Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 47
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 47
Við erum einnig með mjög vinsæla stólalínu sem kallast Catifa og
er frá ítalska fyrirtækinu Arper. Catifa stólan er hægt að aðlaga með
ótal möguleikum í litum, áferðum, stærðum og gerðum. Henta þeir
því bæði í fyrirtæki og heimili.“
Aukning hefur verið hjá Módern að
selja fyrirtækjum og skrifstofum vörur:
„Fyrirtækjamenning hefur breyst
mikið síðustu ár. Í dag er vinsælt að
skrifstofur séu heimilislegri og bjóði
uppá þægilegt og róandi andrúmsloft
og höfum við gott úrval vara sem
einmitt hæfa vel fyrirtækjum sem
setja metnað í að umhverfið sé sem
þægilegast.“
Fjölbreyttir möguleikar
Módern fylgir öllum vörum eftir og sér um uppsetningu, hvort
sem það er sjónvarpsskápar, sófasett eða borðstofuhúsgögn og er
uppsetning innifalin í verðinu: „Það skiptir máli fyrir okkur að
vörurnar sem við erum með séu ekki eingöngu flottar, heldur einnig
að nýting og ending sé góð. Allir hlutir sem við erum með eru
harðgerir og þola mikið álag.“
Úlfar leggur áherslu á að viðskiptavinur sem kemur til þeirra hafi
mikla möguleika á vali: „Það er ekki þannig að þegar komið er í
verslunina að sófinn sem þú sérð er aðeins til í þessum einum lit eða
úr einu efni. Hægt er að velja um mismunandi stærðir, liti og efni í
nánast öllum okkar vörum og leggjum við mikla áherslu á þjónustu
og að viðskiptavinurinn geri sér grein fyrir öllum þeim möguleikum
sem hann hefur kost á.
Hvað varðar verslunina þá leggjum við áherslu á að hún sé hlýleg og
að stillt sé upp heildarlausnum heldur en að vera með allt sitt á hvað
þannig að rýmið í versluninni verður eins og á glæsilegu heimili og
fólk getur skoðað hjá okkur gluggann á kvöldin en gluggar meðfram
allri hliðinni tryggja að fólk getur skoðað
skemmtilega kvöldstemningu í stofum
okkar “
Opnir fyrir nýjungum
Módern er með fáa en góða byrgja en
Úlfar segir fyrirtækið vera samt opið fyrir
nýjungum: „Ef við finnum ný fyrirtæki
sem passa við það sem við erum að
einblína á skoðum við alltaf þá möguleika
og erum því oft með nýjar vörur sem ekki
hafa sést hér á landi áður. En við snúum ekki bakinu við því sem er
undirstaðan hjá okkur og hefur virkað vel.“
Hvað varðar staðsetningu verslunarinnar í Hlíðasmáranum þá telur
Úlfar hana mjög góða. „Hér er allt að gerast í verslun, uppbygging
mikil og hjá okkur á aðeins eftir að vera meiri traffík í framtíðinni
og erum við tilbúnir að mæta aukninginn. Hér viljum við vera og
ætlum okkur stóra hluti um leið og við höldum áfram að gera það
sem við gerum vel og hafa þjónustu við viðskiptavini okkar alltaf í
hæsta gæðaflokki.“
Við leggjum áherslu á að
hönnunin sé klassísk og
tímalaus en það skiptir máli
fyrir okkur að vörurnar sem við
erum með séu ekki eingöngu
flott hönnun heldur einnig að
nýting og ending sé góð.
Úlfar Finsen, framkvæmdastjóri Módern.