Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.05.2010, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 06.05.2010, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 Stjórnmál eru bara annað ég held að við hefðum aldrei fengið ef við hefðum verið Evr- ópusambandsríki. Þessi undan- þága sparar íslenskum flugfar- þegum líklega hátt í tvo milljarða á ári og það bar öllum saman um að ef þetta hefði lagst á flugfar- gjöld þá hefði innanlandsflug eins og við þekkjum það í dag lagst af. Þetta er bara eitt lítið dæmi um kosti og galla þess að vera í ESB. Í dag má segja að við höfum í raun verið dálítið eins og krakkar í sælgætisverslun, við höfum fengið alla bestu bitana sem hægt er að fá út úr því að vera í þeim klúbbi sem ESB er, en við höfum til þessa ekki þurft að taka vondu bitana. Og það leysir ekki vandamálin sem við erum að glíma við núna að ganga í sambandið. Stjórnmálamenn sem þora að taka á málum eins og þarf að gera hér á Íslandi koma ekki úr höfuðstöðvum ESB.“ – Hefurðu áhyggjur af þróun samfélagsins? „Það hafa allir flokkar átt þátt í því hvernig rekið hefur á reið- anum með þróun þessa samfélags undanfarin ár. Hið opinbera hefur blásið út og það er bara staðreynd að það þarf að taka ákvarðanir til að draga þetta aðeins saman, öðruvísi kemur enginn efnahags- legur stöðugleiki. Og hvort við höfum krónu eða evru skiptir ekki nokkru máli í því samhengi. Það er líka alltaf verið að tala um að hér eigi að vera eitthvert norr- ænt velferðarríki. Við erum vissulega með norrænu skatt- heimtuna, en ef þú ferð yfir til Norðurlandanna er þar engin þjóð sem býr við þessa vexti sem við búum við eða verðtryggingu á húsnæðislánum, það er sérís- lenskt og óskiljanlegt fyrirbæri sem eingöngu er til komið vegna þessa óstöðugleika í efnahags- lífinu. Það er sífellt verið að láta íslenskar fjölskyldur niðurgreiða útflutningsatvinnugreinarnar. Og það bara getur ekki gengið til lengdar. Samfélagið hefur auðvitað breyst á öllum sviðum, en því miður ekki alltaf til hins betra. Ég get sagt þér eitt lítið dæmi um það hvernig samfélagið sem við búum í hefur breyst síðan ég var púki á Ísafirði þar sem maður lék sér í fjörunni frá sólarupprás til sólarlags. Þannig var að tólf ára sonur minn var að leika sér í fjörunni síðastliðið haust með fé- lögum sínum, fjöruferð sem end- aði með því að við foreldrarnir fengum bréf frá barnaverndar- nefnd Reykjavíkur. Mjög gott dæmi um hversu firrt þjóðfélagið er orðið. Ég hvet drenginn til að Svo fórstu að vinna í sendiráð- inu í Brussel á vegum samgöngu- ráðuneytisins. Hvernig var það? „Það voru þrjú alveg yndisleg ár og aftur rosalega mikill og góður skóli. Ráðuneytin voru öll með fulltrúa úti í Brussel og mitt hlutverk var að sinna rekstri á þeim hluta EES-samningsins sem lýtur að samgöngumálum fyrir hönd samgönguráðuneytis- ins.“ Stjórnmálamenn sem þora koma ekki úr höfuðstöðvum ESB Þá liggur eiginlega beint við að spyrja hvaða afstöðu þú hafir til inngöngu Íslands í Evrópu- sambandið eftir þá reynslu. „Ég er fylgjandi mjög mörgu varðandi Evrópusambandið, við þurfum einhvern veginn að bera gæfu til þess að fá meiri stöðug- leika í efnahagslífinu og það ger- ist ekki með handónýtan gjald- miðil, svo ég nefni dæmi um jákvæðu þættina. En það er engin töfralausn að ganga í Evrópusam- bandið. Stjórnmálamennirnir okkar þurfa að taka erfiðar ákvarðanir hvort sem við förum í Evrópusambandið eða ekki. Það er undirstaða stöðugleika og vel- ferðar í samfélaginu að stjórn- málamenn þori að taka á málum. Og það er mjög margt sem mér hrýs hugur við ef við færum þarna inn. Það er til dæmis ekkert sem bendir til þess að mundum halda ráðstöfunarrétti yfir fiskimiðun- um. Við mundum væntanlega fá að nýta fiskimiðin miklu frekar en aðrir út á veiðireynslu og hefð- arrétt, en