Listin að lifa - 01.12.1998, Síða 38

Listin að lifa - 01.12.1998, Síða 38
ulsvið og bylgjur frá gervihnattardiski. Eftir að þetta var allt lagað hefur barn- ið sofið á hverri nóttu og heilsast vel. Einnig geta rafsegulsvið sem myndast í bílum haft slæm áhrif á börn. MEÐ HVERJU ER LAGAÐ? Sérstök efnasamsetning sem ég er bú- inn að finna upp og steypi í hólka úr ryðfríu stáli, upphefur þessa jarðgeisla og rafsvið. Gegn geislum frá gervi- hnattadiskum og frá GSM-símasend- um nota ég sérstakar spólur úr kopar- vír. Oft er hægt að komast fyrir þessa geisla í álklæddu húsunum með því að jarðtengja álklæðninguna, en það kemur ekki í veg fyrir að rafsvið myndist innandyra, ef rafmagnstöfl- urnar eru óupphertar. Þau eru merkileg þessi svið. Eg er búinn að reyna mörg efni og margar aðferðir gegn þeim, sem hafa dugað í stuttan tíma, endingin er ekki nógu góð. En nú held ég að ég sé búinn að finna efnasamsetningu sem dugar gegn þessu til lengri tíma. 'drujiAjmtj- Siyjií&dáUU Hvers vegna’gáTsítrhenum rafmagnslest, þegar það eina sem hann óskaði sér var myndbandstæki við litasjónvarpið sitt! Öryggishnappur VARA: HNAPPURINN VEITIR HUGARRÓ OG ÖRYGGI bœði fyrír eldri borgara og alla aðstandendur þeirra - alltaf, um allt land, allan sólarhringinn Öryggi og hugarró er eitt af grund- vallaratriðum þess að maðurinn geti lifað eðlilegu og hamingju- sörnu lífi. Stöðug óvissa og ótti við hið óþekkta, sent kannski gerist eða gæti gerst, er slítandi tilfinning og veldur viðkomandi bæði andlegri og líkamlegri vanlíðan. Það veldur streitu að hafa stöðugar áhyggjur. Gott dærni um hvernig hægt er að öðlast hugarró og forðast óþarfar áhyggjur er þegar eldri borgari, sem býr enn í eigin húsnæði, fær sér öryggishnapp frá Vara. Örygg- ishnappurinn er ávallt við hendina, á úlnlið, um háls eða festur við fatnað þar sem þægilegt er að ná til hans. BEINT TALSAMBAND VIÐ STJÓRNSTÖÐ VARA Öryggishnappurinn er þráðlaus og tengist síma hússins. Sending frá honurn berst til stjórnstöðvar hvaðan sem er úr íbúðinni. Sá sem þarf eða kýs að hafa öryggishnapp sér við hlið, getur treyst því að starfsmenn Vara eru alltaf nálægir og koma til aðstoðar ef þörf er á. Ef þrýst er á hnappinn kemst á beint talsamband við stjórnstöð VARA. Þetta talsamband dregur vel unt alla íbúðina og þó viðkomandi tali lágri röddu heyra starfsmenn Vara vel í honum. Vari sér um að læknir og sjúkrabifreið séu send á staðinn ásamt því að hafa samband við aðstandendur. Allar aðgerðir fara um fullkomnustu stjórnstöð lands- ins sem Vari rekur í samstarfi við Neyðarlínuna 112. ÞRÁÐLAUS REYKSKYNJARI OG INNBROTSVIÐVÖRUN Þráðlaus reykskynjari getur einnig tengst öryggishnappinum þannig að sérstök boð um eld og reyk berast til stjórnstöðvar, sern gerir slökkvi- liði þá tafarlausl viðvart. Sama gildir um innbrotsviðvörun sem einnig er tengd þráðlaust við stjórnstöð í gegnum neyðarhnapp- inn. Þannig má segja að þessi litli hnappur sé í raun allsherjar örygg- iskerfi fyrir íbúa hússins og íbúðina sjálfa. HÆGT AÐ BÚA LENGUR í EIGIN ÍBÚÐ Það er ekki aðeins að verjast megi afleiðingum alls konar óhappa og Öryggi og hugarró er grund- vallaratriði þess að hægt sé að lifa heilbrigðu og eðlilegu lífi slysa sem orðið geta, með því að bera öryggishnapp. Ekki er síður mikilvægt að fólk getur búið lengur í eigin íbúð. Öryggishnappur er þar góður liðsmaður. Hinn aldraði og aðstandendur hans geta verið ör- uggir og með fulla hugarró, því hnappurinn tryggir að ekkert fer úr- skeiðis án þess að stjórnstöð Vara bregðist samstundis við. VARI ER ELSTA ÖRYGGIS- FYRIRTÆKI LANDSINS Öryggishnappur Vara kemur fleir- um að notum heldur en öldruðum, sem búa einir. Slíkur búnaður kem- ur ekki síður að notum þar sent fleiri búa. Ef fólk þarf að bregða sér af bæ er hnappurinn ómetanlegt öryggistæki. Vari er elsta öryggisfyrirtæki landsins og verður þrjátíu ára á næsta ári. 38

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.