Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 61
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 61
Magnús Guðmundsson, er einn af fyrstu flugmönnum landsins og er
með skírteini númer níu. Guðmundur, móðurbróðir minn, er starfandi
flugstjóri hjá Icelandair. Ég ólst upp í kringum hann og afa svo ég vildi
feta í þeirra fótspor. Ef afi og Guðmundur hefðu verið smiðir þá er
eins víst að ég hefði líka viljað vera smiður eins og þeir,“ segir Magnús
brosandi.
Tekur flugið
Magnús segir störf að fjárfestingum og fyrirtækjarekstri fjölbreytt,
spennandi og skemmtileg. „Á þeim vettvangi hittir maður margt fólk
og reynir að sjá fram í tímann.“
Hann segist hafa ánægju af viðskiptunum og að markmiðið sé ekki
einvörðungu að hagnast. „Ég vil bara hafa það gott eins og allir aðrir
og það þarf engar yfirdrifnar upphæðir til þess að ég sé ánægður. Hins
vegar vill maður sjá verkefni sín ganga vel og sem betur fer stefnir fyrir
tæki okkar í þá átt. Kerfisþróun er rótgróið og byggir á gömlum merg,
en er samt á sífelldri uppleið. Það verða alltaf breytingar með nýjum
stjórnendum, fyrirtækið er að stækka og umsvifin að aukast. Ekkert
fyrirtæki má heldur við því að standa í stað og því höldum við áfram
að þróa kerfið okkar í Kerfisþróun.“
Nýja útgáfan af Stólpa árið 2008 fær góðar viðtökur að sögn
Magnúsar. „Uppsetningin er einföld og kerfið virkar eins og best verður
á kosið. Mikilvægt er að forrit séu þægileg í notkun, auðskilin og í
það leggjum við okkar metnað að viðskiptavinir búi við góða þjónustu
og gott kerfi. Það er að sjálfsögðu grunnurinn að vexti og velgengni
í framtíðinni.“
Magnús Antonsson, flugstjóri og heimspekingur,
og annar tveggja eigenda Kerfisþróunar.
m e N N t u N