hinn formlegi ráðstöf- unarréttur yrði ekki okkar. Róm- arsáttmálanum verður ekki breytt. Honum hefur aldrei verið breytt og það mun ekki gerast. Margt annað má tína til sem yrði okkur óhagstætt eftir inngöngu. Ég nefni sem dæmi að þegar ég var að vinna úti í Brussel snérist starf mitt að miklu leiti að því að taka þátt í vinnu er laut að snarbreyttri heimsmynd í flugöryggismálum í kjölfar árásarinnar á Tvíbura- turnana í New York. Allar reglur voru hertar til muna og íslensk samgönguyfirvöld tóku að sjálf- sögðu fullan þátt í því. Það þekkja allir hvernig það er að ferðast í millilandaflugi í dag og hvernig öryggiskröfurnar verða sífellt meiri og strangari, en það sem færri vita er að það kostaði mjög mikla baráttu að Íslendingar fengju undanþágu frá þessu gríð- arlega stranga öryggiseftirliti í innanlandsfluginu. Nokkuð sem tímabil sem mér þykir alveg óskaplega vænt um. Við Sturla þekktumst ekkert fyrir en sam- starfið þróaðist út í mjög sterkt samvinnu og vináttusamband sem heldur enn í dag. Við vorum eiginlega saman tuttugu og fjóra tíma sólarhringsins í fjögur ár. Þetta kjörtímabil var mikill og að mörgu leyti erfiður skóli fyrir mig. Það gekk á ýmsu þessi ár og mörg erfið mál komu til kasta samgönguráðuneytisins. Fólk man eftir hinu skelfilega flugslysi sem varð í Skerjafirðinum á frí- degi verslunarmanna árið 2000, og það mál var eiginlega í fanginu á samgönguráðuneytinu allt þetta kjörtímabil. Síðan voru það mál sem tengdust fyrri tilrauninni til að einkavæða Landsíma Íslands, og erfið mál sem snertu Flug- málastjórn Íslands. Þannig að á tiltölulega stuttum tíma komu upp mörg stór og erfið mál sem gerðu það að verkum að vinnu- dagurinn varð oft mjög langur. Við höfum oft grínast með það í fjölskyldunni að ég hafi ekki kynnst dóttur minni, sem fæddist 1999, fyrr en hún var orðin 4 ára. Einmitt núna um páskana vorum við að horfa á gamlar vídeóspólur og þá sjaldan að mér bregður fyrir á fjölskyldumyndböndum frá þessum tíma er það á þann veg að það heyrist í mér í bak- grunninum vera að tala í síma. En þessi tími var í senn spennandi og skemmtilegur – og það var oft gaman. Ein er t.d. saga sem mér þykir alltaf gaman að rifja upp. Þannig var að við Sturla vorum staddir heima á Ísafirði og Finnbogi Hermannsson er að fara að taka viðtal við ráðherrann fyrir sjónvarpið, búinn að stilla upp sjónvarpskameru úti á Silfur- torgi og við þarna í hóp til hliðar, ég og ráðherrann, ráðuneytis- stjóri samgönguráðuneytisins, vegamálastjóri, einhverjir þing- menn og embættismenn. Með í för var líka ráðherrafrúin, Hall- gerður Gunnarsdóttir, en henni leiddist eitthvað þófið svo að hún skottast inn í leikfangaverslunina Bimbó þarna rétt hjá. Þar heyrir hún utan að sér þegar einhver viðskiptavinur í versluninni spyr Svanbjörn kaupmann hvaða fólk þetta sé eiginlega þarna úti á torgi. Svanbjörn leit víst snöggt út um gluggann og svaraði að bragði: „Jú, þetta er þarna strák- urinn hans Garðars í Björnsbúð og einhverjir kallar úr Reykjavík með honum.“ Það er búið að hlæja mikið að þessari sögu í gegnum tíðina. Við erum allir aukaatriði, það er Garðar í Björns- búð sem aðalmaðurinn.“ detta inn í hlutverkin og fara að syngja lögin úr sýningunni.“ – Þér hefur ekkert dottið í hug að leggja leiklistina fyrir þig? „Jú, mér datt það nú reyndar í hug og var meira að segja einu sinni búinn að fylla út umsókn- areyðublað fyrir leiklistarskólann en hún fór aldrei í póst. Ég ein- hvern veginn heyktist á því, án þess að geta eiginlega útskýrt hvers vegna. Það vantaði neist- ann, geri ég ráð fyrir, en ég hef aldrei séð eftir því.