Listin að lifa - 01.12.1998, Qupperneq 30

Listin að lifa - 01.12.1998, Qupperneq 30
1-9-9? Nú eru allir ábyrgðarlausir! - segir Sigurbjörg Björgvinsdóttir sem á sœti í framkvœmdanefnd um ár aldraðra. Ár aldraðra 1999 - Að móta nýja hugmyndafrœði í viðhorfum til eldri kynslóðar - er vissulega forvitnilegt viðfangs- efni, sem hlýtur að snerta allt þjóðfélagið. Stórt verkefni, sem framkvœmdanefnd um ár aldr- aðra er að kljást við. í síðasta blaði kvaddi nefndaroddvitinn, Jón Helgason sér hljóðs. Nú er leitað svara hjá Sigurbjörgu Björgvins- dóttur, forstöðukonu félagsheim- ilis eldri borgara að Gjábakka í Kópavogi. A Gjábakka voru kátar konur ýmist að útbúa jólagjafir eða raða saman blómaskreytingum. Fjörugar umræður í einu horni, niðursokkið spilafólk í öðru, kaffi á könnunni og heimilislegt andrúmsloft. Erfitt að ná Sigurbjörgu undir fjögur augu, en í bókahorni var gott afdrep. Nú er búið að setja ár aldraðra 1999 á íslandi. Ráðstefnan í Gullsmára 1. okt. sl. var býsna fróðleg og erindin mörg í gamansömum tón, þótt alvara byggi undir. - Varstu ánægð með setn- ingu ársins, Sigurbjörg? „Já. Ráðstefnan markaði ákveðin tímamót, og fjallaði sem betur fer ekki eingöngu um peninga. Hamingjan felst í öðru, þótt peningar séu nauð- synlegir. Mikið var lagt upp úr því, að eldra fólk hefði tækifæri til þátttöku í samfélaginu. Einnig var rætt um, að eldra fólkið ætti að leggja sig fram um að styrkja fjölskyldutengslin. Gott fjölskyldulíf er meginstoð trausts þjóðfélags." Starfslok voru yfirskrift ráðstefn- unnar. Tvímælalaust ein viðkvæmasta stökkbreyting á æviskeiðinu er að þurfa að víkja af starfsvelli vegna ald- urs. - Hver er þín afstaða til starfs- loka? „Starfslok eiga að vera sjálfsögð og ánægjuleg tímamót í lífi okkar - og eiga ekki að koma á óvart. Eins og rætt var um á ráðstefnunni er mikil- vægt að fara að huga að ellinni upp úr fimmtugu, og viturlegt að leggja fyrir til efri áranna, í stað þess að þurfa að spara á eftirlaunum. Öll sveitarfélög ættu að styðja fólk á miðjum aldri í að hittast og ræða um væntanleg starfs- lok. I Hana-Nú hópnum undirbýr fé- lagsfólk sig vel fyrir þessi tímamót. Hann var stofnaður hér í Kópavogsbæ fyrir 15 árum, og við sjáum mikinn ár- angur af starfi hans. Hins vegar tel ég, að ótímabær starfslok séu þjóðfélaginu dýr, þegar fólki á miðjum aldri er sagt upp störf- um og lendir síðan í því að fá endur- tekna neitun um störf, sem brýtur það niður og veldur andlegri og líkamlegri vanlíðan. En það er eins og enginn beri ábyrgð á þessum aðgerðum og af- leiðingum þeirra. Reyndar finnst mér almennt að enginn beri ábyrð í þjóðfélaginu, varla á lífi sínu. Foreldrar varpa ábyrgð af uppeldi bama sinna yfir á leik- og grunnskóla sem bera takmarkaða á- byrgð. Og ábyrgð opinberra aðila er afar fljótandi, til dæmis ber enginn á- byrgð á eiturlyfjavandanum, hvorki neytendur né seljendur. Allir varpa á- byrgðinni yfir á einhvern NN.“ - Freistandi að hugsa sér, að NN sé markaðurinn sem virðist stjórna flestu í nútímaþjóðfélagi. „Já, markaðurinn stjórnar lleim en okkur grunar, hvað maður borðar, hvað maður kaupir, hvað maður gerir, en ég sé ekki að hann beri ábyrgð. Upplýsingaflæðið er svo mikið, að venjulegur maður á ekki möguleika á að meta, hvað hann raunverulega vill. Brýnt er orðið að kenna rökhugsun í grunnskólum, svo að uppvaxandi kyn- slóð kunni að meta gæði upplýsinga og eigi möguleika til að velja og hafna á eigin forsendum.“ - Er eldra fólkið einnig ofurselt? „Já, mikil ósköp! Það væri nú meira misréttið, ef markaðurinn hugs- aði ekki lfka fyrir eldra fólkið - segði því hvernig það á að skemmta sér, klæða sig og hvar það á að búa. Eg er þeirrar skoðunar, að fólk á öllum aldri eigi og geti notið lífsins saman í sátt og samlyndi. Þess vegna tel ég, að það eigi að vera eitt félagsheimili fyrir fólk á öllum aldri. Þar væri hægt að vera með popptónlist kl. 5 fyrir þá sem það vilja, gamla dægurtónlist kl. 7, svo að eitthvað sé nefnt. Þannig ættu þeir yngri meiri möguleika til að skyggnast inn í hugmyndaheim þeirra eldri, og þeir eldri fengju betri tæki- færi til að skilja þá sem yngri eru.“ - Nú er hugmyndaheimur eldra fólksins mjög margbreytilegur. „Vissulega. Eldri kynslóðin er lík- lega með ólíkastan bakgrunn af öllum þeim sem mynda íslenskt samfélag. Margir hafa kynnst sveitastörfum, þar sem handverkfæri voru notuð, og því gengið í gegnum stökkbreytingu frá bændasamfélagi yfir í hátæknisamfélag. En eldra fólkið er eins ólíkt og það er margt, ekkert eitt hentar fyrir alla. það væru góð tímamót á Ari aldraðra, ef fólk gæti hætt að tala um okkur og þau. Öll þessi kynslóðahólfun í þjóðfé- laginu er til hins verra, eins og að setja lög um fólk, sem á ekkert sam- eiginlegt nema að vera gamalt. Eiga aldraðir ekki rétt á heilbrigðis- og fé- lagsþjónustu eins og aðrir, án sérstakr- ar lagasetningar? Mér finnst að það jaðri við mannréttindabrot að stefna 30

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.