Iðnaðarmál - 01.06.1968, Side 19
Hreyfan-
legt mot
búnaöur
Stjorn-
tæki
Sty rkta rly ftu r
fyrir bilinn
Með nýrri hugmynd um samfellda
byggingu úr epoxy-kvoðu hillir und-
ir ævintýralega möguleika plastefna
á byggingasviðinu. Þar sem aðferð
þessi er nothæf við margar tegundir
og stærðir bygginga, gæti þróun í
þessum efnum komið sem lausn á
hinni brýnu þörf fyrir ódýrt hús-
næði. Einnig gæti þetta orðið fyrsta
sporið inn á miklu víðtækari plast-
byggingamarkað, þar sem billjónir
væru í veltu.
í rauninni er hér um samfellda
kvoðubyggingu að ræða. Tæknin,
sem notuð er, hefur þróazt sameigin-
lega hjá Amicon Corp., Lexington,
Mass, og Midwest Applied Science
Corp., West Lafayette, Ind., og hefur
verið skráð sem einkaleyfi. Gert er
ráð fyrir, að hún verði notuð í
sveita- og úthverfabyggingum af
ýmsum stærðum, verksmiðj ubygg-
ingum og vörugeymslum, útihúsum
bændabýla og hernaðarbyggingum.
Talið er, að byggingar af þessari
gerð verði endingargóðar, mjög vel
einangraðar og afar ódýrar.
Aðaltækjabúnaður.
Burðarásinn í þessari nýju aðferð
er tækjakerfið, sem hvílir á flutninga-
bíl og er stjórnað af tveimur mönn-
um. Llutningabíllinn er búinn fjór-
um 55 gallóna geymum, sem inni-
halda byggingarefnablöndurnar:
Þrír þeirra geyma efni A (35%
epoxy-kvoðu og 65% talkúm eða
önnur steinfylliefni í deigkenndu
ástandi), og einn geymir efni B
(freyði- og hörðnunarefni, eldvarn-
arefni ofl.).
Tækjasamstæðan er samsett af
stjórnkerfi, lyftiarmi og hreyfanlegu
móti á enda armsins. Mótið er gert
úr tveimur stálplötum og tveimur
upphleyptum plastþynnubeltum. Arm-
urinn fær orku sína frá bifreiða-
hreyflinum og notar rúmlega 5 hest-
öfl. Vökvaknúinn stjórnbúnaður ger-
ir samstæðuna auðvelda meðferðar.
Kælileiðslur liggja eftir arminum að
mótinu.
Hvernig kerfið starfar.
Efnin A og B eru leidd við 90°C
hita upp eftir arminum og að blönd-
unarhausi á mótinu, þar sem þeim
er blandað saman í hlutföllunum 10
móti 1. Hitaleysandi breyting á sér
stað, og efninu er spýtt milli málm-
platnanna í mótinu, þar sem það
freyðir fyrst, en þéttist síðan. Þá
taka beltin við efninu og leggja það
viðstöðulaust niður og mynda vegg-
eða skilrúmshluta, 9—12 þuml. á
hæð. Með endurteknum yfirferðum
er hægt að ná þeirri hæð, sem ósk-
að er. Kvoðan myndar húð, um 20
mil (0.05 cm) á þykkt (1 mil =
1/1000 úr þuml.), þegar hún þrýst-
ist upp af stálplötunum, sem eru
kældar. Kjarni og húð harðna á tæp-
um 10 sek. eftir niðurlagningu, og
„samlokurnar“ losna greiðlega frá
A teikningu A er sýndur hinn hreyfanlegi
tœkjabúnaffur, sem notaður er viff marg-
víslegar gerðir bygginga. Teikningarnar
B, C og D sýna mótun skilrúma, lofts og
þaks og veggja á ódýru íbúðarhúsi. Teikn-
ing E sýnir mótun hvelfingar á vöruhúsi.
plastbeltinu. Upphleypta áferðin á
beltinu kemur fram á húðinni.
Árangurinn verður „samloka“, 3
—4 þuml. á þykkt, með þéttum innri
kjarna úr fylltri kvoðu og sterkri
húð. Þjöppunarstyrkur er 6700 p.s.i.
og togþol 700.000 p.s.i.
Skýrslur herma, að efnið sé raka-
þétt og hrindi frá sér sveppagróðri.
Það er „sjálfslökkvandi1 og gerir
betur en að uppfylla kröfur banda-
rískra staðla um brunaprófanir bygg-
ingarefna. Þar sem þunginn er lítill,
þarf ekki þá undirstöðu, sem venju-
lega er krafizt samkvæmt reglugerð-
um. Hægt er að leggja trefjamottur,
áður en freyðingin hefst, og þekja
á eftir með plasti eða öðrum efnum,
án þess að steinsteypa þurfi að koma
þar nærri.
Eftir því sem sérfræðingar fram-
101
IÐNAÐARMÁL