Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2008, Side 2
Þorleifur Gunnlaugsson, borgar-
fulltrúi Vinstri grænna, gagnrýn-
ir harðlega vinnubrögð innri end-
urskoðunar Reykjavíkurborgar og
Velferðarráðs sem gera ekki at-
hugasemdir við að gengið skuli að
næstlægsta tilboði í rekstur íbúða
fyrir einstaklinga sem þarfnast fé-
lagslegrar aðstoðar og endurhæfing-
ar vegna áfengis- og fíkniefnaneyslu.
Innri endurskoðun Reykjavíkurborg-
ar gerir ekki athugasemdir og telur
rök Velferðarsviðs um að ganga að
tilboði Heilsuverndarstöðvarinnar/
Alhjúkrunar málefnaleg. Lægsta til-
boð átti SÁÁ.
Þorleifur segir að ekki hafi ver-
ið hrakið að tilboð SÁÁ hafi verið
lægst, en því hafi verið haldið fram
að Heilsuverndarstöðin/Alhjúkrun
sé betur í stakk búin til að sinna verk-
efninu á faglegan hátt. Tilboð SÁÁ
nam 33,4 milljónum á ári með hús-
næðiskostnaði en tilboð Heilsu-
verndarstöðvarinnar um 41
milljón króna án hús-
næðiskostnaðar.
Í skilum ehf.
gjaldþrota
Borgaryfir-
völd telja veiga-
mikil rök að
Heilsuverndar-
stöðin/Alhjúkr-
un hafi aðgang
að ákveðnu hús-
næði í austur-
bænun sem þykir
hentugt. „Mér hef-
ur verið bent á að
hvorki sé til staðar
kaupsamningur né
löggiltur leigusamn-
ingur um húsnæðið
og hugsanlega
verði
það ekki falt á næstunni og þarf þetta
frekari skoðunar við,“ segir Þorleifur í
yfirlýsingu sinni.
Um er að ræða sex raðhús að
Hólavaði 1 til 11. Í tilboði Heilsu-
verndarstöðvarinnar eða Inpro, for-
vera þess, er ráð fyrir því gert að þrír
til fjórir einstaklingar búi í hverri
íbúð, en hver þeirra er um 150 fer-
metrar.
Eigandi íbúðanna er félag sem
heitir Í skilum ehf., en samkvæmt
vottorði úr fyrirtækjaskrá var þetta
félag úrskurðað gjaldþrota 8. apríl
síðastliðinn, löngu eftir að Inpro, nú
Heilsuverndarstöðin, gerði sitt til-
boð.
Í skilum ehf. er í eigu Sigtryggs A.
Magnússonar, en tilgangur félagsins
er fjárfestingar í fasteignum, útleiga
á fasteignum, fasteignaviðskipti og
rekstur fasteigna. Sigtryggur seg-
ir í samtali við DV að þessi staða
mála trufli ekki þau áform að leigja
Heilsuverndarstöðinni íbúðirn-
ar til áðurgreindra nota. Í rauninni
hafi gjaldþrotakrafa verið til komin
vegna ágreiningsmála við tollayfir-
völd. Hann segir að íbúð-
irnar verði skráðar á
félag sem ber nafnið
Hagur ehf. Unnið
sé að því að ljúka
smíði íbúðanna
við Hólavað.
Ekki orð
frá innri
endur-
skoðun
Af um-
sögn innri
endurskoð-
unar Reykja-
víkurborgar
er ekki að sjá
að þessi þáttur
málsins hafi ver-
ið sérstaklega kannaður þegar veitt
var umsögn um tilboð Heilsuvernd-
arstöðvarinnar og SÁÁ þann 10. júní
síðastliðinn. Þar segir meðal annars:
„Það er mat Innri endurskoðunar,
stutt ítarlegri rökstuðningi sem nú
liggur fyrir, að málefnalegar forsend-
ur liggi að baki þeirri ákvörðun þar
sem sú umsókn var talin hagkvæm-
ust m.t.t. heildarlausnar.“
DV er ekki kunnugt um hvort unn-
ið sé að því að ljúka smíði umræddra
húsa á vegum þrotabús Í skilum ehf.
og samkvæmt ósk skiptastjóra.
