Bæjarins besta - 03.09.2009, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2009
Haustteikn
Bloggið
Bolvíkingurinn Arna Þorleifs-
dóttir útskrifaðist í sumar sem
innanhúshönnuður frá KLC
School of Design í Lundúnum.
Skólinn er sá virtasti á sínu sviði
og hefur alið af sér marga hönn-
uði sem vinna að ýmsum verk-
efnum um allan heim. Margir
þeirra enda jafnvel með því að
vinna fyrir konungsfjölskyldur
og arabíska olíufursta.
Arna útskrifaðist með láði og
hlaut tvenn verðlaun. Annars
vegar fyrir textílhönnun sem var
á vegum stórfyrirtækis sem vinn-
ur náið með skólanum ár hvert
og hins vegar hlaut hún viður-
kenningu ásamt tíu öðrum nem-
endum í skólanum fyrir hönnun
á stærstu konunglegu hótelsvít-
unni í London, Churchill Hyatt
hótelinu við Portman torg Lund-
únum. Hafa stjórnendur hótelsins
valið þeirra hönnun til að taka
áfram í hönnunarferlinu og hefj-
ast framkvæmdir í haust.
– thelma@bb.is
Fékk viðurkenningu fyrir
hönnun á konunglegri svítu
Finnbogi Jónasson, landeig-
andi í Bolungarvík á Ströndum
var nýlega borinn þungum sök-
um á vefsíðunni freydis.is, ásamt
Þráni Arthúrssyni. Þar eru þeir
sakaðir um að hafa farið í leyfis-
leysi inn í hús og veitst að manni
með hótunum og skemmdarverk-
um. Í færslu á vefsíðunni frá 14.
ágúst segir meðal annars: „Fóru
þeir inn í hús í leyfisleysi og
rótuðu þar í eigum manna og
skemmdu veiðibúnað sem menn
voru með, m.a hvolfdu þeir úr
maðkadósum og einnig hvolfdu
þeir úr fiski og ískössum sem
menn höfðu með sér. Meðan á
þessu stóð voru Reimar og fé-
lagar úti í Furufirði við stangveiði
og þótti aðkoman og brjálsemin
í þeim Finnboga og Þráni ansi
mikil þegar komið var til baka
því þeir voru ekki farnir af svæð-
inu og veittust þeir að Reimari
með hótunum um skemmdarverk
og önnur fúkyrði og gekk það
svo langt að þeir sem með Reim-
ari voru urðu flemtri slegnir.“
Finnbogi segir það sem komi
fram á vefsíðunni sé langt því frá
að vera satt. Hann þverneitar fyrir
að hafa farið inn í nokkurt hús en
segir að þeir hafi farið upp á pall
á húsi til að mynda afla hjá hópi
veiðimanna. „Þegar við komum
til Bolungarvíkur sáum við að
þar var hópur af mönnum við
gistihúsið í Bolungarvík. Þá leist
okkur ekki beint á blikuna því
við vorum búnir að hafa grun um
að þarna væru veiðimenn á ferð.
Og staðreyndin er sú að þarna
voru þeir sautján. Þegar ég sjá
hve margir veiðimenn voru á
svæðinu vildi ég ekki fara í land
að Naustum og fór þess í stað í
land yfir á Seli, því ég vissi að ég
myndi fara að atast í þeim, svo
reiður var ég.“ Finnbogi segir að
um nokkurt skeið hafi landeig-
endur staðið í stappi vegna veiði-
manna sem veiði ábyrgðarlaust
úr Bolungarvíkurósi og hreinlega
moki allan fisk upp úr ánni.
„Þarna eru menn gjörsamlega að
rústa ánni. Þetta er lítil bergvatnsá
og hún þolir ekki svona álag.
Það er ekki skilinn eftir einn ein-
asti fiskur,“ segir Finnbogi. Hann
segir að þetta sé ekki í fyrsta
skipti sem slíkt eigi sér stað, en
þetta sé það versta fram til þessa.
Reimar Vilmundarson segir
þetta af og frá. „Það er enginn að
veiða þarna á mínum vegum. Ef
þú skoðar vefsíðuna freydis.is,
þá er ekkert um stangveiði þar.
Ég rek gistiheimili og áætlunar-
siglingar.“ Hann segir ekki nokkra
stoð fyrir ásökunum Finnboga.
Aðspurður um færsluna á vefsíðu
sinni, segist Reimar hafa sett
hana inn í reiðiskasti vegna fram-
komu Finnboga degi fyrr. „Ég
var þarna með hóp á gistiheimil-
inu og hann (Finnbogi) fer inn í
húsið og rótar þar hjá gestum.
