Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 31
DAGBÓK I N
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 31
fáfróður eða
heimskur
um Kaup-
þing, grein-
andi Saxo,
sem heldur
því fram að
Kaupþing
og hinir
íslensku
bankarnir
séu að verða gjaldþrota,“ sagði
Sigurður.
Fram kom m.a. í Markaði
Fréttablaðsins að Kaupþing
væri einn af fjármögnunarað-
ilum Saxo.
Sigurður sagði ennfremur
við Markaðinn að viðkomandi
greiningaraðili vissi ekkert um
efnahag Íslands fyrst hann líkti
honum við efnahag Simbabve
þar sem 80 prósent þjóðar-
innar býr við fátækt.
„Það eitt ætti að segja
blaðamönnum að athuga heim-
ildir sínar betur, það tekur jú
ekki nema mínútu að ganga
úr skugga um að þetta sé
þvæla,“ sagði Sigurður.
22. febrúar
Jónkarl
tilAndraMás
Sagt var frá því að Jón Karl
Ólafsson, fyrrverandi forstjóri
Icelandair, hefði verið ráðinn
forstjóri Jetx/Primera Air sem
ferðaþjónustufyrirtækið Primera
Travel Group rekur. Primera
rekur meðal annars Heimsferðir
og Terranova hér á landi. Andri
Már Ingólfsson, sem Frjáls
verslun útnefndi sem mann árs-
ina á síðasta ári, er aðaleigandi
Jetx og á 80% í félaginu.
Jón Karl tekur jafnframt
sæti í framkvæmdastjórn Pri-
mera Travel Group og verður
einn af lykilmönnum í stjórn-
endateymi félagsins.
Ingimar Ingimarsson, sem
verið hefur forstjóri Jetx/Pri-
mera Air, tekur sæti stjórnarfor-
manns í félaginu.
Flugfélagið er með sex flug-
vélar í rekstri og stefnir að því
að reka 10-12 vélar á næsta
ári.
21. febrúar
„HeppnihjáFons“
„Þetta var heppni og reynsla,“
sagði Pálmi Haraldsson við Frétta-
blaðið um hagnað Fons í fyrra sem
var um 5 milljarðar króna. Rekstrar-
hagnaður var um sjö milljarðar
króna og námu heildareignir
félagsins 100 milljörðum
í árslok.
Pálmi sagði að Fons
hefði selt stórar eignir
á vordögum í fyrra,
sem hefði verið hárrétt
ákvörðun áður en lausa-
fjárkreppan og óróleiki
á alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum setti mark
sitt á flest fyrirtæki.
„Við komum ágæt-
lega út miðað við
aðra. Þetta var
heppni en maður
þarf að fylgjast vel
með,“ sagði Pálmi.
Pálmi Haraldsson;
orðheppinn að vanda.
21. febrúar
Baldurhættirhjáeimskip
Fréttin um að Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips,
hefði ákveðið að láta af störfum kom nokkuð á
óvart en mikil sigling hefur verið á félaginu undir
hans stjórn á undanförnum árum og velta þess
tífaldast í forstjóratíð hans. Baldur hætti sama
dag og tilkynnt var um breytingarnar.
Stefán Ágúst Magnússon, sem verið hefur
aðstoðarforstjóri félagsins undanfarin ár, mun
sinna starfi forstjóra þar til annað verður tilkynnt.
Í tilkynningu sagði Baldur um hin auknu umsvif:
„Þegar ég hóf störf hjá Eimskip setti félagið sér
skýr markmið, þ.e. að verða leiðandi flutningsaðili
í Evrópu og að verða leiðandi aðili í geymslu á hita-
stýrðum afurðum á alþjóðavísu.“
Áætluð velta Eimskipafélagsins á árinu 2008
verður tæplega 190 milljarðar króna eða 1.900
milljónir evra.Magnús Þorsteinsson; hætti sem stjórnarformaður skömmu fyrir áramót.
Baldur Guðnason er nú hættur sem forstjóri.
Sigurður Einars
son var ekki að
skafa utan af því.