Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 69
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 69
s P r O t A F Y r I r t Æ K I
Reynir A. Guðlaugsson: „Áherslan verður á fjárfestingar í olíusamningum og gjaldeyri.“
Hersir Invest er nýstofnað íslenskt fyrirtæki
á sviði viðskipta með hrávörur og gjaldeyri.
Fyrirtækið mun bjóða upp á sérhæfða sjóði
á þessu sviði fyrir fagfjárfesta og fjármála-
fyrirtæki.
Reynir A. Guðlaugsson hjá Hersi Invest
segir að í upphafi verði lögð áhersla á fjár-
festingar í olíusamningum og gjaldeyri, en
stofnendur fyrirtækisins hafa langa reynslu og
víðtæka þekkingu á viðskiptum með olíu.
,,Eins og sakir standa er trú fjárfesta á
hlutabréfamörkuðum takmörkuð og gefur sú
staðreynd fyrirtæki eins og okkar gott tæki-
færi til að kynna sjóði og fjárfestingar í hrá-
vörum, eins og olíu og tengdum afurðum.
Við leggjum áherslu á að markmið fyrir-
tækisins sé að lágmarka fjárhagslega áhættu
viðskiptavina sinna og hámarka arðsemi
þeirra - með tilliti til áhættu. Það er gert með
notkun áhættu- og tæknigreiningarkerfa sem
Hersi Invest stendur til boða í samvinnu við
sænskt tæknigreiningarfyrirtæki sem er með
langa reynslu á þessu sviði. Þeirra tæknigrein-
ing hefur verið notuð með góðum árangri
síðustu misserum,“ segir Reynir.
„Einnig munu viðskiptavinir fyrirtækisins
geta valið milli sérhæfðra fjárfestingakosta á
hrávörumarkaði þar sem hver viðskiptavinur
getur valið mismunandi leiðir með hliðsjón
af sínum sérsniðna áhættugrunni.“
Hersir Invest
Hersir Invest er nýstofnað sprotafyrirtæki sem sérhæfir
sig í að fjárfesta í hrávörum og gjaldeyri.
Tveir sprotar
Fyrirtækin Hersir Invest og Technologies
verða kynnt á Seed Forum Iceland
ráðstefnunni hinn 4. apríl næstkomandi. Þau
verða þar á meðal um 8 fyrirtækja, innlendra
sem erlendra, sem kynna starfsemi sína og
leggja fram óskir
um fjárfestingu.
Texti: Hrund Hauksdóttir.
Myndir: Geir Ólafsson.
Ráðstefnan Seed Forum Iceland
er stefnumót frumkvöðla og fjárfesta.
Hún verður haldin 4. apríl næstkom
andi í höfuðstöðvum Kaupþings, í
breska sendiráðinu og í Höfða. Ást við
fyrstu sýn? Kannski. Árangurinn af
þessum stefnumótum hefur
verið góður.