Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 43
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 43
og yfirleitt þá einnig með aðkeyptri aðstoð þeirra
sérfræðinga sem best passi að verkefninu. Innan
fyrirtækisins er rík krafa um að skýrslur liggi fyrir áður
en fjárfesting sé gerð enda skapi það góðan grunn fyrir
frekari aðkomu að rekstri.
Hvaðan kemur nafn fyrirtækisins?
„Menn veltu nafni félagsins mikið fyrir sér þegar verið
var að stofna fyrirtækið en Matthías fékk hugljómunina
að nafninu í göngutúr meðfram strandlengjunni á
Seltjarnarnesi þar sem hann gekk veðurbarinn og horfði
á sjóinn lemja varnargarðinn. Salt stendur yfirleitt fyrir
jákvæðar tengingar eins og salt jarðar og að hafa saltið í
sér, í merkingunni að það sé ákveðinn töggur í manni,“
segir Árni.
Tækifæri í Brasilíu
„Eins og stendur á fasteignamarkaðinum er bjartasta
vonin í Brasilíu, þ.e. þegar kemur að landakaupum
og þróunarverkefnum. Þar er nú gífurlega mikill
uppgangur og alþjóðlegir bankar sýna landinu mikinn
áhuga. Fyrirtækið hefur nú fengið byggingarleyfi á
370 hektara landi í Natal, í norðvestur hluta landsins,
en þangað er ekki nema rúmlega sjö tíma flug frá
London og framkvæmdir að hefjast þar á byggingu
stærsta flugvallar í SAmeríku. Auk þess er verið að
kaupa 500 hektara af nálægu landi til viðbótar. Það
gildir um fasteignaverkefni og þróun lands frá grunni
að þar til leyfið fæst er þetta nánast moldarbingur, því
verðið í verðmatsskýrslum miðast við að verkefnið
verði að veruleika, og þar ræður leyfið mestu,“ segir
Árni. Þess vegna er svo mikilvægt að vera kominn
með byggingarleyfið í Brasilíu, en við tökum þátt í
fleiri spennandi fasteignaverkefnum og þá sérstaklega
í Rúmeníu.
Að öðru leyti segir hann allan gang vera á stærð
fyrirtækjanna sem fjárfest sé í, til að mynda hafi Salt
Investments fjárfest annars vegar í Grænum kosti
f j á r m á l
Starfsmenn Salt Investments í nýju húsakynnunum, efstu skrifstofuhæðinni í Turninum við Smáratorg.