Hann fór líka í geymsluhús hjá
mér og fann þar gamalt net.“
Þegar Reimar er spurður hvort
ekki sé mikið álag á ánni þegar
svo margir veiði í einu og hvort
áin þoli svo margar stangir, telur
hann svo vera. Reimar ítrekaði
að hann væri ekki að selja veiði-
leyfi og þennan ákveðna dag
hefðu verið 15 manns verið hjá
honum en ekki sautján. „Ég er að
reyna að byggja upp ferðaþjón-
ustu þarna og hef verið að í nokk-
ur ár. Skýtur það ekki skökku
við ef ég er svo að eyðileggja
náttúruna þarna“ sagði Reimar.
Haft var samband við fróða
menn um stangveiði sem ekki
tengdust málinu og þeir spurðir
hvað meðal á þyldi margar stang-
ir. Flestir voru á því að yfirleitt
væri ekki leyfðar fleiri en 3-7
stangir í einu. Langvarandi of-
veiði gæti skaðað ár svo að hún
næði sér aldrei. Taka skal fram
að engum þessa aðila var sagt frá
hvaða á eða svæði deilan stæði
um. – atli@bb.is
Landeigendur deila
Hluti af hópi veiðimanna sem Finnbogi Jónasson segir vera á vegum Reimars
Vilmundarsonar og stundi ábyrgðarlausa veiði. Mynd: Finnbogi Jónasson.
Í vestri er farið að hausta.
Fjöllin farin að bíða eftir kollhúf-
um vetrar. Flugur afvelta í glugg-
um og mýs á útkikki eftir opnum
hurðum. Lýðsson er að fara í
aðlögun á dagheimilinu og
kemur í minn hlut.
Tónlistarskólinn settur á morg-
un og fréttatímarnir brátt bland-
aðir fúgum og sónötum. Og hundurinn kominn með gigt.
Allt fastir liðir sem einkenna þennan djúpa en tregafulla árstíma.
Limirnir fá nú loksins hvíld að einum undanskildum sem eltir
viðleitni hjartans. Hinir láta líða úr sér. Með kerti í glugga geng ég
til hvílu og heyri ekki lengur í farfuglunum. Konan er hinsvegar
byrjuð að hrjóta sem er nýnæmi.
Lýður Árnason – http://lydurarnason.blog.is
Ömurlegur dag-
ur í lífi þjóðar
Ekki ætla ég að hafa mörg orð
um þennan óskapnað sem þetta
Icesave mál er. En mikil skömm
er að því að ekki skuli vera búið
að gera í því að ganga að þeim
aðilum sem stofnuðu til þessa!
Og á ekkert að gera það?
Búið að neyða þessu upp á Ís-
lenskan almenning - við látin
borga. En Samsonarnir sjást
hvergi og eru bara með talsmann
eins og fínir menn....
Ömurlegur dagur í sögu lítillar þjóðar með ofvaxið sjálfsálit.
Nú vil ég fá að vita - hvað kostaði að senda þessa Icesave nefnd
út...hvað fékk hún greitt....og hvað stendur eftir af þessum samning
sem sú nefnd átti að gera - en sem reyndist fáránlegur þegar til kom.
Hvað fékk Svavar Gestson greitt...og hinir...ég bara spyr...af for-
vitni!!?
Þorleifur Ágústsson – http://tolliagustar.blog.is
Sómatilfinning
Ég spyr ykkur ágæta þjóð,
viljum við ekki almennt að fólk
sé alsgáð í vinnunni? Er það eitt-
hvað sem þingmennirnir okkar
eiga að þurfa að velkjast í vafa
um? Ef við vitum hvað við viljum
í þessu efni, látum það þá í ljós
með ótvíræðum hætti.Ég geri þá
kröfu til allra þeirra sem hafa boð-
ist til að taka á sig þá ábyrgð að
stýra þessu landi að þeir taki
ábyrgð á eigin hegðun. Í mínum
huga er það ekki ábyrg hegðun að
fá sér áfengan drykk og mæta svo í vinnuna, sama hvaða starfi mað-
ur sinnir. Það ganga ýmsar sögur um þingmenn sem hafa mætt í
þingsal undir áhrifum. Þetta á við bæði um núverandi þingmenn og
þá sem hafa látið af þingmennsku, en við eigum ekki að leyfa nein-
um að nota slíkt sem afsökun fyrir sinni eigin hegðun. Því sem liðið
er breytum við ekki, en framtíðinni getum við breytt. Ég vil að þing-
menn, eins og allir aðrir, séu alsgáðir í vinnunni.
Jóna Benediktsdóttir – http://jonaben.blog.is
Það er ódýrara
að vera áskrifandi!