Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 68
68 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
Í viðskiptaheiminum er fátt mikilvægara en þegar viðskiptahugmyndir annars vegar og fjármagn hins vegar finna sameiginlegan farveg. Hið sameigin-
lega leiðarljós er oft frumkvæði, nýsköpun og
árangur. Það er hins vegar ekki alltaf auðvelt
að leiða þessa tvo krafta saman.
Frumkvöðlar sem hafa byggt upp þróað
fyrirtæki á ákveðinni viðskiptahugmynd og
fjárfestar sem hafa reynslu af því að nýta og
ávaxta fjármagn þurfa vettvang til þess að
finna hvort flötur sé á samstarfi með það
markmið að byggja upp öflugt og árangurs-
ríkt fyrirtæki.
Tvisvar á ári er haldin ráðstefna undir heit-
inu Seed Forum Iceland. Þetta er vettvangur
fyrir frumkvöðla og fjárfesta til þess að hittast
og meta hvort þeir geta hjálpað hvor öðrum.
Um 6-8 fyrirtæki, bæði innlend og erlend,
halda kynningu á starfsemi sinni og leggja
fram óskir um fjárfestingu. Þau fjalla jafn-
framt um hvernig á að nota fjármagnið og
útleið fjárfesta, þ.e. hvernig fjárfestar geta
fengið fjármagnið til baka með verulegri
ávöxtun eftir tiltekinn tíma.
Styrkur ráðstefnunnar felst hins vegar
í möguleikum frumkvöðla og fjárfesta að
tala saman í kjölfar kynninganna í afslöpp-
uðu umhverfi, sem Kaupþing, norska sendi-
ráðið, breska sendiráðið og Reykjavíkurborg
aðstoða að þessu sinni við að skapa á þremur
stöðum yfir daginn - í höfuðstöðvum Kaup-
þings, í breska sendiráðinu og í Höfða. Það
hefur sýnt sig að þetta form hefur verið
heilladrjúgt til að skapa viðskiptasambönd
sem hafa skapað og þróað nokkur af áhuga-
verðustu fyrirtækjum landsins.
Seed Forum Iceland er jafnframt meira
en vettvangur til að skapa viðskiptasambönd,
það er vettvangur þar sem fræjum stefnu-
mótunar varðandi frumkvæði og framfarir
atvinnulífsins og hins opinbera gagnvart
nýjum og vaxandi fyrirtækum og nýsköpun
er sáð.
Að þessu sinni mun Össur Skarphéðins-
son fjalla um mikilvægi fjárfestinga í nýjum
og vaxandi fyrirtækjum.
s P r O t A F Y r I r t Æ K I
texti: páll bjarnason myndir: ýmsir
Stefnumót fjárfesta og frumkvöðla
Ást við fyrstu sýn?
Tvisvar á ári er haldin ráðstefna undir heitinu Seed Forum Iceland. Þetta er
vettvangur fyrir frumkvöðla og fjárfesta til þess að hittast og meta hvort þeir geta
hjálpað hvor öðrum. Seed Forum Iceland verður haldið 4. apríl næstkomandi.
Ástin blómstrar.
Seed Forum Iceland
er stefnumót fjárfesta
og frumkvöðla.