Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.05.2010, Síða 2

Bæjarins besta - 06.05.2010, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 LAUST STARF FORSTÖÐUMANNS SAFNA Auglýst er laust til umsóknar starf forstöðumanns Bæjar- og héraðsbóka- safnsins, Héraðsskjalasafnsins og Ljós- myndasafnsins á Ísafirði frá og með 1. júlí 2010. Leitað er eftir bókasafns- og upplýs- ingafræðingi, sagnfræðingi eða einstakl- ingi með aðra sambærilega háskóla- menntun og starfsreynslu er nýtast mun í starfinu. Launakjör ráðast af menntun og starfsreynslu umsækjanda. Forstöðumaður annast daglegan rekst- ur safnahúss, bæjar- og héraðsbókasafns, héraðsskjalasafns og ljósmyndasafns og hefur yfirumsjón með vistun gagna bæjar- sjóðs Ísafjarðarbæjar og stofnana hans. Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2010. Nánari upplýsingar um starfið má sjá á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, www. isafjordur.is. Jafnframt gefur undirritaður frekari upplýsingar. Þorleifur Pálsson, bæjarritari Ísafjarðarbæjar. thorleifur@isafjordur.is Rækjuverksmiðja til sölu Til sölu er eign þrotabús Bakkavíkur hf., Bolungarvík, fasteignin Hafnargata 86-90, Bolungarvík, ásamt öllum vélum og tækjum til rækuvinnslu. Um er að ræða eina fullkomnustu rækjuverksmiðju landsins með 5 pillunarvélum og 3 laservélum, svo og fullkominni pökkunarstöð. Æskilegt er að kauptilboð nái til allra lausamuna í húsinu sem tilheyra rækjuvinnslu. Óskað er eftir tilboðum í ofangreindar eignir eigi síðar en föstudaginn 14. maí n.k. kl. 16,00. Nánari upplýsingar eru gefnar á Fasteignasölu Vestfjarða að Hafnarstræti 19, Ísafirði, sími: 456-3244. fax: 456-4547 netfang: eignir@fsv.is Allar tæknilegar upplýsingar um verksmiðjuna gefur Jakob Magnússon, gsm. 895-7430. Rækjuvinnslan Bakkavík hf. í Bolungarvík hefur verið úrskurð- uð gjaldþrota og Tryggvi Guð- mundsson hdl. hefur verið skip- aður skiptastjóri. Stjórnendur hafa um nokkurra vikna skeið átt í viðræðum við helstu lánar- drottna félagsins um fjárhags- lega endurskipulagningu en þær umleitanir hafa ekki borið árang- ur. Vegna þessa var stjórn Bakka- víkur hf. nauðugur sá einn kostur að óska eftir að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Bakkavík hf. var stofnuð árið 2001 og hefur rekið öfluga rækju- vinnslu í Bolungarvík síðan. Fé- lagið rak jafnframt fiskvinnslu og útgerð um nokkurra ára skeið og var mest með rúmlega 100 manns í vinnu. Að undanförnu hafa um 30 manns unnið hjá fé- laginu en við gjaldþrotið missir 21 starfsmaður vinnuna. Af þeim eru 6 af erlendum uppruna. Rekstur Bakkavíkur hefur skil- að þokkalegri afkomu allt til árs- ins 2009 en félagið hafði nýlok- ið við endurbætur á rækjuvinnsl- unni þegar efnahagshrunið varð árið 2008. Vegna gengisbreyt- inga hækkuðu skuldir félagsins verulega og á sama tíma dró úr sölu afurða vegna efnahags- kreppu á helstu mörkuðum. Frá þessu var greint á vikari.is. Lausar stöður við Súðavíkurskóla Súðavíkurskóli samanstendur af þremur skólagerðum þ.e. grunn- leik- og tónlistar- skóla. Núna er laus staða á grunn-og leik- skóladeild. Um er að ræða kennslu í verklegum greinum, uppl- og tæknimennt og íþróttum á öllu skólastigum. Á leikskóladeildina vantar deild- arstjóra og leikskólakennara. Unnið er í anda Uppbyggingar til ábyrgðar og lögð er áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, vellíðan nemenda og samvinnu starfsmanna. Súðavíkurhreppur greiðir laun eftir kjara- samningi KÍ og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 17. maí 2010, meðmæli óskast með umsókn. Nánari upp- lýsingar veitir Anna Lind Ragnarsdóttir skóla- stjóri í hs: 456-4985, vs: 456-4924, gsm: 893- 4985, netfang: annalind@sudavik.is Bakkavík hf. í Bol- ungarvík gjaldþrota Bolungarvík.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.