Bæjarins besta - 16.04.2014, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2014
Auglýsing um breytingu
á skipulagi ásamt umhverfisskýrslu,
Fossárvirkjun, Ísafjarðarbæ
Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn
Ísafjarðarbæjar samþykkt ofangreinda breytingu deiliskipulagi ásamt
umhverfisskýrslu á fundi sínum þann 10. apríl 2014.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir fjórum lóðum ásamt byggingarreit-
um eru skilgreindar innan skipulagssvæðisins, þar af eru þrjár lóðir
fyrir núverandi byggingar, þ.e. stöðvarhús, bílskúr og sumarhús. Ný
lóð og byggingarreitur eru skilgreind fyrir nýtt stöðvarhús u.þ.b. 280 m
neðan við núverandi stöðvarhús.
Gert er ráð fyrir allt að 160 m² stöðvarhúsi innan byggingarreits á lóð
C. Fjarlægð lóðar C frá Langá skal að lágmarki vera 10 m. Húsið skal
vera lágreist og falla vel að náttúrulegu umhverfi og mannvirkjum í ná-
grenninu. Heimilt er að móta landið innan lóðar í þessum tilgangi. Hönn-
un stöðvarhúss skal miðast við að húsið stendur á ofnaflóðahættusvæði.
Heimilt er að endurbæta byggingar á lóðum A, B og D. Núverandi
stöðvarhús á lóð A mun þjóna Nónhornsvatnsvirkjun líkt og áður, en
auk þess mun byggingin áfram hýsa núverandi Fossavatnsvél sem
verður notuð sem varavél ef á þarf að halda. Gert er ráð fyrir að í stöðv-
arhúsinu geti einnig verið starfrækt safn þar sem gömlu vélarnar verða
til sýnis. Ekki er gert ráð fyrir breyttri nýtingu sumarhúss á lóð B eða bíl-
skúr á lóð D. Gert er ráð fyrir afar lítilli viðveru í öllum byggingum á
svæðinu, líkt og verið hefur hingað til.
Gert er ráð fyrir nýrri þrýstivatnspípu frá Fossavatni að stöðvarhúsi á
lóð C. Gert er ráð fyrir að heildarlengd þrýstivatnspípunnar verði allt að
1950 m en núverandi þrýstivatnspípa er um 1800 m löng. Vatnspípan
skal falla vel að landslagi og ekki trufla vatnsrennsli Langár þar sem
hún þverar ána.
Engin breyting verður á miðlunarlóni eða stíflu og tengdum mann-
virkjum. Heildarafl hennar fer úr 600 kW í 1200 kW
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum í Stjórnsýslu-
húsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði og á heimasíðu Ísafjarðarbæjar www.
isafjordur.is frá og með 16. apríl 2014 til og með 28. maí 2014. Þeim
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að
gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Skila skal inn athuga-
semdum á bæjarskrifstofu Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnar-
stræti 1, Ísafirði. Þeir sem ekki gera athugasemdir við skipulagstillöguna
fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
Ísafirði 11. apríl 2014.
Jóhann Birkir Helgason, sviðstjóri
umhverfis- og eignasviðs.
Matsáætlun HG komin í næsta fasa
Hraðfrysihúsið – Gunnvör hf.
hefur lagt fram tillögu að mats-
áætlun fyrir umhverfismat á 7000
tonna fiskeldi í Ísafjarðardjúpi. Í
janúar kynnti HG drög að mats-
áætluninni og hélt fjölmennan
kynningarfund á Ísafirði þar sem
áform fyrirtækisins voru kynnt.
Kristján G. Jóakimsson, verkefn-
isstjóri fiskeldis hjá HG, segir að
eftir kynningarfundinn hafi HG
fundað með hagsmunaðilum, s.s.
rækjusjómönnum, veiðiréttar-
höfum og Ferðamálasamtökum
Vestfjarða og að tekið hafi verið
tillit til sjónarmiða þeirra við skrif
tillögunnar. Í stórum dráttum
hefur þó matsáætlunin ekki breyst.
