Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.09.2009, Qupperneq 8

Bæjarins besta - 03.09.2009, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2009 Gulli Jónasar kveður eftir langan feril Gunnlaugur Jónasson hefur látið af störfum sem bóksali en hann starfaði við Bókhlöðuna á Ísafirði nær alla ævi. Hann hefur afgreitt ótölulegan fjölda fólks með skólavörur af öllu tagi og telur upp á að hafa fylgt eftir þremur kynslóðum í upphafi námsferils þeirra. Jónas Tómasson faðir hans hóf rekstur Bókhlöðunnar í ágúst árið 1920 en 20. ágúst var ávallt talinn af eigendum sem stofndagur hennar. Gunnlaugur starfaði í Bókhlöðunni á uppvaxtarárum sínum og fór til náms við Menntaskólann í Reykjavík og síðar í Háskóla Íslands í viðskiptafræði vegna fenginnar reynslu af verslunar- rekstri. Hann kom aftur heim haustið 1952 og var þá í fullu starfi sem launþegi fyrstu mánuðina hjá Bókhlöðunni. Í janúar 1953 gerðist hann kaupmaður í Bókhlöðunni, þá tuttugu og þriggja ára, og rak hana til ársloka 1993. Þá tóku Jónas sonur Gunnlaugs og Krist- ín Ólafsdóttir kona Jónasar við rekstrinum. Penninn-Eymunds- son tók síðan við rekstrinum árið 2006. Var alltaf við búðarborðið Gunnlaugur hefur því starfað sem bóksali nær allt sitt líf. Hann vann einnig í Englandi í stuttan tíma þegar hann dvaldi þar í hálft ár árið 1952 og var þar í ensku- námi og stundaði vinnu með. Öll sumur þegar hann var við nám starfaði hann í Bókhlöðunni og segist þess vegna hafa orðið af þeirri tilbreytingu og víðsýni sem margir jafnaldrar hans fengu sem stunduðu margs konar vinnu bæði til sjós og lands. „Ég var alltaf við búðarborðið,“ segir Gunnlaugur. Hann segist alltaf hafa haft gaman af starfinu og sérstaklega öllum þeim samskiptum sem hann hafði við fjölda fólks. „Maður hitti svo marga og fylgd- ist vel með bæjarlífinu og kynnt- ist krökkunum sem voru að fara í nám. Þau vaxa síðan úr grasi og verða foreldrar og koma með sín börn til að kaupa skólavörurnar. Ætli ég hafi ekki fylgst með þremur kynslóðum við innkaup á skólavörunum.“ Gunnlaugur segir það fylgja starfi afgreiðslumannsins að kynnast fjölda fólks. „Þó ég hafi verið kaupmaðurinn þá var ég ekki mikið sitjandi inni á skrif- stofu nema þá á kvöldin. Ég var meira eða minna við afgreiðslu og í lagerstörfum. Ég var alltaf á ferðinni og svoleiðis hefur það nú gengið.“ Fann að faðir hans þurfti frí Ekki stefndi hann að því að taka við versluninni þegar hann var í námi. Hann fór sem fyrr segir í viðskiptafræði vegna reyn- slu sinnar af verslun. En þegar hann var búinn að vera í einn og hálfan vetur í viðskiptafræðinni fann hann að faðir hans, sem var kominn nokkuð til aldurs, vildi draga sig í hlé frá verslunarrekstr- inum, en fimmtíu ára aldursmun- ur var á þeim feðgum. „Ég hugsaði að annað hvort væri tækifærið núna og taka við rekstrinum eða fara að velta fyrir sér einhverju frekara námi. Ég ákvað bara að skella mér heim og taka við versluninni.“ Ekki stór ákvörðun að taka við Hann var 23 ára gamall þegar hann tók við Bókhlöðunni og var það býsna erfitt á tímum hafta og vöruskorts. Reksturinn út- heimti langan vinnudag hjá Gunnlaugi í þá daga til að láta þetta ganga. „Það má þó geta þess að ég var að taka við fjöl- skyldubúi. Það var auðveldara fyrir vikið því ég þekkti vel inn á reksturinn og fékk búðina á ágæt- is kjörum.“ Það var ekki stór ákvörðun fyrir Gunnlaug á þeim tíma að taka við versluninni. „Ekki man ég allavega eftir að hafa kviðið því. Þessi ákvörðun kom af sjálfu sér. Upp úr því eignaðist ég svo eigið heimili og börn og hellti mér út í starfið.