Listin að lifa - 01.12.1998, Síða 25
arfjarðarkirkju, lýkur kennararéttinda-
prófi frá Háskóla íslands, en stefnir
síðan til Mountain í Norður-Dakota til
að þjóna Vestur-íslendingum. Þar opn-
ast fyrir honum ársnám í sérþjónustu á
krabbameinsdeildum og í sálgæslu á
Abott-Northwestem-spítala í Minnea-
polis. Eftir 5 ára dvöl á meginlandinu,
flytur hann til Vestmannaeyja til að
leysa sóknarprestinn af í eitt ár. Sjálf-
ur ólst Bragi upp á Akranesi og kunni
því vel að komast aftur í nálægð við
sjóinn.
„Sterk tilfinning að koma heim í
sjávarpláss eftir að hafa dvalið um
árabil á miðju meginlandi fjarri sjó,“
segir Bragi, „og skólastjórinn var
fljótur að ráða mig í forfallakennslu,
þegar hann frétti af kennaraprófinu,“
bætir hann við hlæjandi, „það hefur
reynst mér afar vel í störfum mín-
um.“
MYNDRÆN BIRTING
Þú segist hafa fengið köllun til að
þjóna guði. Geturðu lýst því,
hvernig hún birtist þér, séra
Bragi?
„I bænalífi og djúpri íhugun
urðu mér ljósar fjórar birtingar-
myndir, sem allar tengjast 23.
Davíðssálmi.
Fyrsta mynd: Ég sé mig staddan í
dimmum dal, og finnst vera aðeins ein
leið upp úr honum, sem ég verði að
finna.
Önnur mynd: Ég er enn í dalnum,
en er búinn að átta mig á því að úr
honum liggja margar leiðir. Nú er ég
kominn með förunaut, Jesús Kristur er
í fylgd með mér, og við tölum saman
um, hvaða leið sé best.
Þriðja mynd: Jesús og ég verðum
sammála um, að engin ástæða sé til að
fara úr dalnum. Þá breytist þessi
dimmi dalur dauðans í lífsins dal, ljós
lífsins færist yfir - dalurinn dimmi
verður bjartur.
Fjórða mynd: Er ófullgerð og verð-
ur það kannski alltaf.
senn. Hann er miklu stærra en nokkuð
sem ég get ímyndað mér. Ég hef upp-
lifað meira að guð geti unnið með
mér, að hann geti haft okkur sem
verkfæri til að koma góðu til leiðar.“
JÓL OG SJÚKRAHÚSPREST-
URINN
Sjúkrahúsprestur-
inn situr á
móti mér í
hlýlegu
herbergi, með þægilegum stólum og
rólegu andrúmi. „Þetta er móttökuher-
bergi fyrir þá sem fylgja sjúklingi á
bráðavakt. Oft eru hér yfir tuttugu
manns samankomnir, fullir af kvíða
og angist,“ segir Bragi.
Einhvem veginn finnst manni, að
hér eigi að hljóma sálumessur og klass-
ísk trúartónlist - og flöktandi kertaljós
eina lýsingin. Starf sálusorgara á stóru
sjúkrahúsi hlýtur að vera afar umfangs-
mikið og fjölbreytt. Hann þarf bæði að
hugsa um sálarheill hinna sjúku - og
þeirra sem fylgja þeim. Bragi býr yfir
trúarsannfæringu og geislar frá sér
hlýju og öryggi. Hér sýnist vera réttur
maður á réttum stað.
Nú eru jólin að nálgast með sitt
helgihald og bænastundir. Hvað
viltu segja okkur um þau, séra
Bragi?
„Jólin eru ein af þremur
stærstu hátíðum kristinna
manna, sem færa okkur
ætíð sitt eilífa, unga fagn-
aðarerindi, um fæðingu
frelsarans. Jólin eru sterk
tjölskylduhátíð, sem gott
er að hugsa um mynd-
rænt,“ segir Bragi.
Eftir því sem árin hafa liðið skynja
ég þessar myndbirtingar sem samtal
mitt við guð. Ég sé ekki á þessari
stundu hvert köllunin muni leiða mig,
en treysti því að hún muni leiða mig
vel.“
- Hvað er guð, séra Bragi?
„Guð er herra lífsins, vinur og allt í
25