Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2008, Qupperneq 30
mánudagur 16. júní 200830 Síðast en ekki síst DV
Hver er konan?
„Þuríður Pálsdóttir söngkona.“
Hvað drífur þig áfram?
„Ég hef voða mikið innra „drive“,
eða hvað á að kalla þetta. Og það er
í hverju sem er, enda taugaveikluð
kona. Maður verður svo taugaveikl-
aður þegar maður er alltaf að koma
fram.“
Hver er uppáhaldsbókin þín?
„Laxdæla er skemmtilegasta bók sem
ég hef lesið. Svo finnst mér bækurnar
hans Halldórs Laxness alveg dásam-
legar. Ég les Heimsljós að meðaltali
einu sinni til tvisvar á ári.“
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
„Þau eru svo mörg. Ég get eiginlega
ekki valið á milli.“
Hvert er eftirminnilegasta
hlutverkið þitt á ferlinum?
„Leonoru í Il Trovatore hefur mér
fundist skemmtilegast að syngja. Þar
eru ofboðslega fallegar aríur. Þær
áttu líka svo vel við mína rödd.“
Kom þér á óvart að þú skyldir
vera valin til að fá heiðursverð-
launin að þessu sinni?
„Já, það segi ég satt. Af því að ég er
af þessari fyrstu kynslóð söngvara
veit maður aldrei hvenær maður er
orðinn gleymdur. En mér þykir mjög
vænt um þetta.“
Hvenær söngstu fyrst á sviði?
„Þegar ég var sautján ára gömul. Þá
söng ég í Trípólíbíó á hátíðinni Úr
myndabók Jónasar Hallgrímssonar.
En þegar ég var ellefu ára söng ég í
útvarpsleikriti. Það má segja að það
hafi verið í fyrsta skiptið sem ég söng
opinberlega.“
Hverjar eru stærstu breytingarn-
ar sem orðið hafa á íslenska
söngheiminum síðan þú byrjaðir
að syngja?
„Söngskólinn var náttúrlega mikil
breyting. Þar menntum við krakkana
alveg upp í topp. Nú eru til margir
söngkennarar á Íslandi sem ekki var
áður þegar þurfti að fara út að ná sér
í söngmenntun.“
Hver er mesti söngvari sem
Ísland hefur átt að þínu mati?
„Ég get ekki nefnt neinn einn. En þeir
eru margir mjög góðir, til dæmis Elín
Ósk Óskarsdóttir, nemandi minn, og
Jóhann Friðgeir Valdimarsson.“
MAÐUR
DAGSINS
Sandkorn
n Tímaritið Reykjavík Grape-
vine fagnaði fimm ára afmæli
sínu með heljarinnar gleðskap
í Viðey í blíðskaparveðri síðast-
liðið föstu-
dagskvöld.
Að venju
voru gestir
ferjaðir yfir
í eyjuna
með bátum.
Stjörnur
kvöldsins
létu bátinn
þó ekki nægja og skömmu eftir
að gestir voru komnir í eyjuna
kom þyrla fljúgandi inn á svæð-
ið og lenti í miðju partíinu. Út
stigu engir aðrir en strákarnir í
hljómsveitinni Dáðadrengjum
sem ekki hefur heyrst í í dágóð-
an tíma en nokkrir meðlima
skipa nú sveitina Morðingj-
ana. Dáðadrengirnir skemmtu
svo afmælisgestum fram eftir
kvöldi við gríðargóðar viðtökur.
n Meira af Viðeyjarpartíinu.
Daníel Ágúst Haraldsson fór
á kostum þegar hann steig um
borð í einn bátinn, enda var
hann klæddur síðum svörtum
pels. Pelsinn hefur sennilega
komið sér
vel í partí-
inu þar sem
flestir voru
utandyra
allt kvöldið.
Á leiðinni
til baka
smeygði
kappinn sér
í gegnum röðina til að komast
fyrr í bátinn. Var fólk lítið að
kippa sér upp við það og höfðu
menn orð á því að maður í
svona flottum pels kæmist upp
með nánast hvað sem er.
n Fræga fólkið var líka úti á líf-
inu á laugardagskvöldið. Á Q-
bar mættu til að mynda knatt-
spyrnuhetjan Eiður Smári
Guðjohnsen og góðvinur hans,
Auðunn Blöndal. Þeir stopp-
uðu ekki ýkja lengi, en þegar
þeir voru komnir út rákust
þeir á aðra knattspyrnuhetju,
Birki Kristinsson, fyrrverandi
landsliðsmarkvörð, og hans
ektamær, Ragnhildi Gísla-
dóttur. Urðu fagnaðarfund-
ir og virtust Eiður og Auðunn
ekki síst ánægðir með köflóttu
buxurnar sem Birkir klæddist
þetta kvöld.
Þuríður Pálsdóttir
söngkona fékk heiðursverðlaun
grímunnar í ár þegar grímuverð-
launin voru afhent á föstudags-
kvöldið. Verðlaunin fékk hún fyrir
framúrskarandi ævistarf í þágu
sönglistar á íslandi.
