Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2008, Qupperneq 8
Ekki er í neinum tengslum við raun-
veruleikann að tala um hækkun
fasteignaverðs þrátt fyrir að vísitala
íbúðaverðs hafi hækkað um hálft
prósent á milli mánaða. Þegar tekið
er tillit til verðbólgu er ljóst að fast-
eignaverðið fer áfram lækkandi að
raunvirði. Ásgeir Jónsson, forstöðu-
maður greiningadeildar Kaupþings,
segir að vísitalan hagi sér undarlega
þegar lítil velta sé á markaðnum.
Þau misvísandi skilaboð sem hún
gefur nú eru dæmi um það.
Ekki raunhæf viðmið
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um
hálft prósent í maímánuði. Mikið
hefur verið gert úr þessu, sérstak-
lega af þeim sem byggja afkomu
sína á fasteignaviðskiptum. Á sama
tíma jókst þó verðbólgan um tæp
1,4 prósent. Raunlækkun fasteigna-
verðs á milli mánaða er því um 0,9
prósent.
Þegar litið er lengra aftur í tím-
ann sést að vísitala íbúðaverðs
lækkaði mjög mikið í apríl, um 1,8
prósent. Mánuðinn áður hafði lækk-
unin verið minni, eða 0,4 prósent.
Með hliðsjón af því hversu stórt
stökk lækkunin tók í apríl þurfa ekki
að vera tíðindi að hún hækki örlítið
aftur tímabundið.
Kaupsamningum fækkar um
hundruð
„Það er biðstaða á fasteigna-
markaði,“ segir Ásgeir og bendir á
að þegar viðskiptin eru lítil þarf ekki
marga samninga til að skekkja töl-
una.
Rúmlega 200 færri kaupsamn-
ingar voru þinglýstir á höfuð-
borgarsvæðinu aðra vikuna í
júní miðað við sama tíma
í fyrra. Aðra vikuna í
júní voru 47 kaup-
samningar þing-
lýstir en fyr-
ir ári voru
þeir 252. Heildarveltan var rétt tæp-
ir 1,3 milljarðar króna en var tæpir
6,9 milljarðar króna á sama tíma í
fyrra.
Skekkir niðurstöðuna
Ásgeir segir vísitölu fasteigna-
verðs ekki gæðaleiðrétta, það er
leiðréttir ekki fyrir atriði sem
hafa áhrif á gæði íbúðar-
húsnæðis. Fjölbýlis-
húsnæði á ódýrum og lítt eftirsótt-
um stað fer því inn í hana á sama
hátt og lúxusíbúðir miðsvæðis.
Ásgeir tekur dæmi af hruni á fast-
eignamarkaði árið 1993. Þá sýndu
mælingar að meðallaun bygginga-
verkamanna hækkuðu á sama tíma
og byggingariðnaðurinn var á nið-
urleið. Ástæðan fyrir þessu var sú að
þegar engin verk var að fá var hand-
löngurum sagt upp störfum. Þannig
stóð fasti kjarninn eftir hjá fyrirtækj-
unum og skekkti meðaltalið því ekki
var leiðrétt fyrir þessa breytingu.
Litlar breytingar í sumar
Undanfarnar vikur hafa viðskipti
með litlar eignir verið algengastar,
meðal annars vegna þess að fæstir
fá lán vegna þeirra stærri. Almennt
er fermetraverð minni eignanna
hærra og bætist það því við til að
skekkja heildarmyndina.
Þegar jafnfáar eignir skipta
um hendur og raun ber vitni
þarf síðan ekki marga sölu-
samninga til að hafa
mikil áhrif, ýmist
til hækkunar
eða lækkun-
ar vísitöl-
unnar.
Óvissa
um framhald-
ið einkennir
fasteignamark-
aðinn um þess-
ar mundir. Ás-
geir býst ekki við
að miklar breyting-
ar eigi sér þar stað
í sumar. Til að
markaðurinn
fari af stað
þarf ákveðnar breytingar í efna-
hagsumhverfinu, og þar fara vaxta-
lækkanir, styrking á gengi krónunn-
ar og lækkun á verðbólgu fremstar
í flokki. Mögulega þurfa þó frekari
lækkanir fasteignaverðs að koma til
áður en breytinga verður vart.
Útlitið á fasteignamarkaði er
hins vegar ekki bjart. Spáð er allt að
14 prósenta verðbólgu á næstunni,
íbúðafjárfesting hefur dregist veru-
lega saman og almennt er snögg
kólnun í efnahagslífinu. Þegar þetta
leggst ofan á þá staðreynd að fast-
eignaverð hefur hækkað gríðarlega
frá árinu 2004 er líklegasta útkoman
enn frekari lækkun á fasteignaverði,
líkt og Seðlabankinn hefur spáð.
mánudagur 16. júní 20088 Fréttir DV
„Vísitalan hegðar sér
undarlega ef það er lítil
velta á markaðnum.“
ErLa HLynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
TAPA FIMMTUNGI AF ÍBÚÐARVERÐI
Þeir sem keyptu 25 milljóna króna íbúð um áramótin hafa nú tapað 2,5 milljónum vegna viðskiptanna. Ekki er
enn kominn tími til fjárfestinga því þeir sem nú kaupa 25 milljóna króna íbúð munu tapa tæpum 3,4 milljónum
á komandi ári. Heildartap íbúðarkaupanda um áramótin myndi því nema um 5 milljónum á átján mánuðum.
