Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.05.2015, Page 8

Fréttatíminn - 15.05.2015, Page 8
MBA TAKTU FRUMKVÆÐI AÐ EIGIN FRAMA www.mba.is KYNNINGARFUNDUR MBA-NÁMSINS Í HÁSKÓLA ÍSLANDS Fimmtudaginn 21. maí verður haldinn kynningarfundur um alþjóðlega vottað MBA-nám Háskóla Íslands. Magnús Pálsson forstöðumaður MBA-námsins kynnir námið og fyrirkomulag þess. Kynningin stendur frá kl. 12:00 til 13:00 og fer fram í stofu HT-101 á Háskóla- torgi. Boðið verður upp á létta hádegishressingu og fer skráning fram í gegnum tölvupóstfangið mba@hi.is. PIPA R \TB W A • SÍA • 15 2 2 31 VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS Hvernig verður þitt fyrirtæki til fyrirmyndar? VR efnir til morgunverðarfundar um könnunina á Fyrirtæki ársins, þriðjudaginn 19. maí kl. 8:30-10:30 á Grand Hótel Reykjavík. Hvernig ná fyrirtæki góðum árangri? Hvað þarf til að viðhalda honum? Hvernig verða fyrirmyndarfyrirtæki til? Dagskrá Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR Af hverju að velja Fyrirtæki ársins? Elín Gränz, framkvæmdastjóri mannauðs- og þjónustusviðs Opinna kerfa Hvernig á að nýta niðurstöðurnar og ná góðum árangri? Tómas Bjarnason, sviðsstjóri starfsmannarannsókna hjá Gallup Könnun á Fyrirtæki ársins Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S Hvað þarf til að viðhalda góðum árangri? Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við viðskiptafræðideild HÍ Fundarstjóri – samantekt og umræður Morgunverðarhlaðborð frá kl. 8:00 Fundurinn er öllum opinn og ókeypis. Skráning á vr.is. EVE Online spilarar safna nú fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Nepal.  Hamfarir Safnað fyrir nepala Gjafmildir EVE-spilarar Spilarar í tölvuleiknum EVE On- line, sem íslenska fyrirtækið CCP rekur, hafa safnað um níu millj- ónum króna handa fórnarlömbum jarðskjálftans í Nepal. Söfnunin hófst um mánaðamótin og verður því sem safnast varið í neyðarað- stoð á vegum Rauða krossins handa bágstöddum þar í landi. Söfnunin fer fram í leiknum sjálfum og stendur fram á annan sunnudag, 24. maí. Rauði kross- inn á Íslandi stendur nú fyrir víð- tækri söfnun fyrir hjálparstarfið í Nepal. K ópavogsfélaginu var slitið 11. maí síðastliðinn, á 60 ára afmæli Kópavogskaup- staðar. Félagið var stofnað í mars 2013, samkvæmt samþykkt bæjar- stjórnar Kópavogs. Bæjarstjórnin samþykkti einnig framkvæmda- áætlun sem gerði ráð fyrir að endurbótum á Hressingarhælinu og Kópavogsbænum og umhverfi húsanna á Kópavogstúni yrði lokið og starfsemi hafin í þeim á sextugsafmæli bæjarins. Um leið og stjórn Kópavogs- félagsins fagnar þeim endur- bótum sem þegar hafa verið gerðar á umræddum byggingum lýsir hún vonbrigðum með tregðu bæjaryfirvalda til að fylgja þeirri framkvæmdaáætlun sem sam- þykkt var, segir í ályktun félags- ins en stefnt er að því að reka starfsemina sameiginlega undir heitinu Lista- og menningarsetrið á Kópavogstúni. „Margt hefur áunnist í mál- efnum Kópavogstúns og hinna merku bygginga þar síðan starfs- hópur var stofnaður snemma árs 2012 til að huga að endurreisn bygginganna,“ segir enn fremur. „Húsunum hefur verið bjargað frá glötun og raddir um að láta þau víkja heyrast ekki lengur. Fyrir liggur raunhæf áætlun um endur- reisn bygginganna ásamt sam- þykkt bæjarstjórnar um starfsemi í þeim. En betur má ef duga skal. Stjórn Kópavogsfélagsins hvetur bæjaryfirvöld til þess að sýna aukinn metnað til þess að fylgja samþykktum sínum eftir. Sjálft Kópavogstún er ein af perlum Kópavogs. Þar er að finna afar merkilegar minjar úr sögu bæjar- ins og þjóðarinnar.“  KópavogStún KópavogSfélaginu Slitið Húsunum hefur verið bjargað frá glötun Stjórn Kópavogsfélagins, sem nú hefur verið slitið, hvetur bæjaryfirvöld til að sýna metnað við endurreisn húsanna á Kópavogstúni. Stefnt er að því að reka menningarstarfsemi í Hressingarhælinu og Kópavogsbænum. Stefnt er að því að reka menningarstarfsemi í Hressingarhælinu og Kópavogs- bænum á Kópavogstúni. Helgin 15.-17. maí 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.