“ – Þú fórst í stjórnmálafræði í staðinn. Eru stjórnmálin ekki líka nokkurs konar leikhús? „Jú jú, það er bara annað leik- hús. Ég fór nú samt ekkert í stjórnmálafræðina með það að markmiði að fara út í stjórnmál. Ég valdi hana af miklum áhuga á samfélagsmálum og stjórnmál- um. Við fórum saman til Kantara- borgar í Bretlandi, ég og Vigdís haustið eftir að hún útskrifaðist frá MÍ. Ég er fjórum árum eldri þannig að ég beið í festum í Björns- búð og á Bæjarins besta og á fleiri stöðum á meðan hún kláraði skólann. En haustið 1990 fórum við sem sagt saman út í nám, hún fann í Kantaraborg nám sem hún hafði mikinn áhuga á í leikstjórn og leikhúsfræðum og ég var þá kominn með þennan brennandi áhuga á stjórnmálum og samfé- lagi. Við komumst í samband við Jón Orm Halldórsson, sem þá var að stunda rannsóknir við háskólann í Kantaraborg og mælti hann mjög með stjórn- málafræðinni í þessum skóla. Hann meira að segja benti okkur á íbúð sem við gátum fengið og bjuggum reyndar í öll fjögur árin sem við vorum úti. Þetta var alveg yndislegur tími.“ Strákurinn hans Garðars í Björnsbúð Eftir heimkomuna var Jakob sem fyrr virkur í félagsstarfi inn- an Sjálfstæðisflokksins, kom nokkuð að útgáfu Vesturlands um tíma, var meðal annars kosn- ingastjóri Einars Odds Kristjáns- sonar í prófkjörinu fyrir alþingis- kosningar 1995 og í kosninga- stjórnum sjálfstæðismanna á Ísa- firði þá og aftur 1999. Það er svo eftir kosningarnar 1999 sem Sturla Böðvarsson, þáverandi samgönguráðherra ræður hann sem aðstoðarmann sinn. „Ég var þá að vinna fyrir nefnd um rafræn viðskipti hjá Verslun- arráði Íslands. Eftir kosningarnar 1999 æxluðust hlutir þannig að Sturla býður mér að verða að- stoðarmaður sinn og þá byrjaði Jakob Falur Garðarsson er Ís- firðingur í húð og hár, Eyrarpúki, sonur Garðars Guðmundssonar og Jónínu Jakobsdóttur, kaup- manna í Björnsbúð, lék sér í fjör- unni á Ísafirði fram eftir aldri, starfaði með Litla leikklúbbnum og var auðvitað heimavanur bak- við afgreiðsluborðið í Björnsbúð. Hann lærði stjórnmálafræði og alþjóðasamskipti í Bretlandi, hef- ur starfað við ýmislegt að námi loknu, verið sölumaður, blaða- maður, aðstoðarmaður sam- gönguráðherra, starfað í sendi- ráði Íslands í Brussel og er nú framkvæmdastjóri Frumtaka, hagsmunasamtaka frumlyfja- framleiðenda. Bæjarins besta lék forvitni á að kynna sér lífshlaup Jakobs og skoðanir og við byrjum á að spyrja hann út í bröltið með Litla leikklúbbnum í gamla daga en það hafði afgerandi áhrif á líf hans. Fann ástina í Litla leikklúbbnum „Það fyrsta svona alvöru sem ég gerði með litla leikklúbbnum, ef ég man rétt, var að leika í Hjálparsveitinni, stórmerkilegu leikriti eftir Jón Steinar Ragnars- son, sem fjallaði um hjálparsveit ungs fólks sem hjálpaði gamla fólkinu í bænum. Við vorum fjögur fjórtán ára ungmenni sem lékum aðalhlutverkin og þetta voru sem sagt mín fyrstu skref með LL en þau urðu nú fleiri. Ég kynnist svo eiginkonu minni í Litla leikklúbbnum, henni Vig- dísi Jakobsdóttur, leikstjóra, sem var einmitt núna nýverið að frum- sýna Fíusól í Þjóðleikhúsinu. Við áttum saman góðar stundir með LL en eftirminnilegasta verkefn- ið sem ég tók þátt í var án efa sýningin sem sett var upp á 25 ára afmæli klúbbsins. Þá tóku þau sig til, Hanna Lára Gunnars- dóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson og Pétur Bjarnason og skrifuðu heil- mikla revíu, sem, eins og revíur eiga vanda til, gerðist í núinu og hét Engin mjólk og ekkert sykur og var tiltölulega nett grín um menn og málefni þess tíma. Rún- ar Guðbrandsson leikstýrði þess- ari sýningu með miklum glæsi- brag. Það er engin launung að sýningin olli sumum í forystu- sveit samfélagsins á þeim tíma ákveðnu hugarangri, en það var húsfyllir í Hnífsdal hvað eftir annað og við sýndum við mikinn og góðan orðstír. Þessi sýning var rosalega skemmtileg og eftir- minnileg, svo eftirminnileg að við megum varla hittast kjarninn úr þessari sýningu án þess að

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.