Iðnaðarmál - 01.01.1956, Síða 22
Plasthúð til hlífðar og ryð-
varnar.
Að þekja hluti þunnri plasthúð, sem
auðvelt er að setja á og fletta af,
hefur gefið góða raun sem vörn gegn
ryði og til hlífðar hlutum í geymslu
og flutningi.
Unnt er að þekja hluti þunnri húð
plastefnis, svokallaðs „Liquid Enve-
lope“, með úðun eða dýfingu, svo að
húðin, sem bæði er sterk og teygjan-
leg, verji þá gegn utanaðkomandi
áhrifum í geymslu og flutningi. Húð
þessari er auðvelt að fletta af hlutum,
þegar á að nota þá, og eru þeir þá
jafngóðir og fyrr.
Efnið, sem notað er í þessa plast-
húð, er vinyl polymers-upplausn. Er
því ýmist úðað á hlutina eða þeim
dýft í upplausnina, og þekur einn lítri
þess 10—15 fermetra yfirborð, allt
eftir því, hve þykk húðin er höfð.
Hálfri klukkustundu eftir að efnið er
sett á, er unnt að taka á hlutnum, en
24 klukkustundum síðar er plasthúðin
algjörlega þornuð. Húð þessi er ó-
Aukin framleiðni.
Framh. af 17. bls.
grænmeti, eru t. d. mjög líkar umbúðunum,
sem hin íslenzku frystu fiskflök eru pökk-
uð í (eins punds pakkar). Einnig eru hrað-
frystitækin þar og hér mjög áþekk aS gerð.
Það, sem gefur grein þessari sérstakt
gildi, er, að í henni er einungis rætt um
þá starfsemi, sem á sér stað, eftir að mat-
vælunum hefur verið pakkað inn til fryst-
ingar og þar til þau koma fullunnin í kæli-
næm fyrir fitu, olíu, lút, sýru, salti o.
fl. og þolir hita allt að 80°C. Húð
þessi getur einnig varið vörur hnjaski.
Hægt er að þekja flest efni plasthúð
þessari, svo sem málma, gler, tré,
vefnað o. fl. Plastefnið myndar yfir-
leitt óslitna húð yfir hluti, en þegar
um óreglulegt yfirborð er að ræða og
hluti með djúpum skorum, er bezt að
vefja þá bómullargrisju og úða síðan
plastupplausninni yfir hana.
Til eru ýmsar gerðir plasthúða,
bæði gagnsærra og mattra, sem ætl-
aðar eru til margvíslegra nota, allt
frá umbúðum um þungavélar til pökk-
unar á skrúfum og róm. Þegar hin
gagnsæja húð er notuð, má sjá vöru-
merki og aðrar áletranir í gegnum
húðina, og er þá ekki þörf á að
merkja varninginn nánar. Plasthúðin
er nú notuð m. a. til innpökkunar
bifreiðum, rafhreyflum, alls kyns
hreinlætistækjum, svo sem baðkerum
o. fl. Þegar slíkir hlutir eru plasthúð-
aðir, er unnt að afgreiða þá án frek-
ari umbúða og jafnvel að hlaða þeim
upp til geymslu undir berum himni
um óákveðinn tíma, án þess að hætta
sé á, að þeir ryðgi eða skemmist á
annan hátt.
Þegar húðinni er að lokum flett af
þeim, eru þeir eins og þeir voru í upp-
hafi, og ekkert sér á málningu. Vegna
teygjanleika plastefnisins liggur húð-
in þétt að hlutnum, jafnvel þótt hann
sé teygður eða sveigður.
Anon, jan. 1955. Mynd birt meS
leyfi framleiffanda, Jenson & Nic-
holson Ltd., Stratford, London. —
EPA Technical Digests, 1. árg., nr.
2, 1955.
L. L.
geymslumar. Er því nákvæmlega sama,
hvort rætt er um hraðfrystingu á baunum
eða fiskflökum.
Einnig á þessi grein erindi til annarra
iðngreina, þar sem hún lýsir þýðingu þess,
sem það getur haft fyrir fyrirtækin að fylgj-
ast nákvæmlega með vinnulagi og tíma.
Geta slíkar athuganir oft leitt til hagnaðar
hæði fyrir vinnuveitendur og starfsfólkið,
og má segja, að í þessum sameiginlega
hagnaði felist hinn raunvendegi árangur
aukinnar framleiðni.
L. L.
Timburþurrkun.
Framh. af 9. bls.
mjög háður þykkt og tegund viðar-
ins. Einnig fer hann að nokkru eftir
því, hve mikið rakainnihald viðarins
er í upphafi þurrkunar og hve mikið
það á að vera að lokinni þurrkun. í
því sambandi má geta þess, að raka-
innihald viðar, sem notaður er í hús-
gögn og annað innanhúss, er yfirleitt
um 10—15%. Þá má og flýta fyrir
þurrkun með því að hækka hitastig-
ið, t. d. upp í 65—90°C, en við það
eykst hættan á vindingi á viðnum. Að
öðru jöfnu tekur þurrkun í þessum
klefum frá nokkrum dögum upp í
tvær vikur.
í timburþurrkunarklefum eru oft
höfð tæki, er rita niður jafnóðum
hita- og rakastig loftsins í klefunum.
Er það til mikils hægðarauka að geta
þannig fylgzt með öllum hita- og
rakastigsbreytingum, sem þar eiga sér
stað. Þá eru einnig oft notuð tæki,
sem stjórna bæði hita- og rakastigi
loftsins í klefunum. Tæki þessi
tryggja mjög góða þurrkun, þar sem
alltaf má búast við einhverjum sveifl-
um á hita- og rakastigi, þegar því er
stjórnað af mannahöndum. Auk þess
spara tæki þessi mikla fyrirhöfn og
margar vinnustundir.
IMSÍ hefur tekizt að afla sér nokk-
urra bóka og bæklinga um þetta efni.
Geymir stofnunin þær í hinu nýj'a
tæknibókasafni sínu, og getur hver
sá, er safnið sækir, fengið afnot af
þeim ritum.
Að lokum má geta þess, að hér á
landi hafa nýlega verið teknir í notk-
un fáeinir litlir timburþurrkunarklef-
ar. Hefur IMSÍ gert teikningu að ein-
um þessara klefa fyrir trésmíðaverk-
stæði úti á landi. Klefinn, sem hitað-
ur er með hveravatni, hefur þegar
verið tekinn í notkun og gefið góða
raun.
---------------------------\
Útbreiðið
IÐNAÐARMÁL
v___________________________y
18
IÐNAÐARMÁL