Bæjarins besta - 06.05.2010, Síða 19
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2010 19
„Mikilvægt
að sjálf-
bærni sé
höfð að leið-
-arljósi“
Sælkeri vikunnar er Einar Rósinkar Óskarsson frá Ísafirði.
Sælkerinn
Pabbapizza og sjóðheit skúffukaka
„Þessar uppskriftir hafa stelp-
urnar mínar mikið dálæti á og
ákveðin hátíð á heimilinu þegar
ég hringi og býð í Pabba-pizzu.
Punkturinn yfir i-ið er svo þessi
einfalda súkkulaðikaka í eftirrétt.
Álegg á Pabba-pizzu getur ver-
ið fjölbreytt en ég hef ávallt hakk
á henni. Ég steiki hakkið vel og
lengi ásamt því að bæta við það
smá púðursykri. Þannig næ ég
þessu sérstaka bragði á pizzuna,
sem stelpurnar mínar hafa skýrt
Pabba-pizzu,“ segir Einar.
Pabba-pizza
Deig:
12 g pressuger (1 bréf)
3 dl vatn
8-10 dl af hveiti
2-3 msk brætt smjör
1 tsk salt
Gerið er hrært út í volgu vatni.
Hveiti og salt er sett saman í skál
og gerblöndunni blandað saman
við ásamt smjörinu. Deigið er
hnoðað þar til það er samfellt og
látið lyfta sér í 30-60 mínútu,
eftir því hve svangt heimilisfólk-
ið er. Deigið er flatt út á skúffu
og pizzusósu er smurt yfir deigið
í því magni sem fólk vill.
Álegg:
Beikon steikt á pönnu
600 g kindahakk, steikt vel og
lengi á pönnu eða um 30 mín-
útur.
Bætt er við hakkið salt og pipar
Mjúkur Sveitabiti sem er 26%
Einnig hef ég sett eftirfarandi
áleggi á pizzuna: pylsur, sveppi,
kotasælu o.s.frv. allt eftir óskum
heimilisfólksins og hvað til er í
ísskápnum
Sjóðheit og einföld
súkkulaðikaka
3 egg
eftir þörfum en einnig bæti ég
við 3 msk af púðursykri.
Laukur skorinn niður og bætt
við hakkið, látið malla í 10
mín.
Hakkið sett ofan á pizzuna
ásamt beikoni.
Skinka
Pepperoni
Paprika
Ostur, en ég kaupi ávallt ostinn
2,5 dl sykur
4 dl hveiti
3 tsk lyftiduft
4 tsk vanillusykur
6 msk kakó
225 g smjör
1,5 dl mjólk
Egg og sykur þeytt vel saman.
Hveiti, lyftiduft, vanillusykur og
kakó sigtað og sett út í eggja-
blönduna. Smjörið brætt og
blandað saman við mjólkina og
saman við deigið. Ofninn hitaður
í 175 C og deigið sett í kringlótt
form og bakað í miðjum ofni í
ca. 30 mínútur.
Súkkulaðibráð ofan á kökuna
3 dl flórsykur
3 msk kakó
3 msk mjólk
Flórsykur og kakó blandað
saman. Mjólkin hrærð smám
saman út í þar til bráðin gljáir.
Ofan á súkkulaðikremið er hægt
að setja alls konar ber, sérstaklega
eru þó aðalbláber úr Leirufirði
vinsæl og ómissandi á kökuna.
Borið fram með þeyttum rjóma
og/eða vanilluís.
Ég skora á bróðir minn, Albert
Óskarsson á Ísafirði, næsta sæl-
kera vikunnar.
Ester Rut Unnsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Melrakkaset-
urs Íslands, segir að finna þurfi
leiðir til að auka þolmörk dýr-
anna sem eru höfð til sýnis í
tengslum við náttúrulífstengda
ferðaþjónustu án þess að valda
þeim skaða eða eyðileggja mögu-
leika til frekari afnota af þeim í
framtíðinni. Náttúrulífstengd ferða-
þjónusta eða Wildlife tourism er
vaxandi atvinnugrein á Íslandi
og víðar um heim. Sem dæmi
má nefna fuglaskoðun, hvala-
skoðun og selaskoðun. Milljónir
manna ferðast um heiminn í þeim
tilgangi að skoða og „safna“ teg-
undum. Fuglaskoðunarferðir eru
oft samtvinnaðar skoðun á öðru
dýralífi og skipuleggur stór hluti
fuglaáhugamanna ferðir sínar
gagngert til að sjá önnur villt
dýr. Dæmi um eftirsóttar dýrateg-
undir eru norðurheimskautsdýr,
t.d. hvítabirnir, rostungar, selir,
hvalir og heimskautarefir (mel-
rakkar).
Í fyrirlestri Esterar á ráðstefn-
unni Umhverfisvottaðir Vestfirð-
ir kom fram að aukin ásókn
sjónarmið og vaxandi hagnaðar-
von. Í fyrirlestrinum var fjallað
um dýr sem auðlind í ferðaþjón-
ustu og mikilvægi þess að sjálf-
bærni sé höfð að leiðarljósi. Minnti
hún á skyldur fólks gagnvart nátt-
úrunni og villtu dýralífi, hversu
fábrotin íslenska fánan er og vist-
kerfin einföld en jafnframt við-
kvæm.
„Krafa um sjálfbærni hefur
aukist því ferðamenn hafa aukna
umhverfisvitund og vilja vottun
eða staðfestingu. Til að þetta sé
hægt þarf að sinna rannsóknum
á þeim dýrastofnum sem um er
að ræða og áhrifum þess að auka
ásókn ferðamanna inn á búsvæði
þeirra. Aukin þekking hjálpar
okkur til að treysta undirstöðu
þessarar nýju atvinnugreinar, af-
komu þeirra sem að henni starfa
og notkun auðlindarinnar til
langs tíma,“ kom fram í fyrirlestr-
inum.
– thelma@bb.is
ferðamanna í að upplifa villt dýra-
líf í náttúrulegu umhverfi hefur
verið nokkuð til umræðu vegna
þess að þar stangast á verndunar-
Melrakki er eftirsótt dýrategund þegar kemur að nátt-
úrulífstengdri ferðaþjónustu. Mynd: melrakkasetur.is.