Listin að lifa - 01.12.2003, Qupperneq 23

Listin að lifa - 01.12.2003, Qupperneq 23
Sjálfboðaliði fyrir aldraða í 23 ár Cubrún Sigurbergsdóttir er stofnandi Styrktarfé- lags aldrabra á Suburnesjum Sagan á bak við stofnun Styrktarfélags aldraðra á Suður- nesjum minnir á ævintýri. Ég heyrði hana svona: Skósmið- urinn í Keflavík átti fjórar dætur sem allar eru kenndar við hann: Gunna skó, Erla skó, Rósa skó og Erna skó. Sigur- bergur skóari missir eiginkonuna frá ungum dætrum og fær sér ráðskonu til að sjá um heimilið. Dæturnar eru á miðjum aldri þegar faðir þeirra deyr og ráðskonan öldruð. Hún neitar að búa lengur í Keflavík. Nú voru góð ráð dýr. Gunna skó gerir sér ferð með ráðskonuna til Gísla í Hvera- gerði sem segir við hana: „Ég skal taka prímadonnuna, ef þú vilt gera eitthvað fyrir aldraða á Suðurnesjum.” Þetta var í júlí 1973. í febrúar 1974 er Gunna skó búin að stofna Styrktarfélag aldraðra á Suðurnesjum. „Frumkvæðið að því að fara með ráðskonuna hans pabba til Hveragerðis kom frá Kjartani héraðslækni sem var alveg ein- stakur maður,” segir Guðrún. Stefán sonur hennar teiknaði myndina sem á að sýna lífsstarf móður hans. Ennþá hangir skóaraskilti við dymar hjá Gunnu skó. „Er það ekki undarlegt?" segir hún. „Eg sem þoldi aldrei leður- Merki Styrktarfélags aldraðra sem sonur Guðrúnar og Jóns, Stefán Jónsson, teiknaði. lyktina á verkstæðinu hjá pabba, að maðurinn minn, Jón Stefánsson, skuli líka vera skósmiður! Þetta gerist bara svona.“ Og Guðrún segir frá fyrstu kynnum þeirra Jóns á Laugarvatni. Hvernig það var þegar hann fór að vinna á vellinum frá því eldsnemma á morgnana oft fram til ellefu á kvöldin. „Við hittumst bara yfir blánóttina! Pabbi var einn með verkstæðið og orðinn fullorðinn, svo að Jón fór að hjálpa honum og ílengdist þar.“ „Já,“ segir Jón. „Nú er ég búinn að vinna við skósmíðar í 41 ár. Eg er síðasti skóarinn á Suðurnesjum.“ Jón rekur skóverkstæði í bflskúrnum. Eg sit yfir notalegu kaffiborði hjá Guðrúnu og Jóni. Datt inn á heimilið með engum fyrirvara og hef á tilfinningunni að hingað detti oft inn gestir, svo vel taka húsráðendur á móti fólki. „Elskan mín, hjá mér er enginn gestur. Hingað koma bara vinir mínir.“ Oft er gestkvæmt í þessu litla húsi. Guðrún og Jón byggðu húsið 1952 og fluttu inn í eitt herbergi og eldhús ‘53, ekki af því að húsið væri ekki tilbúið. Nei, herinn var að koma og húsnæðisekla mikil. „Þá datt engum í hug að byggja. Tímamir voru þannig. Við seldum sófasettið til að eiga fyrir teikningum. Fyrsta árið bjuggu hjón hjá okkur. Eg eignaðist þriðja barnið okkar héma í stofunni með tvö böm sofandi hjá mér. í herberginu til hliðar var önnur sem átti von á barni.“ Guðrún segir líflega frá með lýsandi svipbrigðum. Hún er litríkur persónuleiki sem passar vel inn í ævintýrið, enda ekki fyrir alla að ná saman sjálfboðaliðum og stofna félag fyrir aldraða. „Þetta var nú ekki auðvelt! Hér var bara kvenféla^ með eitt ball á ári og elliheimili gefið af góðum manni. Eg gekk á milli til að fá fólk til að vera með. Oft var sagt við mann: „Sniðugt! Þetta vantar svo mikið hérna, en ég má bara ekki vera að þessu - hef svo mikið að gera.“ Sem betur fer fékk Guðrún líka önnur svör, annars hefði Styrktarfélagið aldrei litið dagsins ljós. „Byrjaðu bara, þá kemur það,“ sagði Gísli kenndur við Grund og gamla fólkið. Hann var vítamínsprautan á bak við þetta. Hann sagði líka: „Guðrún mín, eftir því sem koma meiri aurar inn hjá mér, því meira get ég gert fyrir aldraða.“ Og hann stóð við það. Gaf okkur bækur til að selja og peninga. Bauð okkur í vikudvalir til Hveragerðis í einskonar sumarfrí. 23

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.