Iðnaðarmál - 01.06.1957, Side 11
unnar að vigta upp sekkjavöru o. þ. h.
og pakka inn vörunum í smærri um-
húðir, en á föstudögum og laugardög-
um og mesta annatíma hvers dags
.gæta þeir þess, að ætíð sé nægilega
mikið af vörum í hillunum. Flýtir
þetta mikið fyrir allri afgreiðslu.
— Hvernig fellur ykkur að vinna
•eftir kjörbúðarskipulaginu?
— Vel. Það er einróma álit allra
starfsmanna okkar. Vinnan er léttari
og skemmtilegri. Enda þótt mikil ös
sé í verzluninni, verður starfsfólkið
ekki eins vart við hana, þar sem gólf-
rými er betur nýtt en í gömlu verzlun-
unum. Fólk er þá einnig margt að af-
greiða sig sjálft, skoða og velja vör-
urnar, á meðan afgreiðslufólkið veit-
dr öðrum þjónustu.
Vinnuskilyrði eru góð í vel innrétt-
aðri kjörbúð, og á lýsingin ekki hvað
sízt þátt í því. Niðurröðun vöru er
skipulegri en áður tíðkaðist, og allt
er þannig útbúið, að verzlunin sé sem
líflegust og hafi örvandi áhrif á starfs-
gleði manns og kauplöngun viðskipta-
vinarins.
— Þið leggið mikla áherzlu á að
þjálfa og mennta starfsfólkið, eða er
ekki svo, Bjarni?
— Jú, það er mikil áherzla lögð á
þessi tvö atriði hjá okkur, enda eru
SNMVW*
EUJUNCAR
Gott er að geta valið sjálf.
(Ljósm.: Gunnar Rúnar).
Melabúð — Ágætt dæmi um, hvemig athygli er vakin á ákveðinni vörutegund.
(Ljósm.: Pótur Thomsen).