Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2008, Blaðsíða 28
Við kynnumst fjölskyldu sem í
kjölfarið á gríðarlegum hörmung-
um er neydd á flótta. Hörmungarnar
lýsa sér í því að stórir hópar manna
á austurströnd Bandaríkjanna trufl-
ast, tyggja sömu hlutina, ganga aftur
á bak og myrða sig loks á þann hátt
sem aðstæður leyfa. Eitthvað óskil-
greint í loftinu virðist orsaka fjölda-
sjálfsmorð mannskepnanna. Suma
grunar hryðjuverkamenn en aðra
grunar að skýringin sé mun flókn-
ari. Um leið fylgjumst við með ást-
arsambandi Elliot og Ölmu Moore.
Mark Wahlberg túlkar Elliot og
minnir hér enn og aftur á að hann
er enginn stórleikari þótt hann sé
prýðilegur í stökum hlutverkum
sem reyna ekki mikið á leikhæfileik-
ana. Konan hans í þessari ræmu,
Alma, er mun verri og með þeim í
för er einnig illa leikið stúlkubarn.
Þetta er sérstaklega vandræðalegt í
senum þar sem sorg og grátur eiga
að heltaka þrenninguna. Ástarsaga
Elliot og Ölmu er grunn og hallær-
isleg en á stöku stað er í henni vel
heppnuð kímni. John Leguizamo er
fínn en hans rulla er ekki stór.
Myndin er mjög lengi að byrja,
hæg, hálfdauð og hrjáist af alvar-
legum skorti á spennu sem er nú
ekki heillavænlegt í mynd af þessu
tagi. Maður missir athygli og skynj-
ar það léttvægt þegar börn eru skot-
in í hausinn. Það er ekki merki um
áhrif af góðri kvikmyndagerð. En
tónlistin er fín, effektar eru frábærir
og brellurnar eru vel útfærðar. Það
er vel þess virði að sjá hvernig liðið
sem hefur sýkst kemur sjálfu sér fyrir
kattarnef, skýtur sig, gengur fram af
húsþökum, keyrir á og svo framveg-
is. Það er ekkert út á það að setja.
Eftir mikla ládeyðu tekur mynd-
in kipp í seinni partinum. Snar-
geðveik einbúakerling birtist sem
hálfgerður útúrdúr en þar upplifir
maður skyndilega spennu og hryll-
ing sem myndina hefur fram að
því skort. Hápunktur myndarinn-
ar er eflaust þar. Grunnpælingin er
svo sem í lagi og vísar til sambúð-
ar manneskju og náttúru sem er nú
ekki fyrirmyndarefni. En Shyamal-
an er mistækur. Hann hefur gert allt
frá The Sixth Sense sem þótti góð og
allt niður í Lady in the Water sem
er djöflaræpa í kvikmyndaformi.
Happening er að lenda mitt á milli.
Sæmileg afþreying en á köflum var
maður eins og hinir sýktu - byrjaður
að líta í kringum sig að einhverju til
að hoppa fram af.
Erpur Eyvindarson
MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 200828 Fókus DV
á m á n u d e g i
SkítSæmilegt
fjöldaSjálfS orð
Eitt megineinkenni skyndi-
bitastaða er hröð og oft hávær
tónlist. Tónlist sem fólki líður ekk-
ert sérstaklega vel við að hlusta
á, til þess fallin að matargest-
ir staldri ekkert alltof lengi við. Í
stíl við það er innvols ekkert sér-
lega hlýlegt. Þetta fyrra á við um
mexíkóska veitingastaðinn Santa
Maria. Hið seinna ekki. Af því
má draga þá ályktun að hann sé
skyndibitastaður í sauðargæru.
Santa Maria hefur fengið ágæt-
is kynningu í hinum ýmsu blöð-
um frá því hann var opnaður fyr-
ir nokkrum vikum. Staðfestingu á
því má sjá á eins konar korktöflu
sem hangir uppi á staðnum. Fólki
verður skiljanlega tíðrætt um hið
lága verð á veitingunum þar sem
enginn réttur kostar meira en 990
krónur. Ljós í okurmyrkrinu.
Ég fór á Santa Maria síðastlið-
ið fimmtudagskvöld. Fékk sæti
á mjúkum sófabekk, með hið
óhemju flotta barborð í seiling-
arfjarlægð, en tónlistin fór ekki
jafn mjúkum höndum um eyrun
á mér. Kjúklingaburritos var það
sem ég valdi af hinum húmoríska
matseðli, á hinu ánægjuvekjandi
verði. Pantaði eftir að enskumæl-
andi þjónustustúlkan hafði spurt
mig og þá sem voru með mér, að
ég held, þrisvar hvort við vær-
um tilbúin að panta. Í öll skiptin
fékk hún það svar að við værum
að bíða eftir einum til viðbótar. Lá
á að koma okkur út til að fá fleiri
krónur í kassann? Maður spyr
sig.
Þjónustan að öðru leyti var á
hinn bóginn fín. Eftir að við höfð-
um pantað matinn kom hann frek-
ar fljótt og drykkirnir sömuleiðis.