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
Fimmtudagur 17. janúar 2008 da
gblaðið vísir 11. tbl. – 98. árg. – ve
rð kr. 295
ekki kaupa íbúð
blásið til sóknaR á vatnsleysustRönd:
berjast
gegn
glæpum
dv sport
>> Landsmenn ættu að varast að kaupa s
ér húsnæði á næstunni. Þetta er álit viðmæ
lenda DV sem leggja mat á fasteignamark
aðinn í dag. Verðbólga, háir vextir og vísb
endingar um að
fasteignaverð haldi ekki í við verðbólgu á
næstunni er meðal þess sem gerir húsnæ
ðiskaup óráðleg í dag. Þá er láglaunafólk s
érstaklega hvatt til að bíða nokkuð með a
ð kaupa sér
íbúðarhúsnæði, alla vega þangað til stjórn
völd hafa ákveðið hvort og þá hvernig þa
u komi til móts við fólk vegna stöðunnar á
fasteignamarkaði.
fréttir
bjargaði
mömmu
>> Tveggja ára sonur Söru Rósar Kavanagh
varð henni til bjargar þegar tveir menn
vopnaðir öxi og hnífi brutust inn.
Íbúar í Vogum hafa áhyggjur af ofbeldi og
glæpum. Handrukkun um síðustu helgi og
íkveikja í lúxusbílum er til marks um aukna glæpi.
Þá hefur íbúum sem hafa komist í kast við lögin
fjölgað síðustu ár. sjá baksíðu.
veislan
hefst
rotin
epli alls
staðar
fréttir
fréttir
>> „Allar þjóðir eiga sín rotnu epli,“ segir
Katarzyna Kraciuk. Hún og Silvia Kryszewsk
a
vinna að aðlögun innflytjenda og útlend-
inga í Reykjanesbæ. Þær vilja að Íslendingar
læri líka að aðlagast útlendingum.
>> EM í handbolta hefst í dag. Íslenska
liðið ræðst ekki á garðinn þar sem hann
er lægstur, Svíar eru mótherjar dagsins.
Háklassa
djass á nasa
>> „Þetta eru allt mjög uppteknir
menn og allir í hálfgerðum
meistaraflokki,“ segir Björn
Thoroddsen um félaga sína í Cold
Front. Hljómsveitin heldur tónleika
á Nasa um helgina. Hljómsveitin er
að verða fimm ára en þetta er í
fyrsta skipti sem hún spilar á Íslandi.
Forsíða DV 17. janú r dV varaði við
yfi v f di kreppu á fasteignamarkaði
í janúar síðastliðnum. á hálfu ári hefur
kaupandi venjulegrar íbúðar tapað 2,5
milljónum króna.
Verðgildi íbúðar minnkar
íbúðarverð janúar 2008 25 milljónir
Verðrýrnun vegna lækkunar íbúðar* - 625 þúsund
Verðrýrnum vegna verðbólgu** - 1,83 milljónir
Verðgildi íbúðar nú 22,54 milljónir
Tap á íbúðarkaupum frá áramótum 2,46 milljónir
* íbúðaVerð hefur lækkað 2,5 prósenT frá áramóTum.
** Verðbólga hefur aukisT um 7,3 prósenT frá áramóTum.
Vafasöm vísitala ásgeir jónsson segir vísitölu
fasteignaverðs ekki alltaf gefa rétta mynd af
markaðnum. Vísitalan nú sýnir verðhækkun á
fasteignamarkaði en í raun halda lækkanir áfram.
„Við vonum að þeir sem eru sjá-
andi geti þarna fengið smá nasasjón
af því að vera blindir. Þarna getur
fólk upplifað hvernig það er að sjá
ekki og borðað og drukkið í myrkr-
inu,“ segir Bergvin Oddsson hjá
Ungblind, ungmennadeild Blindra-
félags Íslands. Hann er einn af fimm
blindum og sjónskertum ungmenn-
um sem þjóna til borðs á myrkvuðu
kaffihúsi í sumar.
Kaffihúsið verður opnað í húsi
Blindrafélagsins í Hamrahlíð á þjóð-
hátíðardaginn og verður opið til 20.
júlí. Hægt verður að gæða sér á kaffi,
bakkelsi, súpu og léttum sérréttum
á kaffihúsinu. Allt verður þar með
hefðbundnum hætti, nema hvað að
enginn sér nokkurn skapaðan hlut.
Myrkvuð kaffihús sem þessi eru
víða í erlendum stórborgum og yf-
irleitt eru það blindir sem þjóna til
borðs enda hægara sagt en gert fyrir
aðra að rata í myrkrinu.
Löngum hefur verið talað um að
með því að útiloka eitt skilningar-
vit eflist önnur og því er það sérstök
upplifum fyrir hina sjáandi að borða
í kolsvarta myrkri.
Bergvin talar sérstaklega um
þekkt myrkvað veitingahús í Berlín
og er fyrirmyndin óbeint sótt þang-
að. Ekkert ungmennanna hefur þó
komið þangað.
Auk þess að veita almenningi
nýja sýn inn í heim blindra miðar
þetta verkefni Ungblindar að því að
búa til sumarstörf fyrir blind ung-
menni. Verkefnið er unnið í sam-
vinnu við Hitt húsið og bensínstöð
Orkunnar, en Ungblind hefur síð-
ustu sumur tekið sérstaklega á að-
gengismálum blindra í samstarfi
við Hitt húsið. Orkan styrkir starfið
síðan með bakkelsi og segir Bergvin
að hendinni verði ekki slegið á móti
fleiri styrkjum af því tagi.
Seinna í dag afhendir Ungblind
hvatningarverðlaun þeim sem þyk-
ir hafa skarað fram úr í starfi fyrir
blind ungmenni.
erla@dv.is
Ungmennadeild Blindrafélagsins tekur upp nýjung á Íslandi:
Blindir þjónar á myrkvuðu kaffihúsi
ný sýn
bergvin Oddsson ætlar að
opna augu þeirra sjáandi fyrir
veröld blindra í sumar.