Iðnaðarmál - 01.06.1968, Page 2
Alþfóðlega
stöðlunarstofnunin
Intemational Organization for
Standardization
Fyrsta alþjóðlega stöðlunarstofn-
unin, International Federation of the
National Standardization Association
(ISA), var sett á laggirnar árið 1926,
af stöðlunarstofnunum 20 landa. ISA
lagði grundvöllinn að alþjóðlegu
samstarfi um framgang stöðlunar og
vann einnig að samræmingu staðla
hinna ýmsu landa.
Vegna styrjaldarinnar 1939 lagð-
ist starf ISA niður að verulegu leyti,
og var starfseminni hætt 1942.
Arið 1944 stofnuðu Bandamenn
til nýrrar stöðlunarstofnunar, sem
tók að nokkru við starfi ISA. Um
haustið 1946 var svo enn stofnsett
ný alþjóðleg stöðlunarstofnun, Inter-
national Organization for Standardi-
zation (ÍSO), sem starfað hefur síð-
an með aðsetri i Genf.
Höfuðtilgangur ISO er:
a) Að vinna að samræmingu lands-
staðla með útgáfu alþjóðlegra með-
mæla.
b) Að setja alþjóðlega staðla að
fengnu samþykki meðlimalandanna.
c) Að hvetja til setningar nýrra
staðla, sem hafa alþjóðlegt gildi.
d) Að stuðla að auknu samstarfi
stöðlunarstofnana meðlimalandanna.
e) Að veita tæknilega aðstoð i
stöðlunarmálum.
f) Að vinna með öðrum alþjóð-
legum stofnunum að stöðlunarmál-
um.
Um 60 þjóðir eru meðlimir í ISO.
I athugun er, að ísland gerist að-
ili að starfi ISO og taki þannig þátt
i hinu alþjóðlega samstarfi um stöðl-
unarmál, en að sjálfsögðu innan
skynsamlegra marka og eftir því sem
aðstæður leyfa.
Það er augljós kostur staðals í
einu landi, ef hann er í samræmi við
staðla annarra þjóða, því að einn
meginiilgangur stöðlunar er aðstuðla
að snurðulausum viðskiptum landa
í milli.
H. J.
Árangursrík söluherferð
Dana á sérþekkingu
I 2.—3. hefti Iðnaðarmála var
skýrt frá skipulögðum tilraunum
Dana til þess að selja úr landi danska
sérþekkingu á sviði iðnaðar í formi
framleiðsluleyfa og tæknisamstarfs.
Söluherferð þessi er þannig fram-
kvæmd, að gerð hefur verið safn-
mappa með sérprentuðum blöðum,
þar sem greint er frá öllum upplýs-
ingum varðandi það, sem boðið er.
Þessum möppum hefur verið dreift
til um 1600 aðila víðs vegar um
heim. Iðnaðarmálastofnunin og
Tæknibókasafnið hafa nokkur ein-
tök og láta í té upplýsingar til allra
er þess óska.
I áðurnefndri grein í Iðnaðarmál-
um er skrá yfir um 40 sérleyfisáætl-
anir af 83, sem eru í þessari fyrstu
safnmöppu, og eru þær flokkaðar
í 8 framleiðsluflokka.
Nú, einu ári eftir að þessi sölu-
herferð var hafin, hefur árangur
orðið það góður, að í undirbúningi
er ný safnmappa, þar sem 100 dönsk
fyrirtæki til viðbótar bjóða sérþekk-
ingu sína og samvinnu.
Iðnaðarmálastofnunin telur ástæðu
til þess að vekja sérstaka athygli á
þessu máli og hvetur íslenzka fram-
leiðendur til þess að kynna sér þessi
tilboð.
Þrír íslenzkir aðilar hafa leitað
upplýsinga hjá Iðnaðarmálastofnun-
inni í þessu sambandi, og vitað er, að
einn þeirra er þegar kominn í við-
skiptasamband og samstarf við
danskt fyrirtæki á starfssviði hans.
Hér verða ekki frekar rakin ein-
stök atriði þessa máls, heldur vísað
til 2.—3. heftis, bls. 30 — Iðnaðar-
mál —■ 1968, þar sem það er ítarlega
Ýmsar fjárweíllngar til iðnararmála
og iðnfræðslu
Iðnaðarmálastofnun íslands ........................... 4.492.000
Rannsóknarstofnun iðnaðarins ......................... 5.229.000
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.................. 5.026.000
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins ...................... 9.231.000
Iðnlánasjóður ....................................... 10.000.000
Til iðnráða.............................................. 50.0Q0
Landssamband iðnaðarmanna .............................. 600.000
Iðnþróunarráð ........................................ 1.000.000
Til aðlögunar og endurskipulagningar í iðnaði......... 1.200.000
Verkstjórnarnámskeiðin ................................. 733.000
Tækniskólinn ......................................... 7.044.000
Iðnskólinn í Reykjavík............................... 10.536.000
Iðnskólar utan Reykjavíkur ........................... 6.711.000
Iðnskólar almennt .................................... 5.845.000
Iðnfræðsluráð ........................................ 1.449.000
Til byggingar iðnskóla í Reykjavík.................... 2.840.000
Til byggingar iðnskóla á Akureyri .................... 1.100.000
Til byggingar iðnskóla í Hafnarfirði ................. 1.100.000
Til byggingar iðnskóla í Vestmannaeyjum................. 500.000
V_
86
IÐNAÐARMÁL