Bragðið? Alveg ágætt, en vantaði
smá búst í það. Fjórir þeirra sem
voru með mér pöntuðu quasad-
illas og hafa alveg smakkað það
betra. Verðið minnkar samt erg-
elsið yfir því. Og allir þeir krakk-
ar á framhaldsskólaaldri sem
snæddu á Santa Maria á sama
tíma voru ekki beint argir yfir því.
KRistJÁN HRAfN
GUðMUNDssoN
fór á Santa Maria
SkyndibitaStaður í Sauðargæru
í skyndi
Hvað veistu?
1. Upp úr hvaða Íslendingasögu ætlar Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari að
vinna leikgerð?
2. Næsta iceland Airwaves-hátíð var kynnt fyrir helgi. Hvað hefur hátíðin verið
haldin oft?
3. Hvað heitir nýjasta plata Bubba Morthens sem kom út á dögunum?
1. Njálu 2. Níu sinnum 3. fjórir naglar
Hraði: HHHHH
VEiTiNGar: HHHHH
ViðmóT: HHHHH
UmHVErfi: HHHHH
VErð: HHHHH
Vantar Sæta-
Staðgengla
Hin árlegu Grímuverðlaun voru
afhent við hátíðlega athöfn í Þjóð-
leikhúsinu á föstudagskvöldið. Sjón-
varpsáhorfendur fengu að fylgjast
með Grímunni i beinni útsendingu
á RÚV. Athöfnin var með hefðbundu
sniði og veit áhorfandi við hverju á
að búast er hann kveikir á sjónvarp-
inu. Svona er þetta með allar íslensk-
ar verðlaunahátíðir.
Kynnar kvöldsins voru þeir Jói
og Gói, betur þekktir sem Jóhann-
es Haukur og Guðjón Davíð. Þess-
ir tveir félagar eiga hrós skilið fyrir
frammistöðu sína. Báðir hafa leikið
með Leikfélagi Akureyrar undanfar-
in misseri, en eru nú komnir í Borg-
arleikhúsið ásamt nýjum leikhús-
stjóra, honum Magnúsi Geir. Það var
skondið að sjá að í hvert sinn sem þeir
sögðu eitthvað fyndið fór myndavél-
in beint á Magnús Geir sem var ávallt
í hláturskasti. Hefði verið skemmti-
legra að sjá Tinnu Hrafns. Það var
hressandi að hafa þá á skjánum og
góð tilbreyting. Þeir voru lausir við
alla tilgerð og voru skemmtiatriði
þeirra með eindæmum skemmtileg.
Það sem vantaði upp á Grímuna eru
sætastaðgenglar. Sjónvarpsáhorf-
endur veltu því fyrir sér hvort mæt-
ing á verðlaunin hafi verið dræm því
lausu sætin voru úti um allt. Það leit
ekki vel út. Aðstandendur Grímunn-
ar þurfa að leita til Hollywood til að
læra að gera þetta almennilega.
Hanna Eiríksdóttir
sjónvarpsdómur
GRÍMUveRðlAUNiN
Ríkissjónvarpið HHHHH
frábær fyrir
djammara
Annar þátturinn af Litlu hafmeyj-
unni var sendur út síðastliðið föstu-
dagskvöld á Rás 2. Þáttur þessi er í
umsjón þeirra Andra Freys Viðars-
sonar og Dodda litla sem þjóðin ætti
að þekkja efitr áralangan feril á út-
varpsstöðvunum X-inu og Reykjavík
FM. Eftir að Reykjavík FM var lögð
niður hefur ekki heyrst í þeim félög-
um og löngu orðið tímabært að heyra
raddir þeirra hljóma í viðtækjunum
á ný, enda Andri og Doddi með betri
útvarpsmönnum landsins. Þátturinn
dregur nafn sitt af Litlu hafmeyjunni
í Kaupmannahöfn þar sem Andri er
búsettur um þessar mundir og kemur
þátturinn því til með að verða sendur
út í beinni útsendingu frá íbúð Andra í
Kaupmannahöfn og stúdíóinu í Efsta-
leiti. Í þetta skiptið var Andri hins veg-
ar staddur í heimsókn á landinu og
sat því við hlið félaga síns í stúdíóinu.
Eins og við er að búast af Andra og
Dodda voru þeir duglegir að bregða
á leik sem brýtur þáttinn skemmti-
lega upp og hafði ég einstaklega gam-
an af innslagi Andra um helgarplanið
þar sem hann kenndi Íslendingum að
detta í það að dönskum sið. Tónlistar-
maðurinn Hairdoctor kíkti í skemmti-
legt spjall við strákana og rennur þátt-
urinn þægilega og skemmtilega í gegn
með nokkrum góðum partíslögurum
inn á milli til að koma manni í helgar-
stemninguna. Frábær hlustun fyrir þá
sem eru að taka sig til fyrir djammið á
föstudagskvöldum. Krista Hall
Útvarpsdómur
litlA HAfMeyJAN
Rás 2 HHHHH
bíódómur
tHe HAppeNiNG
HHHHH leiKstJóRN:
M. Night Shyamalan
AðAlHlUtveRK:
Mark Wahlberg,
Zooey Deschanel,
John Leguizamo,
Betty Buckley
Sæmilegt „sæmileg afþreying en á
köflum var maður eins og hinir sýktu -
byrjaður að líta í kringum sig að
einhverju til að hoppa fram af.“