Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.05.2010, Side 4

Bæjarins besta - 06.05.2010, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 Inn að beini Katrín Líney Jónsdóttir,þjónustufulltrúi hjá Símaverinu Katrín starfar sem þjónustufulltrúi hjá Símaverinu á Ísafirði. Hún er mikil áhugamanneskja um í íþróttir og heilsurækt. Það kemur því ekki á óvart að þegar Bæjarins besta spurði hana hvað henni fyndist vera besta farartækið svaraði hún að það væri hjólið. Katrín ásamt maka sínum Ólafi Halldórssyni eru einnig mjög virk í hvers kyns félagslífi á Ísafirði. Afdrifaríkasta ákvörðun lífs þíns? Að flytja til Ísafjarðar. Hvar langar þig helst að búa? Á Ísafirði. Hver var hamingjusamasta stund lífs þíns? Fæðing barnanna minna. Mestu vonbrigði lífs þíns? Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. Mesta uppgötvunin í lífi þínu? Hver er sinnar gæfu smiður. Uppáhaldslagið? Everytime með Britney Spears :-) Uppáhaldskvikmyndin? The Princess bride. Uppáhaldsbókin? Krossgátu bókin á náttborðinu. Ógleymanlegasta ferðalagið? Þegar við Óli, Mikki og Sverrir gengum í 10 daga á Hornströndum og í Jökul- fjörðunum árið 2005 með allt á bakinu. Uppáhaldsborgin? Kaupmannahöfn. Besta gjöfin? Teikning sem Heiðrún dóttir mín gerði og gaf okkur Óla í jólagjöf. Telur þú að líf sé á öðrum hnöttum? Örugglega. Hvaða hlutar geturðu alls ekki verið án? Óla. Fyrsta starfið? Það var í HPP að pakka blokk þegar ég var 11 ára. Draumastarfið? Að vinna sem sjálfboðaliði í hjálparstörfum. Hvaða frægu manneskju hefur þér verið líkt við? Kim Basinger og Annie Lennox. Fallegasti staðurinn á Íslandi? Lónafjörður. Skondnasta upplifun þín? Að uppgötva að Óli minn væri giftur þegar við ætluðum að skrá okkur í sambúð. Aðaláhugamálið? Óli. Besta vefsíðan að þínu mati? bb.is. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Lögfræðingur eða fornleifafræðingur. Hver er þinn helsti kostur að þínu mati? Er mikil gleðikona. En helsti löstur? Of gagnrýnin á sjálfa mig. Besta farartækið? Hjólið. Hver er uppáhaldshátíðardagurinn þinn? Aðfangadagur, allir pakkarnir. Hvaða manneskju lítur þú mest upp til? Mömmu og Óla. Ef þú mættir heita hvað sem er, hvað myndirðu heita? Ólafía. Á hvaða tíma sólarhrings kanntu best við þig? Á morgnana. Í hvaða stjörnumerki ertu? Krabbi. Lífsmottóið þitt? Always look on the bright side of life. Vilja aukinn þorskkvóta Bæjarstjórn Ísafjarðarbæj- ar skorar á sjávarútvegs- ráðherra að auka þorskkvóta. Oddviti Í-listans lagði fram tillögu þessa efnis á fundi bæjarstjórnar en í henni seg- ir: „Bæjarstjórn Ísafjarðar- bæjar skorar á sjávarútvegs- ráðherra, að auka nú þegar þorskkvóta fyrir yfirstand- andi fiskveiðiár. Þessi áskor- un byggist m.a. á því að treysta atvinnuástand og tryggja afkomu fólks og fyrirtækja á komandi mánuðum.“ Bæj- arstjórn samþykkti tillöguna samhljóða. Sigurður endurkjörinn Breytingar urðu á stjórn Ferðamálasamtaka Vestfjarða á aðalfundi samtakanna sem haldinn var að Hótel Núpi fyrir stuttu. Þrír fyrrum stjórn- armenn gáfu ekki kost á sér, þau Áslaug Alfreðsdóttir, Sævar Pálsson og Björn Samúelsson. Í þeirra stað komu í stjórn Halldóra Ját- varðardóttir, Ragna Magn- úsdóttir og Einar Unnsteins- son. Sigurður Atlason gaf kost á sér á ný og var endurkjörinn sem formaður samtakanna. Auk framangreindra skipa stjórnina Ester Unnsteins- dóttir frá Súðavík, Keran Stueland frá Breiðavík og Sigurður Arnfjörð frá Núpi í Dýrafirði. Margir vilja sumarhús Algjör sprenging hefur orðið í umsóknum um sum- arhús í sumar hjá Verkalýðs- félagi Vestfirðinga. Á síð- asta ári voru umsóknirnar 134 en í ár eru þær orðnar 200 auk 23 umsókna sem bár- ust eftir tilskilinn umsókn- arfrest. Vegna fjöldans þurfti að draga um allnokkrar úthlut- anir í ár og fengu því ekki allir þann tíma sem þeir ósk- uðu eftir. Til að gæta þess að allt færi fram eftir settum reglum við útdráttinn var Önundur Jónsson, yfirlög- regluþjónn á Ísafirði fenginn til að annast dráttinn. Í frétt frá VerkVest segir að ganga þurfi frá greiðslu á sumarhúsunum fyrir 5. maí nk. Að öðrum kosti verða hús- in leigð öðrum félagsmönn- um.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.