Einkennileg stefna
Velferðarráðs
Þorleifur Gunnlaugsson, borg-
arfulltrúi VG, segir að sú fullyrðing
Stellu Víðisdóttur, sviðsstjóra Vel-
ferðarsviðs Reykjavíkurborgar, að
það sé eitt af markmiðum „Velferð-
arsviðs að styðja við þróun og sam-
keppni á markaði í félags- og heil-
brigðisþjónustu“ sé með ólíkindum.
„Velferðarráð hefur aldrei markað
sér þessa stefnu enda er einkavæð-
ing félags- og heilbrigðiskerfisins eitt
helsta deiluefni samfélagsins. Þetta
skýrir þó vilja meirihluta Velferðar-
ráðs til að taka tilboði einkaaðila á
markaði frekar en almannasamtaka
þó þau síðarnefndu geti boðið betur
einfaldlega vegna þess að þau þurfa
ekki að færa eigendum sínum arð,“
segir Þorleifur í yfirlýsingu sinni.
Byrgisfíklar í húsnæði
Ósk um að koma á fót og starf-
rækja félagslegt húsnæði fyrir fíkla
sem þarfnast endurhæfingar barst
borgaryfirvöldum frá félags- og
tryggingamálaráðuneytinu í fyrra í
kjölfar þess að starfsemi Byrgisins
var lögð niður. Þannig má búast við
að hluti þeirra sem koma til með að
njóta þessa nýja úrræðis sé fyrrver-
andi vistmenn Byrgisins.
mánudagur 16. júní 20082 Fréttir DV
Verði áform Heilsuverndarstöðvarinnar að veruleika munu um 20 fíklar í endurhæf-
ingu fá inni í raðhúsum við Hólavað 1 til 11 í Reykjavík, þeirra á meðal fyrrum skjól-
stæðingar Byrgisins. Húsin eru ófullgerð og félagið sem reisti þau hefur verið úrskurð-
að gjaldþrota. Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar fjallaði ekkert um þennan þátt
málsins þegar hún lagði blessun yfir tilboð Heilsuverndarstöðvarinnar í reksturinn.
Heimili fyrir
fíkla í uppnámi
Jóhann hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Mikil óánægja ríkir meðal bæjar-
fulltrúa minnihluta Sjálfstæðisflokks
í Vesturbyggð með fjárstyrki sem svo-
kallað Sjóræningjahús á Patreksfirði
nýtur. Samkvæmt bókun flokksins var
verkefnið kynnt á þann hátt að um
nýsköpun í formi nýstárlegrar afþrey-
ingar væri að ræða og bæjarstjórnin
ákveðið að veita hlutaðeigandi afnot
af húsi í eigu bæjarins endurgjalds-
laust.
Síðan hafi komið upp úr dúrnum
að veitingastaður var opnaður í hús-
inu. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins segja verkefnið hafa siglt undir
fölsku flaggi, jafnvel sjóræningjafána,
og eru æfir yfir því að skattfé almenn-
ings sé varið í samkeppnisrekstur við
veitingahúsaeigendur á Patreksfirði.
Þeir fara fram á að leigusamningnum
verði rift.
„Við erum mjög óánægð,“ segir
Jón B.G. Jónsson, oddviti sjálfstæðis-
manna í Vesturbyggð. „Þessi staður
er náttúrlega í beinni samkeppni við
þessa staði sem þó eru að reyna að
skrimta hér án þess að við séum að
hjálpa þeim sérstaklega.“
Jón Hákon Ágústsson úr Samfylk-
ingunni, varaforseti bæjarstjórnar-
innar, segir ekki tímabært að grípa
til róttækra aðgerða vegna málsins.