BókStAfleGA
„Brasilíumenn eru hálf-
gerð letiblóð og vilja fyrst
og fremst hafa gaman af
kennslunni, oft endaði ég
á því að leika hluti og dýr
fyrir bekkinn og reyndist
það mjög vel.“
n anna Smáradóttir sem vann í þrjá
mánuði sem enskukennari í einu af
fátækrahverfum rio de janeiro í
Brasilíu. - Fréttablaðið
„Þetta var döpur frammi-
staða ef frá eru
taldar fyrstu
mínúturnar
og við inni
í leiknum.
Svo gefum
við þeim mark
á silfurfati vegna einbeit-
ingar- og samskiptaleys-
is milli manna. Eftir það
virðist hausinn á mönn-
um fara út í veður og
vind.“
n Leifur garðarsson, þjálfari Fylkis,
eftir 3-0 tap sinna manna gegn Kr í
gær. - Vísir
„Ég vildi gjarn-
an gera það,
Sindri, ef þú
hagaðir þér
ekki svona
dónalega.“
n geir H. Haarde forsætisráðherra við
Sindra Sindrason, fréttamann
markaðarins, í hádegisfréttum
Stöðvar 2 á föstudaginn, spurður um
komment um hugsanlegar aðgerðir
ríkisstjórnarinnar vegna efnahags-
ástandsins.
„Ég hugsa
að fáir hafi
lifað jafn
skemmti-
legu lífi og
ég sjálfur.“
n Fjölnir Þorgeirsson um pabbahlut-
verkið, baráttuna um sameiginlegt
forræði, sorgir og sigra. - dV
„Árið 1990. Þá var ég fá-
tækur námsmaður og
fékk frítt á leiki fyrir að
hafa dómararéttindi.“
n Kristinn jakobsson, eftirlitsdómari
á Em, spurður hvenær hann hafi
ákveðið að verða
dómari. - dV
„Eins og
að lenda
óvænt á
þjóðhátíð.
Fótboltabullur höfðu lagt
undir sig landið og það
voru hróp og köll alla
daga og fólk í skrautleg-
um treyjum.“
n ásdís Olsen, aðjúnkt og dagskrár-
gerðarkona, um hvernig
það var að vera í
Sviss á dögunum
þar sem Em í
fótbolta er nú í
fullum gangi. - 24
stundir
„Ég hugsaði
aldrei „nú er ég hættur“.
Til þess er ég of þakklát-
ur fyrir þetta
tækifæri að
fá að læra
við skólann.
En ég hugs-
aði stundum
„er ég að verða
brjálaður?“
n Þorvaldur davíð Kristjánsson leikari
um fyrsta veturinn í hinum virta
juilliard listaskóla í new York. - dV
„Ætli ég sé ekki svolítill barna-
kall,“ segir leikarinn Ívar Örn Sverr-
isson, sem nú yfirgefur Stundina
okkar eftir tveggja vetra umsjón.
Eins og kunnugt er hefur Ívar séð
um Stundina okkar með leikkon-
unni Ísgerði Elfu Gunnarsdóttur.
Nýlega var leikarinn Björgvin Franz
Gíslason ráðinn til að hafa umsjón
með Stundinni okkar næsta vetur
svo það eru breytingar fram und-
an hjá Ívari. Ríkissjónvarpið ger-
ir samning til eins árs í senn og
nú hefur það ákveðið að breyta til.
Ívari líst vel á eftirmann sinn. „Ég
gæti ekki hugsað mér betri arftaka
en Björgvin,“ segir hann og vonast
til þess að sjónvarpið haldi áfram
að búa til metnaðarfullt efni fyrir
börn. Hann hefur þó ekki alveg slit-
ið „barnsskónum“ því auk þess að
eiga tvö börn sjálfur flytur hann inn
vönduð tréhjól fyrir 2 til 5 ára börn
sem finna má á síðunni www.likea-
bike.is. Hjólin sem fást meðal ann-
ars í Húsgagnahöllinni eru kjörin til
að þroska jafnvægisskyn og hreyfi-
getu barna. Aðspurður hvernig hjól-
in virka segir Ívar: „Þau nota eig-
ið afl til að spyrna hjólinu áfram og
fæturna til að stöðva sig, sannarlega
góð leið til að svala hreyfiþörf kraft-
mikilla barna.“
Hann vinnur nú að því að koma
sér aftur í leiklistargírinn. Ívar var
að koma úr fæðingarorlofi og er
nýlentur eftir heimsreisu. Ívar og
kona hans ferðuðust meðal annars
til Kaliforníu og Mexíkó með börn-
in sín tvö.
liljag@dv.is
Leikarinn Ívar Örn Sverrisson segir skilið við Stundina okkar:
Úr heimsreisu í tréhjól
Ívar Örn Sverrisson
Er algjör barnakall.
dV-mynd ásgeir
Likeabike Hjólin eru þýsk og úr
birkikrossviði.
Taugaveikluð af
því að koma fram