Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2008, Síða 20
mánudagur 16. júní 200820 Sport DV
AdebAyor er dýr Emmanuel adebayor, leikmaður arsenal, gæti
reynst aC milan of dýr kostur og það viðurkennir Silvio Berlusconi,
forseti mílanóliðsins. adebayor gaf það í skyn í síðustu viku að
hann vildi spila fyrir aC milan en talið er að arsenal vilji fá nálægt
30 milljónum punda fyrir leikmanninn. Fyrir vikið er talið líklegt að
forráðamenn ítalska stórliðsins einbeiti sér að Samuel Eto’o og di-
dier drogba í stað adebayor. „Ég veit ekki hvort hann mun klæðast
treyju aC milan. Hann kostar mikið. á mánudag munum við skoða
markaðinn aftur og sjá hvort við getum borgað minna fyrir annan
leikmann,“ segir antonio galliani, aðstoðarforseti aC milan.
MOLAR
VillA Vill liVerpool
Spænska markamaskínan david Villa
viðurkennir að hann sé tilbúinn til þess
að spila fyrir Liverpool í ensku úrvals-
deildinni. Sam-
vinna hans og
Fernando Torres
hefur verið mjög
góð það sem af
er Em 2008 og
forráðamenn
Liverpool gætu
freistast til þess
að fá Spánverj-
ann frá Valencia
til þess að auka sóknarþunga liðsins
á næstu leiktíð. „Liverpool og Chelsea
eru bæði stórlið sem eru góður kostur.
Liverpool er með spænskan þjálfara
og ég á marga vini þar,“ sagði Villa og
ýjaði þar með að því að hann kjósi
frekar að fara til Liverpool.
ToTTenhAm á mArkAðnum
Tottenham ætlar sér stóra hluti á
næstu leiktíð. nýjustu leikmennirnir
sem eru orðaðir við félagið eru Fabric-
io Collocini, leikmaður deportivo La
Coruna, og Cata
diaz sem leikur
með getafe.
Báðir þessir
leikmenn eru
varnarmenn og
ekki veitir af þar
sem jonathan
Woodgate og
Ledley King
eru oft meiddir
þó báðir séu góðir leikmenn. michael
dawson heillaði ekki juande ramos
og í kjölfarið hefur ramos verið á hött-
unum eftir miðvörðum í vörnina. Coll-
ocini er argentínskur varnarmaður en
Barcelona og real madrid hafa bæði
verið orðuð við kappann. Hann hefur
þegar keypt króatíska leikmanninn
milan modric sem farið hefur á kostum
á Em 2008.
Alonso Til JuVenTus
Fjölmiðlar á ítalíu segja Liverpool búið
að samþykkja tilboð frá juventus í
miðjumanninn sterka Xabi alonso.
Kaupverðið er talið nema um 18 millj-
ónum evra eða um 2,2 milljörðum
króna. Búist
er við því að
alonso verði
kynntur sem
nýr leikmaður
juventus um
næstu heldgi
en ítalska liðið
er ekki hætt á
markaðnum.
Branislav Ivan-
ovic, leikmaður Chelsea, ku vera næst-
ur á óskalistanum en hinn 24 ára gamli
varnarmaður fékk lítið að spreyta sig
með Chelsea. juventus leikur í meist-
aradeildinni á komandi leiktíð. Claudio
ranieri er mikið í mun að styrkja lið sitt
og undirbúa það sem best fyrir átökin
næsta vetur.
neTzer segir
VAn bAsTen snilling
Hollendingar eru í skýjunum þessa
dagana vegna frábærrar frammi-
stöðu landsliðsins á Evrópumótinu í
knattspyrnu.
Fyrrum þýska
knattspyrnu-
hetjan gunther
netzer sparar
ekki marco Van
Basten, þjálfara
liðsins, lofið
og segir hann
snilling. „Hann
er einfaldlega
snillingur. Við höfum sjaldan séð slíka
frammistöðu í leikjum á milli lands-
liða. Frakkar sóttu á þá en breytingar
Van Basten í leiknum voru snilldarleg-
ar og hann sótti til sigurs í stað þess að
bíða og verja forystuna. Van Basten er
búinn að sannfæra mig um gríðarlega
hæfileika sem þjálfari í Frakkaleiknum
þar sem hann tók miklar áhættur. Þær
borguðu sig enda var nóg af svæði
fyrir sóknarmennina til þess að sækja
í,“ segir netzer.
ÍTAlir brJálAðir menn innan herbúða ítalíu eru brjálaðir eftir jafn-
tefli gegn rúmeníu í öðrum leiknum í riðlakeppninni á Em. Löglegt
mark var dæmt af Luca Toni auk þess sem rúmenar fengu umdeilt víti.
góð markvarsla gigi Buffon hélt þeim inni í keppninni en leikmenn
liðsins eru ósáttir við dómgæsluna í leiknum. „Leikmennirnir eru reiðir
vegna þess að þeir vita að þeir sýndu góða frammistöðu í leiknum.
markið sem dæmt var af Toni hefði breytt leiknum. dómarinn er þarna
til þess að sinna skyldum sínum og ég vona að hann hafi ekki tekið
ákvarðanirnar út frá því að honum líki illa við okkur. dómarinn var ekki
nógu góður fyrir þennan leik,“ segir gianluca Buffon, markvörður ítalíu.
