Listin að lifa - 01.12.1998, Page 26

Listin að lifa - 01.12.1998, Page 26
„Ég skynja ákveðna samkennd alls mannkyns, þegar ég horfi á söfnuðinn safnast saman í kringum jötuna. Þá sé ég hann fyrir mér sem hluta af stóru ættartré, því að þegar upp er staðið, þá erum við öll af Adamsætt og öll systk- in hans, eins og sálmurinn segir: „því fagni gjörvöll Adamsætt“ „vér erum systkin orðin hans“. Vestur-íslendingur kom eitt sinn með ættarskrá sína til mín, geysiþykka bók. Hann vildi sýndi mér. hvernig hægt var að rekja ætt hans frá upp- runalegum foreldrum, allt aftur til Ad- ams og Evu á síðustu blaðsíðu. Samkvæmt þessu erum við öll bræður og systur, aðeins misjafnlega mikið skyld. Jól á sjúkrahúsi eru mjög í stíl við hin upprunalegu jól. Hér ríkir bæði hyldjúp örvænting og djúp gleði, eins og hin fyrstu jól. Hér er tekist á við sjúkdóma, oft spurninguna um hvort lífið eða dauðinn sigrar. I svona and- rúmi er boðskapur jólanna svo hreinn og tær. Fyrir fárveikt fólk, sem nær að meðtaka hátíðleikann, er sérstakt að upplifa þetta andrúm. Skírnarfontur úr Prestbakkakirkju, eftir Ríkarð Jónsson. Aðventustundir eru á þriðja tuginn, sem við sjúkrahúsprestarnir þrír og einn djákni sjáum um. Stærsta að- ventustundin er á vegum starfsmanna- ráðs fyrir starfsfólk og sjúklinga, en þá koma saman um 300 manns. A jóladag hefur skapast sú hefð, allt frá byggingu Landspítalans árið 1930, að Lúðrasveit Reykjavíkur spili í guðs- |rjónustunni. Eins eru dæmi um tón- listarfólk sem kemur færandi hendi.“ Bragi segist munu verða á vakt yfir hátíðadagana, sem gefi sér mikið. „En hér ríkir ekki hátíðleikinn einn. Jól á sjúkrahúsi geta líka þýtt ofboðs- lega einmanakennd. Sumir eiga ekki ör- yggisnet fjölskyldunnar, og enginn kemur í heimsókn. Hjá öðrum er ein- manaleikinn landfræðilegur, fjölskyld- an býr úti á landi, ófærð eða erfiðar fjölskylduaðstæður. Þá er oft leitað eftir einhverjum til að vera hjá viðkomandi." Bragi segir að starfsfólk, sem búið er að taka tryggð við sjúklinga sína, vitji þeirra oft á aðfangadagskvöldi eða jóladegi. Hann segir líka töluvert um að prestar úti í bæ heimsæki sókn- arbörn sín. „En það er fjölskyldan sem skiptir sjúklinginn öllu máli, þegar erfiður sjúkdómur herjar á og dauðinn er kannski í nálægð. SÁTT VIÐ DAUÐANN ER SÁTT VIÐ LÍFIÐ Eg ætla ekki að koma mér und- an spurningunni um dauðann, sem samfélagið er svo upptekið af, að bíði handan við hornið hjá öldruð- um. Cíceró benti á það fyrir meira en 2000 árum, að dauðinn væri til staðar í öllum kyn- slóðum, og gæti mætt okkur hvenær sem er á lífs- leiðinni. Af fenginni reynslu get ég sagt, að börn eru mörg hver reiðubúnari til að deyja en þeir sem eldri eru. Dauðinn er ekki flókinn hjá börnum, ekki tengdur eins margvíslegum lífsverkefnum og hjá fullorðnum. Þau sjá hann í ein- földum myndum. Himinninn er þarna, jörðin hér, og þegar við deyjum förum við til guðs. Sum eru viss um að við deyjum bara pínulítið og komum svo aftur.“ Bragi segir sérkennilegt að sjá lítil börn, alveg að dauða komin, teikna dúl'u sem flýgur frjáls um himininn. „Dúfan er fulltrúi sálarinnar sem lifir líkamsdauðann. Börnin sjá sálina lifa, þótt líkaminn deyi. Eitt sinn var ég að hugga lítinn dreng, sem var nýbúinn að missa afa sinn. „Geturðu teiknað afa þinn?“ spurði ég, og barnið teikn- aði svart höfuð. Af hverju? Jú. „Þar sem hann er núna, er ekki hægt að þekkja hann,“ var svarið. Eitt verkefnið í námi mínu var að velta upp hugmyndum um dauðann, sem var m.a. fólgið í því að skrifa minningargrein um sjálfan sig. I nútíma þjóðfélagi hvílir næstum bannhelgi á því að tala um dauðann, sem er hluti af öllum æviskeiðum, eins og fæðingin. Við megum ekki miða allt við líð- andi stund, heldur hugsa þetta í miklu lengra ferli, flétta fortíð og framtíð inn í NÚ-ið, þannig getum við undirbúið okkur fyrir síðasta augnablik lífs okk- ar. Lykillinn að sátt við dauðann er sátt við lífið. Mér fínnst makalaust, hvað margir hugsa lítið um eigin sjálfsmynd. Þá á ég ekki við ytra sjálf- ið, myndina í speglinum, heldur hið innra ég sem enginn annar sér, en bær- ir á sér á síðustu augnablikum lífsins. Innra sjálfið þarf hver maður að rækta til að vera sáttur við líf sitt og dauða.“ Bragi hefur setið hjá mörgum dán- arbeði og segir flesta óttast fyrst og fremst aðskilnað við ástvini. „Þeir sem snúa aftur eftir endurlífgun, eru sannfærðir um, að sálin og andinn lifi af líkamsdauðann. Tilfinningin fyrir nánd þess sem dáinn er, tengist friði hans, en það er ekki bara minningin sem lifir, heldur lifir sá sem dáinn er.“ Bragi segir að þjónusta sín endi ekki við andlátið. „Fyrir jólin er stór aðventustund fyrir þá sem syrgja látna ástvini. Þegar fólk deyr í heimahús- um, ráðlegg ég ástvinum að láta líkið standa uppi smátíma til að venjast að- skilnaðinum. Síðan er kveðjustund heima, skyld gömlu húskveðjunni. Einnig býð ég upp á fræðslustundir á árinu. Sorgina á að mýkja í lengra ferli. Hún verður að fá útrás til að þeir sem eftir lifa geti haldið áfram í lífs- baráttunni. Sorgin og dauðinn er þroskaverk- efni sem allir þurfa að ganga í gegn- um. Dauðinn er ein af birtingarmyndum 26

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.