Iðnaðarmál - 01.06.1957, Side 3

Iðnaðarmál - 01.06.1957, Side 3
r \ í\m Forstjóraskipti við dönsku fram- leiðnistofnunina.......... 106 Upphaf að stöðlun í byggingar- iðnaði ................... 106 Tdknræn svipmynd, forustu- grein .................... 107 Gunnar J. Friðriksson: Um samkeppni í sápuiðnaði Bandaríkjanna ............ 108 Jón Amþórsson: Iðnstefnur samvinnumanna............. 111 Kjörbúðir á íslandi.......... 113 19 leiðir til aukinnar framleiðni 9. grein: Innanhússflutningar og niðurskipun í verksmiðj- um ....................... 119 Nytsamar nýjungar.......... 122 Tæknibókasafn IMSÍ — bóka- fréttir .................. 123 Forsíðumyndina tók Gunnar Rúnar í Egilskjöri. Ilúsmóðir hefur valið vörumar og ekur þeim að af- greiðsluborði við útgöngudyr, þar sem greiðsla og innpökkun fer fram. Heftinu fylgir efnisyfirlit 4. árgangs. Endurprentun háð leyfi útgefanda. Ritstjóm: Guðm. H. Garðarsson, Loftur Loftsson, Sveinn Bjömsson (ábyrgðarm.). Útgefandi: Iðnaðarmálastofnun íslands, Iðnskólahúsinu, Skólavörðutorgi, Reykjavík. Pósthólf 160. Sími 19833—4. Áskriftarverð kr. 100,00 árg. PRENTSMIÐJAN HÓLAR HF V______________________________________/ Iðnaðarmal 4. ÁRG. 1957 • 6. HEFTI TÖáUtirœn svipmynd í þessu hefti Iðnaðarmála er sagt nokkuð frá þróun sjálfsaf- greiðslu í smásöludreifingu, sem átt hefur sér stað hér á landi síðustu tvö til þrjú ár. Munu nú um 30 verzlanir vera starfandi hér á landi með þessu sniði og útlit fyrir, að fleiri fylgi í kjölfarið, enda mun meiri hluti íslenzkra húsmæðra fagna þessari nýbreytni. Það verður ekki um villzt, að miklar framfarir hafa átt sér stað í verzlun og vörudreifingu íslendinga hin síðustu ár, og má segja kaupmönnum og kaupfélögum það til lofs, að þessir aðilar hafa sýnt ósvikinn áhuga á að kynna sér og taka upp nýjungar í starfsemi sinni, eftir því sem aðstæður hafa leyft. Efnahagsástand og lífskjör hverrar þjóðar endurspeglast í gæðum, fjölbreytni og verðlagi þess varnings, sem á boðstólum er í verzlun- um á hverjum tíma. Að sama skapi segir útlit og ásigkomulag verzl- ananna, vöruþekking, framkoma og hæfni sölufólks að öðru leyti til um þróunarstig atvinnulífs hlutaðeigandi þjóðar almennt. Þegar öll kurl koma til grafar, stendur hinn almenni neytandi og þjóðfélagsþegn frammi fyrir táknrænni svipmynd af ástandi og getu atvinnuveganna og þjóðfélagsins í heild, þegar hann ætlar að hefja dagleg innkaup sín. Hafi árferði verið gott, þjóðin haldið skynsam- lega á málum sínum og einstakar atvinnustéttir ástundað árvekni og vandvirkni, eru allar líkur til, að neytandinn snúi heim glaður í bragði með tiltrú á land sitt og þjóð. Sé þessu öðru vísi farið, er hætt við, að eitthvað hafi farið aflaga í þjóðarbúskapnum. Ef til vill er sjálfsafgreiðsluþróunin táknræn fyrir almennar fram- farir íslenzks atvinnulífs, ekki vegna þess, að þetta verzlunarform standi hinu eldra svo miklu framar, heldur vegna þess, að á bak við stendur hugur til að leita fram og kanna nýjar leiðir, standa ekki í IÐNAÐARMÁL 107

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.