Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.05.2015, Side 58

Fréttatíminn - 15.05.2015, Side 58
Hulda Hákon hefur opnað sýningu í Tveimur hröfnum við Baldursgötu. Ljós- mynd/Hari  Myndlist Björg, sólskin, hetjur, hiMinn, haf og fuglar Hulda Hákon sýnir í Tveimur hröfnum Listakonan Hulda Hákon hefur opnað sýningu í Tveir hröfnum, listhúsi að Baldursgötu 12. Sýningin ber yfir- skriftina Björg, sólskin, hetjur, him- inn, haf og fuglar. Hulda sýnir lág- myndir, skúlptúra, málverk og texta á sýningunni. Hulda Hákon er meðal kunnustu myndlistarmanna þjóðarinnar. Hún hefur sinnt listsköpun sinni síðustu þrjátíu ár og lágmyndir hennar er víða að finna, bæði í einkaeigu víða um heim og á opinberum söfnum. „Frá upphafi ferils síns hefur Hulda Hákon fjallað um hvunndags- hetjuna. Í verkum hennar koma fyrir litlir sigrar, óhöpp eða bara forvitni- leg atvik, og myndir og textar sem vísa til þess að hið smáa getur verið allt eins dramatískt og eftirtektarvert og hið stóra,“ segir í tilkynningu um opnunina sem var í gær, fimmtudag. Sýningin verður opin til 20. júní og er listhúsið opið fimmtudaga og föstudaga frá klukkan 12-17 en frá klukkan 13-16 um helgar. s axófónleikarinn Jóel Pálsson hefur verið meðlimur í Stór-sveit Reykjavíkur um árabil og hefur einnig gefið út fimm hljóm- plötur í eigin nafni. Hann segir hug- myndina að þessum tónleikum hafa kviknað fyrir um ári. „Hugmyndin kom upp í fyrra eftir 30 ára afmælis- tónleika FTT þar sem Stórsveitin flutti lag eftir mig í útsetningu Kjart- ans Valdemarssonar,“ segir Jóel. „Okkur fannst takast svo vel til að Kjartan er nú búinn að útsetja 11 lög og þau verða flutt á þessum tón- leikum á sunnudaginn,“ segir hann. „Svo ætlum við að taka þetta upp og gefa vonandi út seinna á árinu.“ Jóel segir lagavalið vera eitthvað af öllum plötunum ásamt nýju efni. „Þetta stækkar auðvitað lögin, sök- um stærðar bandsins,“ segir Jóel. „Það er virkilega gaman að heyra þetta, og enn skemmtilegra að vera bara óbreyttur saxófónleikari í sveitinni að spila sín eigin verk,“ segir hann. „Þetta er ágætis leið að sleppa tökunum aðeins. Vera ekki alltaf með eitthvað kontról.“ Jóel segist taka skorpur í lagasmíðun- um og er alltaf með plötu í vinnslu. „Þetta kemur í skorpum og aldrei að vita að maður gefi út plötu á næst- unni. Annars er ég að vinna að plötu með djasshljómsveitinni Annes og þar verður eitthvað eftir mig ásamt annarra meðlima þeirrar sveitar,“ segir Jóel. Á tónleikunum á sunnudag mun Kjartan Valdemarsson stíga úr sín- um vanalega stól sem píanóleikari sveitarinnar og stjórna sínum eigin útsetningum. „Eyþór Gunnarsson mun taka sæti hans við flygilinn og svo verður Davíð Þór Jónsson einnig með okkur á Hammond orgel. Svo verðum við líka með tvo trommara til þess að stækka þetta enn frekar,“ segir Jóel Páls- son saxófónleikari. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is  tónleikar stórsveit reykjavíkur í hörpu á sunnudag Stórsveit Reykjavíkur heldur lokatónleika starfsársins í Silfur- bergi, Hörpu, á sunnudaginn klukkan 16. Frumfluttar verða glænýjar stórsveitarútsetningar Kjartans Valdemarssonar á verkum Jóels Pálssonar. Báðir hafa þeir Jóel og Kjartan verið meðlimir sveitarinnar um árabil, en að þessu sinni mun Kjartan stíga upp af píanóstólnum og stjórna hljómsveitinni. Jóel segir það mjög hressandi að spila sín eigin lög í öðrum útsetningum. Jóel Pálsson mun spila sín eigin lög með Stórsveit Reykjavíkur á sunnudag. Ljósmynd/Ari Magg Kjartan útsetur Jóel leikhusid.is FJALLA-EYVINDUR OG HALLA – HHHH – SV, MBL HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið) Fös 29/5 kl. 19:30 Lokas. Allra síðasta sýning. Svartar fjaðrir (Stóra sviðið) Fös 15/5 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/5 kl. 19:30 5.sýn Mið 20/5 kl. 19:30 3.sýn Sun 31/5 kl. 19:30 6.sýn Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 6/6 kl. 14:00 Lau 6/6 kl. 17:00 Áhugasýning ársins. María Ólafsdóttir leikur Ronju í Þjóðleikhúsinu. Fetta bretta (Kúlan) Sun 17/5 kl. 14:00 Sun 17/5 kl. 15:00 Falleg sýning fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til 3 ára. Leitin að Jörundi (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 17/5 kl. 20:00 Sápuópera um hundadagakonung Billy Elliot (Stóra sviðið) Fös 15/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00 Sun 7/6 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00 Mið 10/6 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00 Fim 11/6 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00 Fös 12/6 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00 Lau 13/6 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 13:00 Ath kl 13 Fös 5/6 kl. 19:00 Sun 14/6 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00 Lau 6/6 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 17/5 kl. 13:00 Síðustu sýningar leikársins Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið) Fös 15/5 kl. 20:00 aukas. Fös 22/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Fim 21/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00 Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 16/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Lau 6/6 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Beint í æð (Stóra sviðið) Lau 16/5 kl. 20:00 Síðasta sýning! Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið) Sun 17/5 kl. 20:00 Fös 22/5 kl. 20:00 Fim 21/5 kl. 20:00 Lau 30/5 kl. 20:00 Urrandi fersk háðsádeila frá einu umtalaðasta leikskáldi Evrópu Hystory (Litla sviðið) Fös 15/5 kl. 20:00 Mið 20/5 kl. 20:00 auka. Sun 31/5 kl. 20:00 auka. Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur Blæði: obsidian pieces (Stóra sviðið) Þri 19/5 kl. 20:00 Mán 25/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00 Íslenski dansflokkurinn - Aðeins þessar þrjár sýningar Billy Elliot – HHHHH , S.J. Fbl. 58 menning Helgin 15.-17. maí 2015 Fimmtudagur 14.maí kl.20 Jazztónleikar - norræn lög Kristjana Stefánsdóttir söngkona, Kjartan Valdimarsson píanóleikari og Matti Kallio harmonikkuleikari Aðgangseyrir 2500, afsláttur fyrir námsmenn. Veitingastofurnar opnar frá kl.18. Borðapantanir í síma 511-1904. Sunnudagur 17.maí kl.16 Sungið saman: Sigríður Ása Sigurðardóttir og Gautur Gunnlaugsson stýra söngstund fyrir almenning í klukkustund. Textar á tjaldi. Aðgangseyrir 1000 Veitingahúsið opið til kl.18 Miðasala á midi.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.