúar þeirra sveit-
arstjórna sem ekki hafa skip-
að jafnréttisnefndir.
Félagsmálanefnd Ísafjarð-
arbæjar stendur fyrir lands-
fundinum að þessu sinni og
hefur sett saman glæsilega
dagskrá þar sem fjallað verð-
ur um komandi sveitarstjórn-
arkosningar og jafnréttisstarf
í sveitarfélögum.
Dró að sér
fé í Bónus
Kona hefur verið sakfelld
í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir
fjárdrátt. Var konunni gert
að sök að hafa dregið að sér
36.998.- krónur á rúmlega
mánaðar tímabili í verslun
Bónuss á Ísafirði þar sem hún
starfaði.
Konan játaði brot sitt ský-
laust fyrir dómi. Þótti hæfileg
refsing hennar 30 daga skil-
orðsbundið fangelsi.
Hörður Högnason, hjúkr-
unarfræðingur hefur verið
ráðinn sem framkvæmda-
stjóri hjúkrunar hjá Heil-
brigðisstofnun Vestfjarða.
Hörður er fæddur á Ísafirði
árið 1952 og lauk námi frá
Hjúkrunarskóla Íslands árið
1978.
Hann lagði stund á fram-
haldsnám í svæfingahjúkrun
við Nýja hjúkrunarskólann
árin 1978-1981. Hörður hef-
ur starfað hjá Heilbrigðis-
stofnun Vestfjarða og forver-
um hennar síðan 1981.
Hörður Högna-
son ráðinn