Kristján segist vonast til að
Skipulagsstofnun klári umhverf-
ismatið í haust en þá tekur við
umsókn um starfsleyfi hjá Um-
hverfisstofnun og rekstarleyfis-
umsókn hjá Fiskistofu. Ef nýtt
fiskeldisfrumvarp sjávarútvegs-
ráðherra verður að lögum mun
það ferli ganga mun fljótar fyrir
sig þar sem starfs- og rekstrar-
leyfi verður á hendi einnar stofn-
unar, þ.e. Matvælastofnunar. „Ef
hlutirnir ganga hratt og vel fyrir
sig þá gætum við verið komnir
með leyfi um næstu áramót,“ seg-
ir Kristján.
Aðspurður hvort að möguleiki
sé á því að seiði verði sett í sjó
sumarið 2015 segir Kristján það
velta á því hvort HG kaupi seiði
á næsta ári eða rækti sín eigin í
eldisstöðinni á Nauteyri. „Það er
möguleiki að kaupa seiði og setja
þau út 2015 en við höfum ekki
tekið neina ákvörðun um það en
við viljum byrja sem fyrst,“ segir
Kristján.
Áform HG eru að ala 6.800
tonn af regnbogasilungi í ár-
gangaskiptu eldi í Ísafjarðar-
djúpi. Innifalið í matsáætluninni
er einnig 200 tonna þorskeldi en
HG hefur stundað það í meira en
áratug en er að draga verulega úr
því. – smari@bb.is
Fasteignasala Vestfjarða á Ísa-
firði auglýsir um þessar mundir
eftir fasteignum á skrá á Ísafirði
og í öðrum byggðum á norður-
svæði Vestfjarða. Guðmundur
Óli Tryggvason fasteignasali
segir of snemmt að segja hvort
markaðurinn sé eitthvað að breyt-
ast að ráði, en alltaf komi einhver
kippur í söluna á vorin. Salan
hafi verið góð að undanförnu en
meiri fjölbreytileika vanti í fram-
boðið á eignum á söluskrá. Í
heildina hafi markaðurinn verið
nokkuð stöðugur síðustu ár. Bæði
á Ísafirði og í Bolungarvík eru
það aðallega einbýlishús af ýms-
um stærðum sem seljast núna,
segir hann, en líka hafi verið
þokkaleg sala í minni íbúðum.
„Það sem kannski helst hefur
vantað hérna til lengri tíma eru
íbúðir sem henta fólki sem er að
minnka við sig, og svo fleiri ein-
býlishús,“ segir Guðmundur Óli.
Hann nefnir líka íbúðir í lyftuhús-
um. „Hér á Ísafirði eru ekki nema
tvö fjölbýlishús með lyftum,“
segir hann.
Verðþróunin hefur verið hægt
og sígandi upp á við undanfarin
ár, að sögn Guðmundar Óla, þó
ekki sé um mikla hækkun á fast-
eignaverði að ræða. Hann segir
að hrunið hafi ekki haft mikil
áhrif á fasteignaverð á svæðinu.
Verðið hafi haldist hér fyrir vest-
an enda hafi hækkunin í bólunni
fyrir hrun ekki verið mikil. „Salan
hér á Ísafirði var dræm á árunum
2008-2009 og fram á árið 2010
en svo tók þetta aðeins við sér og
verðið hefur aðeins farið hækk-
andi síðan þá. Í Bolungarvík hef-
ur hækkun fasteignaverðs verið
heldur meiri síðustu tvö ár“, segir
Guðmundur Óli Tryggvason hjá
Fasteignasölu Vestfjarða.
Fasteignir vantar á söluskrá
„Fyrirkomulagið verður þann-
ig að fimm kennsludögum verður
bætt við önnina. Kennt verður á
þriðjudegi eftir páska, á sumar-
daginn fyrsta og þrír kennslu-
dagar koma í stað prófdaga 12.-
14. maí. Einum prófdegi verður
bætt við 22. maí. Útskriftardagur
verður laugardaginn 24. maí eins
og fyrirhugað var,“ segir Jón
Reynir Sigurvinsson skólameist-
ari Menntaskólans á Ísafirði.
Að sögn Jóns Reynis voru nið-
urstöðurnar kynntar fyrir nem-
endum skólans í morgun. Á vef
skólans segir að mikil vinna sé
fyrir höndum hjá nemendum og
kennurum næstu vikurnar og
mikilvægt að nemendur mæti vel
í kennslustundir og sinni náminu
af kappi það sem eftir lifir annar.
– harpa@bb.is
Útskriftardagur
í MÍ óbreyttur