KR-ingar léku sér að slökum Fylkis-
mönnum og sigruðu 3-0 á heimavelli
sínum að Frostaskjóli. Björgólfur
Takefusa átti skínandi leik og skoraði
þrennu.
Fátt benti til þess að KR myndi
rúlla Fylkismönnum upp framan
af leik en eftir að Björgólfur skoraði
fyrsta markið á 31. mínútu var aldrei
spurning um það hvort liðið myndi
fara með sigur af hólmi. Jónas Guðni
Sævarsson lagði upp markið fyrir
Björgólf, sem skoraði með skalla af
stuttu færi, en þess má geta að Jónas
lék mjög vel og miðjumenn Fylkis
áttu lítið í hann.
Í stað þess að berja sér í brjóst,
koðnuðu Fylkismenn niður við fyrsta
mark KR. Liðið ógnaði aldrei allan
fyrri hálfleikinn og brotalamir voru
á vörninni.
Fjalar bjargaði Fylki
Björgólfur bætti við öðru marki í
upphafi síðari hálfleiks þegar hann
skallaði fyrirgjöf úr aukaspyrnu í
markið. Eftir fylgdu nokkrar ágætar
KR-sóknir og ef ekki hefði verið fyr-
ir góða markvörslu Fjalars í markinu
hefði þriðja markið komið mun fyrr
en það gerði.
Það kom eftir vítaspyrnu sem
dæmd var eftir að Guðmundur Reyn-
ir Gunnarsson hafði farið illa með
varnarmenn Fylkis upp við enda-
línu. Fyrirgjöf hans endaði í hönd Ól-
afs Stígssonar og vítaspyrna var um-
svifalaust dæmd. Björgólfur átti ekki
í vandræðum með að skora úr henni
og staðan orðin 3-0 fyrir KR.
Á lokamínútunum fengu Fylkis-
menn tvö ágæt færi þegar Ian Jeffs
og Halldór Hilmisson skutu beint á
Stefán Loga Magnússon. Að þess-
um skotum undanskildum ógnuðu
Fylkismenn svo til aldrei allan leik-
inn og mikið andleysi einkenndi leik
þeirra.
KR-ingar geta hins vegar andað
léttar eftir hálfdapra byrjun á mótinu.
Liðið er með nokkra léttleikandi leik-
menn og getur spilað fínan fótbolta
þegar sá gállinn er á þeim. Björgólfur
Takefusa lék vel ásamt Jónasi á miðj-
unni en einnig er vert að geta þess að
vörn liðsins var traust, en því hefur
sjaldan verið að fagna í sumar.
björgólfur í formi
Logi Ólafsson, þjálfari KR, hrós-
aði Björgólfi Takefusa fyrir hans
framlag í leiknum. „Hann er að upp-
skera laun erfiðisins, hann er í miklu
betra líkamlegra formi en hann hef-
ur verið,“ sagði Logi. Hann var sáttur
við spilamennskuna. „Við reyndum
að þétta okkur inni á miðjunni og þar
með gat Viktor farið framar. En fyrst
og fremst var þetta sigur liðsandans
og menn sjá bara hvað til þarf til þess
að vinna leiki,“ sagði Logi.
KR komst upp að hlið Fylkis með
níu stig með sigrinum og situr sem
stendur í sjöunda sæti deildarinnar.
Fylkir er hins vegar í áttunda sæti og
hefur leikið einum leik meira.
dauft á Akranesi
Valsmenn sóttu stig á Skagann í
markalausum leik. Bæði lið lögðu
upp með að fá ekki á sig mark og
þeim varð að ósk sinni. Aðeins ör-
sjaldan gerðist eitthvað upp við ann-
að hvort markið en markverðast var
þegar varamaðurinn Andri Júlíusson
fékk rauða spjaldið fyrir að sparka
knettinum í burtu eftir að búið var að
dæma rangstöðu. Andri fékk tvö gul
spjöld en hann var einungis í 11 mín-
útur inni á vellinum.
keflvíkingar á sigurbraut
Andri Steinn Birgisson varð fyr-
ir því óláni að skora sjálfsmark þegar
Keflvíkingar sigruðu Grindavík á úti-
velli í grannaslag. Keflvíkingar hafa
oft leikið betur en þeir gerðu í þessum
leik en eftir standa þrjú stig og Kefla-
vík komst á toppinn með sigrinum.
Þróttarar seigir
Þróttarar héldu áfram uppgangi
sínum þegar félagið lagði HK að velli
2-1 í Laugardal. Hjörtur Júlíus Hjartar-
son og Denni Danry komu Þrótturum
í 2-0 áður en Mitja Brulch minnkaði
muninn úr vítaspyrnu á 31. mínútu.
Þróttur er kominn í fjórða sæti deild-
arinnar með ellefu stig.
TÓmAs ÞÓr ÞÓrðArson
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Keflvíkingar unnu enn einn leikinn í Landsbankadeild karla þegar þeir lögðu granna sína
í Grindavík 0-1 á útivelli. Valur og Skaginn gerðu markalaust jafntefli í bragðdaufum knatt-
spyrnuleik á meðan Þróttarar héldu áfram uppgangi sínum og lögðu HK í Laugardal.
Björgólfur
á skotskónum
Björgólfur í ham Björgólfur
Takefusa skoraði þrennu og lék vel. Hann
á hér í höggi við Kjartan Ágúst Breiðdal.
Hart barist Viktor Bjarki
Arnarson er hér stöðvaður af
Vali Fannari Gíslasyni.