Iðnaðarmál - 01.06.1957, Qupperneq 17
en áður var. (Sjá „Raunverulegt dæmi").
íramleiðslukostnaðinn. í brezka ritinu er
■áætlað, að meðhöndlunarkostnaður í iðn-
aði nemi allt frá 15% upp í 85% af verði
hinnar fullunnu vöru.
Raunverulegt dæmi
í verksmiðju, sem framleiddi saman-
brotna bylgjupappakassa, var vinnslurásin
eins og hér segir (sjá 2. mynd): Bylgju-
pappaarkirnar voru fluttar í lyftu (A) frá
1. hæð upp á efri hæð hússins. Þaðan fór
pappinn gegnum sex vélar ( B, C, D, E, F,
H) eða vinnslustig og síðan pökkunar-
deildina (J) og að endingu í geymslu fyrir
útsendingu (L). (G) og (K) eru bráða-
birgðageymslustöðvar fyrir pappakassana,
áður en þeir eru fluttir til næstu vinnslu-
stöðva. Frá því að pappinn kom í lyftuna
(A) og Jiar til hinum pökkuðu, saman-
brotnu pappakössum er hlaðið á bíla (M),
þurfti 33 vinnslustig, en samanlögð lengd
vinnslurásarinnar var 400 metrar. Sá tími,
sem eingöngu fór í flutninga pappans á
milli vinnslustiga, reyndist 294 mínútur,
auk 5490 mínútna, sem fóru í alls konar
meðhöndlun, eða samanlagt 5784 mínútur
(tæpir 97 tímar), en á hinn bóginn voru
aðeins 3060 mínútur (51 klst.) notaðar til
að framkvæma sjálf framleiðsluverkin
(productive operation). Tölur þessar eru
miðaðar við vinnslu á 10 þús. kössum, en
hver kassi er búinn til úr pappaörk, sem er
bylgjuð báðum megin, stærð 105x135 cm.
Eftir að fyrirtækið hafði látið fram-
kvæma þessa rannsókn á niðurskipun og
vinnusóun, endurskipulagði það vinnslu-
rásina eins og sýnt er á 3. mynd. Nú er
vinnslurásin mun beinni og samfelldari en
áður. I staðinn fyrir lyftuna er nú komið
óslitið keðjufæriband (4. mynd) með tveim
pöllum (A), sem flytja pappann upp á
lofthæðina. Pappastaflinn er ekki lengur
settur á gólfið fyrir framan vélarnar, held-
ur er hann settur á lyftupalla, sem stjómað
er með fætinum, þannig að efstu arkir stafl-
ans eru ávallt í þægilegri vinnuhæð. Líkum
útbúnaði er einnig komið fyrir á bak við
IÐNAÐARMÁL
vélina. I staðinn fyrir bráðabirgðageymsl-
una (G), þar sem hinir áprentuðu og sam-
anbrotnu pappakassar voru látnir þoma,
hefur nú verið settur þurrkklefi (G1). Nú
getur efnið gengið á milli vinnslustiga, án
þess að tafir verði af bið eftir efni við
nokkra vél og án tafa við að koma pappan-
um á milli vinnslustöðva. Einni nýrri gaffal-
lyftu var bætt við og nokkrum heftivélum.
4. mynd. Keðjufæribandið, sem flytur
pappaarkimar á milli hæða. (Sjá
„Raunverulegt dæmi").
Arangurinn af þessum endurbótum og
hinni nýju niðurskipun hefur orðið sá, að
vinnslustigum hefur fækkað úr 33 niður í
17, meðhöndlunar- og flutningatími lækkað
úr 5784 mín. niður í 608 mín. (rúml. 86
vinnutíma spamaður) við hverja 10 þús.
kassa, tíminn, sem fer í sjálft verkið, lækk-
að úr 3060 mín. niður í 2850 mín. og flutn-
ingaleiðin stytzt úr 400 metrum niður í
132 metra. Einnig hafði mikill tfmi hinna
sérþjálfuðu og dým starfsmanna farið í
meðhöndlun, en nú geta þeir einbeitt sér
að framleiðslustörfunum, en meðhöndlun
Kaup fyrir flutningaverk........
— — meðhöndlunarverk o. fl.
— — framleiðsluverk .........
KIÖRBÚÐIR...
Framh. af 119. bls.
um, eins og áður tíðkaðist. Þá verður
kaupmaðurinn fyrr var við, ef vara
selst ekki eða illa. vegna þess að kaup-
andinn lætur hana ósnerta eða geng-
ur fram hjá henni. Hverri kjörbúð er
samt sem áður nauðsynlegt að hafa
gott geymslu- og innpökkunarher-
bergi. Þar eru geymdar sekkjavörur
o. þ. h., sem þarf að skipta upp í
smærri einingar og setja í sérstakar
umbúðir. Er mikil vinna fólgin í
þessu, og er „dauði tími“ dagsins not-
aður í þessa undirbúningsvinnu. Það
verður algengara, að kaupmenn noti
plastpoka utan um afurðirnar, og eru
þeir yfirleitt meðfærilegri en bréf-
pokar, að mínu áliti. Það verður
aldrei nógu rækilega á það bent, að
umbúðirnar eru bezti seljandinn í
kjörbúðinni, og höfum við því lagt
áherzlu á að fá sem beztar umbúðir
fyrir þá vöru, sem við verðum sjálf
að pakka inn.
Það eru svo mörg atriði í sam-
bandi við rekstur kjörbúðar, sem
gaman væri að ræða um, segir Sig-
urður, en ég veit, að flest þessara at-
riða hafa komið fram í þeim viðtöl-
um, sem hér fara á undan, en ég vil
aðeins fá að bæta því við, að það er
skylda hvers kaupmanns að fylgjast
með tímanum og veita viðskiptavini
sínum sem bezta þjónustu og vörur
við hinu hagstæðasta verði, sem fáan-
legt er á hverjum tíma.
Við viðunandi starfsskilyrði mun
verzlunarstéttin rækja vel skyldur sín-
ar við þjóðfélagið í framtíðinni.
G. H. G.
er framkvæmd af ódýrara vinnuafli, og
lækkar það enn frekar vinnukostnaðinn.
Kostnaðarsamanburður nýju og eldri
niðurskipunar er því þannig:
Fyrir breytingu Eftir breytingu
100% 36,7%
100% 9,9%
100% 81,1%
10. grein fjallar um framleiðslueftirlit og kemur í nœsta hefti.
121
I