Listin að lifa - 01.12.1998, Qupperneq 35

Listin að lifa - 01.12.1998, Qupperneq 35
Náms-1 Ekki aðeins unga fólkinu bjóðast nómskeið með skemmtilegu ferðaívafi, einnig eldra fólkinu. í IrHa strandbœnum Sidmouth í Suðvestur-Englandi er al- þjóðlegur enskuskóli, sem tekur ó móti öllum aldurs- hópum. í Sidmouth búa margir ellilífeyrisþegar, og þar er öflugt félagslíf í klúbbum og félögum fyrír eldra fólk. FEB í Reykjavík vill kanna óhuga lesenda ó hópferð til Sidmouth að vori. Brottför er óœtluð 15. maí nk. ó 2.-3. vikna nómskeið. Hluti af nóminu er að gista hjó breskum fjölskyldum, og þótttakendum yrði gefinn kostur ó að velja sér fjölskyldu. Þar sem skól- inn er fyrir alla aldurshópa, mœtti jafnvel hugsa sér að afi og amma tœkju barnabörnin með. Sidmouth er í þriggja tíma tjarlægð frá London, en til háskólabæjarins Exeter eru aðeins 20 mínútur. Sid- mouth stendur við mynni Sidárdals og íbúar eru 15.000. Einstæður bygg- ingarstíll gamalla húsa í miðbænum, fagurt og friðsælt umhverfi valda því, að bærinn er eftirsóttur jafnt af skólafólki sem ferðamönnum. Sidmouth á rætur meira en 1000 ár aftur í tímann. Á 17. öld var hér markaðsbær með 100 húsum, flest leirhús með stráþökum, en nokkur þeirra standa enn. I miðbænum má heimsækja kaffihús, handverkshús, tehús og bjórkrár í vinalegum eldri húsum. Eitt elsta hús bæjarins „Gamla skipskráin" selur nú mat og drykk, en var klaustur fyrir 600 árum. Bæjarleikhúsið er 100 ára og er opið allt árið. I lok 18. aldar var Sidmouth vinsæll sjóbaðstaður hjá konungsfólkinu, og margar fagrar byggingar eru frá þeim tíma. Mörg stærri hótelin voru áður glæsivillur aðalsmanna. Skóla- húsið, May Cottage, er frá 1790 og var áður sjúkrahús bæjarins. Frá skólanum er skemmtileg gönguleið niður á ströndina. I nágrenninu eru minjasöfn, eins og „A La Ronde“ einstætt 16 hliða hús frá 1796, og Killerton-húsið sem geymir safn sögulegra búninga. Buckfast Abbey stendur í jaðri Dart- moor þjóðgarðsins, en klaustrið reka Benediktus-munkar, sem eru frægir fyrir býflugnarækt. Totnes og Dart- mouth eru vinalegir smábæir sitt hvorum megin við Dart-ána með sína Ojótabáta. Skólinn skipuleggur hálfs- og heilsdagsferðir um nágrennið. Enska fyrir þig í Englandi Sidmouth International School er mólaskóli fyrir alla aldurshópa Umboðsaðilar: Samvinnuferðir / Landsýn Upplýsingar hjó Mörtu Helgad. í síma: 569-1870 aiitimsi Heyrnar- og talmeinastöð íslands Háaleitisbraut 1 Reykjavík Sínni 581 3855 Fax 568 0055 Við veitum elli- og örorkulífeyrisþegum staðgreiðsluafslátt af verði lyfja og ókeypis heimsendingu „innan hverfis“ ef óskað er Engihjalla Apótek Engihjalla 8 • 200 Kópavogi Sími 544 5250 Garðs Apótek Sogavegi 108- 108 Reykjavík Sími 568 0990 35

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.