“ Bjó nær alla tíð í Hafnarstræti 2 Gunnlaugur bjó lengst af í hús- inu þar sem hann fæddist að Hafnarstræti 2 á Ísafirði. Hann hljóp í skólann yfir götuna og niður á neðstu hæð ef hann þurfti að aðstoða við verslunina. Hann bjó þar ásamt fjölskyldu sinni í fimmtíu ár og segist ekki hafa gert víðreist í atvinnu eða heim- ilishaldi fyrr en hann tók upp á því að flytja í þægilegri íbúð fyrir sig og konu sína í Norðurtanga- húsinu á Ísafirði fyrir tveimur árum. Hann bjó í því fjölskyldumyn- stri að kona hans réð á heimilinu, stjórnaði þar öllu og sá um börnin fimm, ekkert þeirra fór á dag- heimili, en Gunnlaugur réð í versl- uninni. Verkaskiptingin var hrein og klár. „Núna er maður að hætta og þarf að leita sér að öðrum störfum að sinna. Ég hef gaman af gönguferðum og útiveru. Kannski sé ég fram á að ég fari að stunda það sem ég hef vanrækt síðastliðin fimmtíu og fimm ár, að taka meira þátt í heimilishaldi, án þess að ég vilji lofa miklu.“ versluninni gangandi í þeim mæli sem hún var á þeim tíma. Hina mánuði ársins var ekkert alltof mikið að gera.“ Hann neitar því ekki að það hafi verið meira um bókaorma og lestrarhesta í þá daga og sér- staklega voru unglingarnir dug- legir að lesa. „Ég held ég verði að segja að það sé minna um bókaorma á unglingsaldri í dag. Það er senni- lega fátæklegra bókaúrvalið fyrir unglingana í dag en þeim mun meira framboð af ýmiskonar ann- arri afþreyingu. Á síðustu árum hefur aukist til muna útgáfa á ódýrum bókum í kiljuformi, bæði nýjar bækur og eldri útgáfur eru nú fáanlegar á hálfu verði miðað við innbundnar og hefur það mik- ið aukið sölu. Að sjálfsögðu kaupa menn eftir sem áður inn- bundnar fallegar bækur til gjafa en mun meira en áður af ódýrum kiljum til eigin nota, eftir eigin smekk og áhuga. Það er hið besta mál.“ Hundruð starfsmanna Í fyrstu voru yfirleitt þrír starfs- menn við Bókhlöðuna. Á meðan Gunnlaugur var með bóka- og ritfangaverslunina og jafnframt sportvöruverslun auk mynda- framköllunar störfuðu þar hátt í tíu manns. „Þau eru sennilega einhver hundruð sem hafa starfað með mér í versluninni öll þessi ár. Að meginhluta búðarstúlkur og kon- ur, sumar árum saman en aðrar rétt yfir sumarið. Síðustu starfs- árin hefur hins vegar verið miklu minni starfsmannvelta og fólkið sem vinnur núna við Eymunds- son á Ísafirði er með tuttugu, þrjátíu og upp í fimmtíu ára starfsaldur. Ég vil nota tækifærið og senda öllu mínu gamla starfs- fólki bestu kveðjur og þakkir fyrir gott samstarf og tryggð alla tíð.“ Alltaf verið í góðu formi Gunnlaugur segist hafa notið góðrar heilsu alla tíð, sem hafi reyndar verið forsenda þess að geta sinnt þessu starfi svo lengi. Vinnan bauð upp á mikla hreyf- ingu. Lager í kjallara, afgreiðsla Kúnninn fari ánægð- ari en hann kom Afgreiðslustarfið var alltaf mjög gefandi fyrir Gunnlaug. Það byggist að hans mati á að hafa gott samband við viðskipta- vinina og reyna að fullnægja þeirra þörfum og óskum þannig að þeir fari ánægðari af fundi heldur en þeir komu, hvort sem þeir kaupa eitthvað eða ekki. „Þetta er atriði sem nútíma- verslunarhættir bjóða ekki upp á þar sem obbi verslunarfólks er við eins konar færibandavinnu og þarf ekki eða á ekki að hafa samband við viðskiptavininn. Í sérverslun á afgreiðslumaðurinn hins vegar að gefa sig á tal við viðskiptavininn og átta sig á því að hverju hann leitar, gefa upp- lýsingar og ráð og spjalla. Starfs- aðferð sem er ekki mikið notuð í dag þar sem aðrar þykja hag- kvæmari.“ Gunnlaugur segir að bóksalan hafi breyst mikið frá því hann hóf kaupmennsku. Þegar hann lítur til baka var mikið um inn- flutningshöft og skömmtun á vörum. „Þetta er ástand sem menn hafa gleymt. Við erum aft- ur að fá nasasjón af því núna en það er ekki nándar nærri eins slæmt og það var á þeim tíma sem ég tók við Bókhlöðunni. Búðirnar voru oft hálftómar af því að það vantaði vörur.“ Jólavertíðin hélt versluninni á floti Gunnlaugur segir lítið úrval af vörum hafa einkennt verslun- arrekstur almennt þegar hann var að byrja sinn kaupmannsferil en mikið og gott úrval af bókum hafi orsakað það að þær voru ávallt vinsælar afmælis- og jóla- gjafir. „Það var nú oftast nær þannig, sem betur fer, að menn enduðu á því að gefa bækur í þá daga. Ég reyndi að hafa mikinn lager af bókum, sem kostaði talsvert mik- ið. Ég gerði það vegna þess að ég vissi að í desember kom væn- leg jólavertíð og það er ekkert leyndarmál að það hélt bóka-

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.