Hann segir tvær hliðar á deilunni og
ekki útséð hvort rekstraraðilarnir hafi
blekkt bæjarstjórnina. „Ég myndi nú
vilja leyfa þeim að klára að setja upp
þetta sjóræningjasetur áður en við
förum að dæma hvort þetta sé kaffi-
hús eða hvað,“ segir Jón og bætir við
að húsið hafi verið í niðurníðslu og
gott fyrir bæinn að einhver hafi viljað
gera eitthvað fyrir það.
Bæjarfulltrúar D-listans í Vesturbyggð æfir yfir veitingarekstri bæjarins:
Bærinn borgar Sjóræningjahús
Patreksfjörður Ekki eru
allir á eitt sáttir um
Sjóræningjahús bæjarins
kviknaði í
kapellu
Eldur kom upp í Minningar-
kapellu Jóns Steingrímssonar á
Kirkjubæjarklaustri þegar verið
var að gera við þakið. Slökkvistarf
gekk vel og skemmdir urðu ekki
mjög miklar. Í Hamragarðaheiði
kviknaði í sinu og við það brann
töluvert af trjágróðri. Þar fannst
einnota kolagrill og vindlinga-
stubbar. Af því tilefni brýnir lög-
reglann á Hvolsvelli fyrir fólki að
skilja ekki eftir rusl og glóð sem
getur kviknað út frá því mörg ár
tekur fyrir landið að gróa aftur.
Jarðskjálftabrú
vinnur
Þjórsárbrú á Suðurlandi
hlaut viðurkenningu Norræna
vegasambandsins á ráðstefnu
í Helsinki í Finnlandi um helg-
ina en það var Einar Hafliða-
son sem tók við viðurkenn-
ingunni og skildi. Brúin var
tilnefnd ásamt Eyrarsunds-
brúnni en það voru hæfileikar
Þjórsárbrúarinnar til þess að
mæta öflugum jarðskjálfta, líkt
og reið yfir í lok maí, sem gerði
útslagið. Á sömu ráðstefnu tók
Ísland við stjórn sambands-
ins sem er í fyrsta skiptið í 73
ár. Þess má geta að ráðstefnan
verður haldin hér á landi árið
2012.
fimma varð
að slysi
Ekið var á 17 ára pilt á Ísafirði
klukkan ellefu á laugardagskvöld-
ið samkvæmt fréttavef bb.is. Hafði
drengurinn hlaupið að bifreiðinni
en hann þekkti þar farþega. Skipt-
ust þeir á high-five handahreyf-
ingum en flæktust eitthvað saman
svo að drengurinn hrasaði og féll
í götuna. Fór fótleggur hans und-
ir annað afturdekk bifreiðarinnar.
Marðist hann mikið á fótleggnum
og var lagður inn á sjúkrahúsið til
skoðunar. Þykir mildi að ekki fór
verr.
Bílabrenna
á Selfossi
Tilkynnt var um bruna í
tveimur bílum klukkan tutt-
ugu mínútur yfir sjö á sunnu-
dagsmorgun á Selfossi. Sam-
kvæmt lögreglu er ljóst að um
íkveikju var að ræða. Bílarnir
stóðu fyrir framan sprautu-
verkstæði í iðnaðarhverfi þeg-
ar bruninn uppgötvaðist, en
ólíklegt þykir að þeir hafi þá
staðið lengi í logum.
Þriðji bíllinn varð fyrir
talsverðum hitaskemmdum
af brunanum, en bílarnir sem
um ræðir eru af gerðinni Nis-
san, Volvo og Chevrolet. Að
sögn lögreglu er ekki vitað um
tilgang gjörningsins og enginn
liggur undir grun.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
hólavað 1–11 Veðsettar eignir í
vörslu þrotabús? raðhúsin sex eru
tilgreind í tilboði Heilsuverndarstöðv-
arinnar. Innri endurskoðun reykjavík-
urborgar minnist ekki á málið.
Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG
„Þetta skýrir þó vilja meirihluta Velferðarráðs til
að taka tilboði einkaaðila á markaði frekar en
almannasamtaka þó þau síðarnefndu geti
boðið betur einfaldlega vegna þess að þau
þurfa ekki að færa eigendum sínum arð.“