Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 77
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 7778 F R J Á L S V E R S L U N 79
Hvað berð þú á borð
fyrir þig og þína eftir
langan vinnudag?
Allt hefur sinn stað og sína stund. Það á að vera jafn sjálfsagt að skila góðum vinnudegi og að njóta
ánægjulegra samverustunda með þeim sem standa þér næst. Oft er gott að skilja vinnuna eftir þar
sem hún á heima – í vinnunni.
Þú hefur val. Njótum tímans utan vinnu af heilum hug.
Virðing
Réttlæti
Auglýsingastofan Jónsson og le´macks hlaut verðlaun fyrir 8 flokka af 14 flokkum og er það frábær
árangur. Stofan kom, sá og sigraði. Aðrar stofur sem komust á verðlaunapall voru Ennemm (tvo lúðra),
Hvíta húsið (tvo lúðra) og Fíton (tvo lúðra).
Bestu og athyglisverðustu auglýsingar ársins 2007 voru valdar á árlegri hátíð auglýsingastofa og markaðs fólks á dögunum. Verðlaun voru afhent í 14 flokkum á hátíðinni og hlaut auglýsingastofan unga, Jónsson og Le’macks, verðlaunagripinn, lúðurinn, í 8 flokkum, meðal annars fyrir bestu auglýsingaherferð, bestu
útvarps auglýsingar og bestu tímaritaauglýsingar. Að þessu sinni voru
70 auglýsingar tilnefndar og innsendingar fyrir tilnefningar um 630
talsins. Auglýsingastofan Ennemm hreppti tvo lúðra í flokkunum
dagblaðaauglýsingar og sjónvarpsauglýsingar fyrir umtöluðustu auglý s-
ingu síðasta árs, Síðustu kvöldmáltíðina, fyrir Símann.
Hvíta húsið hreppti tvo lúðra, annars vegar fyrir Reykjavíkur-
maraþon Glitnis sem var áberandi sem aldrei fyrr og valið viðburður
ársins 2007, og hins vegar fyrir merki Bjarka Lúðvíkssonar fyrir
Samtökin 78 sem vann í flokki vöru- og firmamerkja.
Fíton fékk lúðra í flokknum almannaheillaauglýsingar/ljós vaka-
miðlar fyrir sjónvarpsauglýsinguna Hvíldartími sem gerð var fyrir VR
og einnig í flokknum almannaheillaauglýsingar/prentmiðlar fyrir
Dapurleg eftirmæli sem jafnframt var gerð fyrir VR.
Þess má geta að samkvæmt árlegri könnun Capacent fyrir Ímark
meðal markaðsfólks í stærstu fyrirtækjum landsins, þar sem spurt er
hvaða 2-3 auglýsingastofur séu í fararbroddi hér, nefndu 54%
Ennemm, 41% Hvíta húsið og 30% Fíton. Einnig nefndu 19%
Jónsson og Le’ macks, sem stofnuð var fyrir fimm árum.
Gríðarleg áhætta
Óhætt er að segja að Síðasta kvöldmáltíðin, auglýsing fyrir 3G þjónustu
Símans, hafi verið umtalaðasta og umdeildasta auglýsing ársins 2007.
Aðalhugmyndasmiðurinn, Jón Gnarr, var meðal annars í viðtali í
Kastljósi ásamt séra Halldóri Reynissyni, verkefnisstjóra fræðsludeildar
Biskupsstofu, til þess að ræða efni hennar skömmu eftir að auglý singin
fór í loftið í ágúst síðastliðnum, en þá hafði skapast mikil umræða í
samfélaginu. Þá gekk Jón Gnarr á fund biskups á meðan auglýsingin var
í vinnslu til þess að leita viðbragða.
Sveinn Líndal Jóhannsson, markaðsráðgjafi hjá Ennemm, segir það
hafa verið augljóst í upphafi að gera yrði stóra hluti til þess að auglýsa
glænýja og byltingarkennda þjónustu, eins og hann tekur til orða. „Vissu-
lega vorum við pínulítið smeykir þegar átti að sýna viðskiptavininum
auglýsinguna í fyrsta sinn, en hann keypti hugmyndina. Lokaorð auglý s-
ingarinnar eru líka þau að 3G breyti gangi sögunnar, og það hafði sitt
að segja,“ segir hann.
Ákveðið var að framleiða Síðustu kvöldmáltíðina erlendis til þess
að gera hana trúverðugri og jafnframt að hafa Júdas kómískan, sem tókst
í meðförum Jóns Gnarr. „Á 15 ára ferli hef ég aldrei fengið önnur eins
viðbrögð við nokkurri auglýsingu. Ég myndi segja að 80% hafi verið
jákvæð, einhver hluti fólks hafi verið á báðum áttum og einungis brota-
brot neikvætt. En því er ekki að neita, að við tókum gríðarlegan séns,“
segir Sveinn.
Sveinn Líndal Jóhannsson, markaðsráðgjafi hjá Ennemm.
texti: Helga Kristín einarsdóttir