Listin að lifa - 01.12.1998, Blaðsíða 15

Listin að lifa - 01.12.1998, Blaðsíða 15
AFMÆLISÞING ÖLDRUNARFRÆÐAFÉLAGS ÍSLANDS Hönnun húsnæðis fu/iM/ aldtacía/ Fyririesararnir Thomas L. Harrington, Ella B. Bjarnason, Richard Ó. Briem, Sigríður Jónsdóttir og Guðmundur Gunnarsson. Öldrunarfrœðafélag íslands stóð fyrir afmœlisþingi 23. október sl. í tilefni af 25 óra starfi. Thomas L. Hamngton, sólfrœðingur og gestaprófessor við tœknihóskóla í Hollandi, flutti inngangserindi, sem hann nefndi „Samspil skynj- unar og hreyfifœrni, og hönnun- ar og viðhalds öruggs húsnœðis fyrir aldraða." Harrington ræddi um hvernig öldrun- artengdar breytingar á skynjun og hreyfifærni auka líkur á slysum, eink- um ef hönnun á húsnæði er óheppileg, t.d. vond lýsing, slæm gólfefni o.fl. í umfjöllun um baðherbergi kom hann með spaugilega lýsingu á því, hve auðvelt væri að fá þrjú höfuðsár í þremur sturtuferðum, ef t.d. sápuskál væri illa staðsett. Aminningin þörf, enda margir sem njóta heimaþjónustu, sem fá aðstoð við böðun. Hann ræddi einnig um mikilvægi þess að þróa líkön/hermitæki til að skilgreina staðla/viðmiðanir í mati á öryggisþáttum. Með plastfilmu lét hann ráðstefnugesti setja sig í spor þeirra sem er að förlast sjón, og sýndi hve miklu skipti að letur á merkingum og viðvörunum væri skýrt og litaskil skörp - að tveir skærir litir gerðu ekki sama gagn og svart og hvítt. ÍSLENSKIR FYRIRLESARAR OG FAGMENN HVER Á SÍNU SVIÐI FLUTTU LÍKA ERINDI Anne Grethe Hansen, iðjuþjálfi á Reykjalundi, ræddi um að taka þyrfti tillit til þess í hönnun húsnæðis, að aldraðir gætu haldið sjálfstæði sínu og sjálfsvirðingu. Skýrari markmið og leiðbeiningar þyrftu að vera í lögum og reglugerðum, til dæmis að aðstaða í eldhúsi og baði yrði að miðast við fólk sem þarf að nota göngugrind eða hjólastól. Ella B. Bjarnason, sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Vesturbæjar, ræddi um samspil í hönnun húsnæðis og um- hverfis. Sérhannað húsnæði þyrfti að vera í nánd við skjólgott umhverfi, útivistarsvæði og þjónustu. Mikilvægt sé að umhverfi laði til útiveru og hreyfingar, sem stuðli að betra heilsu- fari. Víða mætti auka skjól, koma fyrir bekkjum, setja snjóbræðslukerfi í göngustíga o.fl. Guðmundur Gunnarsson, verkfræð- ingur og formaður Samtaka aldraðra, kom inn á þróun í húsnæðismálum og breytingar á lögum og reglugerðum. Hann rakti sögu íbúðabygginga Samtaka aldraðra, hvernig nútíma- kröfur hefðu kallað á stærri íbúðir og breytt áherslum í hönnun og hús- stjórnun. Richard 0. Briem, arkitekt hjá Vinnustofu arkitekta ehf., talaði um betri skilgreiningu á milli almennra í- búða aldraðra og þjónustuíbúða, um sérþarfir aldraðra þegar þörf á aðstoð til að sinna viðhaldi eykst og vöndun vinnubragða. Einhæft framboð bæri að forðast, en auka fjölbreytni hús- bygginga og íbúðagerða. I erindi sínu „þarfir og öryggi aldr- aðra í sjálfseignaríbúðum“ sagði Sig- ríður Jónsdóttir, yfirmaður rannsókn- ar- og þróunarsviðs hjá Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar, frá niður- stöðum könnunar meðal íbúa í húsum sem byggð voru af Samtökum aldr- aðra og Félagi eldri borgara í Reykja- vík. Arsæll Jónsson öldrunarlæknir og Gunnhildur Sigurðardóttir hjúkrunar- fræðingur voru kosin heiðursfélagar á afmælisárinu. Steimuuv X ‘^ánsdáttir/ formaður Öldrunaifrœðafélags íslands 15

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.