Frjáls verslun - 01.02.2008, Page 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
Frá fátækt til fjármála
Það eru breyttir tímar. Á stríðsárunum var Borgartúnshverfið
fátækrahverfi og þekkt fyrir braggablús og Höfðaborgina. Núna er
það ríkasta hverfi landsins – miðstöð fjármála og viðskipta á Íslandi.
Hvergi er á „einum bletti“ að finna fyrirtæki sem velta eins miklu og
eru með jafnmikið eigið fé.
Það fer vel á því að Hagstofan, KPMG og Ernst & Young séu í
hverfinu. Hagstofan heldur utan um alla tölfræði og hagstærðir í landinu
og KPMG og Ernst & Young stilla upp margri milljarðaársskýrslunni.
Fjármagnið flæðir um hverfið.
Borgartúnið iðar af bílaumferð. Það er af sem áður var þegar þetta
var róleg gata. Mörgum finnst sem umferðarþunginn í götunni sé allt
of mikill og hafa á orði að gatan sé „sprungin“. Þá finnst mörgum sem
borgaryfirvöld hafi ekki skipulagt hverfið nægilega vel og að hverfið sé
ein stór naglasúpa hvað arkitektúr snertir.
Margar nýbyggingar
Margar nýbyggingar hafa risið við Borgartún á síðustu árum.
Nefna má hús Kaupþings, Straums, KPMG, Nýherja, Hótel Cabin,
Hús atvinnulífsins, Höfðaborg, hús Útlendingaeftirlitsins og þá er
Hagstofan í nýuppgerðu húsi. Vegagerðin hefur verið við Borgartún 5
til 7 í áratugi. Þá hefur magnað og áberandi háhýsi risið við Borgartún
26 þar sem 10-11 og Samkeppniseftirlitið eru til húsa.
Þetta er skemmtilegt. Wall Street á Íslandi – og við blasir fagur
fjallahringur Esjunnar og sundin blá. Auðlindirnar blasa alls staðar
við í Borgartúnshverfinu.
VELTA ÞEIRRA STÆRSTU
skv. 300 stærstu v. árins 2006
KAUpÞINg BANKI 306
gLITNIR 155
IcELANdIc gROUp 129
STRAUmUR 65
*milljarðar króna
Höfðaborgin
Það var einmitt nafnið á fátækrahverfinu í gamla daga.
Nýjasti risaklasi Reykjavíkur, háhýsi og herlegheit, Höfðatorgið
sjálft við Bogartún. Miðbær í miðri borg. Höfðatorg afmarkast af
Borgartúni, Skúlatúni, Skúlagötu og Höfðatúni.
Kauphöllin er við Laugaveg 142 og heldur utan um
Borgartúnshverfið. Auðvitað. Þetta er fjármálahverfi landsins.