Listin að lifa - 01.12.1998, Page 3
Talað fyrir daufum eyrum
STJÓRNVALDA
-'Co
Ungur nemur, gamall temur. Eitt sinn ungur -
einhvern tíma gamall. Þetta ættu stjórnmálamenn að
hafa í huga þegar kemur að hagsmunum aldraðra!
í barcrttuliði samtaka eldri borg-
ara eru margir einstaklingar,
sem fyrr á árum gegndu ábyr<$-
arstörfum í þjóðfélaginu og létu
margt gott af sér leiða. Á þeim
var tekið mark, þegar því var að
skipta. Á málflutning þeirra var
hlustað og viðbrögð vöktu gjarnan
athygli.
Margir af þessum eldri borgurum hafa
tekið drjúgan þátt í að móta óskir og
tillögur til stjórnvalda í sambandi við
velferðar- og hagsmunamál eldra
fólks. Nægir að minna á greinar eftir
þetta fólk t.d. í Morgunblaðinu.
Einnig má minna á tíða fundi t.d. á
síðasta ársfjórðungi 1997 með ráð-
herrum, þingnefndum, þingflokkum
og fleiri valdastofnunum.
Af hverju daufheyrast stjómvöld við
málflutningi samtaka eldri borgara?
Aðalfundur Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni, sem haldinn
var 1. mars sl., er einnig athyglisverð-
ur í þessu sambandi. Þar voru m.a.
fluttar og samþykktar tillögur um eft-
irfarandi hagsmunamál eldri borgara:
1. Skattlagningu Irfeyrissjóðstekna.
2. Afslátt af fasteignagjöldum.
3. Hœkkun skattleysismarka og
frítekjumarks tekjutrygginga.
4. Verðfryggingu eftirlauna.
5. Hœkkun grunnlífeyris.
6. Vistunarmál aldraðra.
7. Samrœmingu á ellilífeyri og
tekjutryggingu hjóna og ein-
staklinga.
Tillögur þessar voru að sjálfsögðu
sendar stjórnvöldum og fylgt eftir á
viðræðufundum með ráðamönnum.
EN - ÖÐRUVÍSI MÉR ÁÐUR
BRÁ
Hversu vandaður sem málflutningur
eldri borgara er, virðist hann fara inn
um annað eyrað og út um hitt hjá
þessum sömu ráðamönnum, enda þótt
þeir séu jákvæðir og vingjarnlegir,
þegar við þá er rætt.
Niðurstaðan af þessari hugrenningu er
þessi:
Það er óviðunandi, að 10% af þjóð-
inni, 27.250 manns, eða þeir sem eru
67 ára og eldri, séu ekki virtir svars,
þegar samtök þeirra leita til stjórn-
valda með málefni sín.
Sé ekki grundvöllur til að verða við
óskum eldri borgara, á einfaldlega að
segja að svo sé. Eldri borgurum fer ört
fjölgandi. Þeir sætta sig ekki lengur
við að málflutningur þeirra sé virtur
að vettugi.
Sueúuv cflðjamss<uv,
verkfrœðingur, íframkvœmdastjóm
Landssambands eldri borgara
3-