Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 54
54 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
ganga svo langt að tala um byltingu í því samhengi. Fólk mun geta
notað GSM símann á ótrúlegustu stöðum og verður framvegis ekki
háð frumstæðum NMT símtækjum eða gervihnattasímum. Það
hleður einfaldlega GSM símann sinn áður en farið er á fjöll eða út á
sjó. Ótal margir sveitabæir munu komast í GSM samband, þar sem
það hefur ekki áður verið, og við höfum nú þegar fengið frábær
viðbrögð við þessu verkefni,“ segir Hrannar en rifja má upp að á
dögunum opnaði samgönguráðherra formlega nýjan sendi Vodafones
á Bláfelli sem þjóna mun sunnanverðum Kjalvegi. Hrannar segir að
stefnt sé að því að koma upp sendi, sem þjóna mun hluta
Sprengisandsleiðar, fyrir páska. Þá sé þétting svæða á sunnanverðu
Snæfellsnesi og á Vestfjörðum á dagskrá á næstu vikum svo dæmi séu
nefnd. Að sögn Hrannars hefur uppbygging fyrirtækisins á sendum
fyrir miðin og hálendið reyndar skilað þeim árangri að skrifað hefur
verið undir samning þess efnis að Vodafone veiti Neyðarlínunni heil
darfjarskiptaþjónustu næstu þrjú árin. Var samningurinn hand
salaður á hálendi Íslands, samhliða því að samgönguráðherra opnaði
fyrir GSM þjónustu Vodafone á Kili.
„Við metum þennan samning mikils. Fyrst Neyðarlínan og Lands
björg treysta okkur til að sjá um GSM þjónustu fyrir sig, þá ættu
almennir notendur að geta gert slíkt hið sama,“ segir Hrannar.
Þjónusta utan landsins
Að sögn Lindu Bjarkar hefur Síminn unnið markvisst að því að auka
þjónustuna við íslenska ferðamenn erlendis og eru reikisamningar
Símans í dag orðnir alls 412 talsins í samtals 153 löndum. Að hennar
sögn eru það aðeins örfá farsímafélög í heiminum sem gert hafa fleiri
reikisamninga en Síminn.
„Sérstaða Símans felst einnig í því að Síminn getur boðið viðskipta
vinum sínum á fyrirtækjamarkaði upp á gervihnattasamband fyrir tal
og gögn á þeim svæðum sem torvelt hefur verið að treysta á auðvelt
og öruggt aðgengi að fjarskiptaþjónustu. Nefna má ýmis Afríkuríki í
því sambandi. Síminn þjónar einnig íslenska fiskiskipaflotanum með
öfluga netþjónustu en á síðasta ári var byrjað að tengja skip inn á
gervihnattasamband sem veldur því að skipverjar geta nú tengst
netinu þegar þeir eru á sjó. Gott netsamband auðveldar sjómönnum
að hafa regluleg samskipti við vini og fjölskyldu á meðan þeir eru
fjarri heimili sínu auk þess sem öll upplýsingamiðlun og afþreying
hverskonar verður fjölbreyttari fyrir áhöfnina,“ segir Linda Björk og
bætir við að þessi áhersla Símans á uppbyggingu og þjónustu við
viðskiptavini sína hafi skilaði sér í því að Síminn hafi hlotið hæstu
einkunn farsímafyrirtækja síðla árs 2007 í mælingu Íslensku
ánægjuvogarinnar. Samkvæmt því séu viðskiptavinir Símans
ánægðustu viðskiptavinirnir á farsímamarkaði á Íslandi.
Vodafone sinnir einnig þörfum viðskiptavina sinna erlendis og
nýtur við það liðsinnis Vodafone Group, eins stærsta og öflugasta
farsímafyrirtækis heims, en með því samstarfi er viðskiptavinum
Vodafone tryggð örugg fjarskiptaþjónusta um allan heim á hagstæðum
kjörum.
Samkvæmt upplýsingum Liv Bergþórsdóttur, framkvæmdastjóra
Nova, gerði fyrirtækið samstarfssamning um GSM þjónustu fyrir
viðskiptavini sína erlendis við ítalska farsímafyrirtækið TIM í
desember sl. og gildir hann um allan heim.
3G farsímavæðingin
Í ágústmánuði sl. urðu þau tímamót í íslenskri fjarskiptasögu að
Síminn opnaði fyrir aðgang að svokallaðri 3G farsímaþjónustu, fyrst
íslenskra fjarskiptafyrirtækja. Í fyrstu takmarkaðist þjónustan við
höfuðborgarsvæðið en fljótlega bættist flugstöð Leifs Eiríkssonar við og
í desember var viðskiptavinum Símans á Akureyri einnig boðið inn á
3G svæðið.
Áður en lengra er haldið er rétt að útskýra fyrir hvað 3G stendur.
Með þessu er átt við svokallaða þriðju kynslóð farsíma, 3G stendur
fyrir enska hugtakið ,,Third Generation“. Hið hefðbundna GSM
símkerfi er af annarri kynslóð farsímavæðingarinnar. Með 3G kerfinu
eru notendur alltaf í þráðlausu háhraðanetsambandi, þ.e.a.s. á meðan
þeir eru innan svæðis. Nettengingin er í símanum sjálfum og notendur
eru því ekki háðir þráðlausu neti á heimili, í vinnu eða á kaffihúsum
eða annars staðar þar sem hægt er að tengjast netinu. Á heimasíðu
Nova kemur fram að hraði og flutningsgeta er það sem greinir 3G frá
GSM. Til viðbótar við það að geta hringt og sent SMS geta notendur
nú komist í háhraðanetsamband þar sem þessi þjónusta er á annað
borð í boði. Flutningsgeta í 3G kerfi er mun meiri en í GSM kerfum
þannig að notendur 3G eiga kost á að hringja myndsímtöl, sækja sér
Linda Björk Waage, forstöðumaður samskiptasviðs Símans.
„Háhraða gagnaflutningur í gegnum
síma eða fartölvur nánast hvar sem er á
landinu mun ýta undir frelsi til athafna og
samskipta hjá þeim sem búa í afskekktari
byggðalögum landsins.“
(Linda Björk Waage, forstöðumaður
samskiptasviðs Símans)