Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 85
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8 85
Hvernig getum við nýtt okkur gríðarlega góða ímynd NASDAQ fyrir
íslenska markaðinn - þ.e. sérstaklega með tilliti til núverandi stöðu?
„Öll okkar vinna og framtíðarsýn hefur haft það að markmiði
að finna leiðir til þess að þjóna markaðnum sem best og styðja við
góða ímynd hans á alþjóðlegum grundvelli. Megintemað í vinnu
okkar undanfarin ár hefur verið alþjóðavæðing markaðarins og
einföldun og aðlögun hans að því sem best gerist annars staðar.
Sameiningin við NASDAQ er risaskref í þessa átt. Ég tel að sú
staðreynd að við séum orðin að NASDAQ kauphöll komi til með
að styrkja ímynd og trúverðugleika skráðra fyrirtækja hér á landi.
Þegar við tókum þá ákvörðun á árinu 2006 að ganga inn í
OMX þá sáum við fram á frekari kauphallasamruna og töldum
hyggilegt að koma snemma inn í samrunaferlið. Samruni við OMX
á sínum tíma var framkvæmdur á hárréttum tíma fyrir íslenska
markaðinn og hefur komið okkur á þann stað sem við erum í dag.
Staða okkar er augljóslega allt önnur nú en ef við hefðum ákveðið
að vera áfram ein á báti. Við erum í þeirri stöðu að geta stutt við
skráð félög og fjárfesta sem aldrei fyrr og byggt ofan á árangur
fyrri ára. NASDAQ fylgir trúverðugleiki sem er afskaplega mikil-
vægur, ekki síst við þær aðstæður sem nú ríkja.“
Nú hefur heildarvöxtur markaðsvirðis kauphalla OMX verið meiri en
hjá nokkurri af hinum sex stærstu kauphöllum Evrópu og dagleg velta
aukist úr 4 milljörðum í 5,3 milljarða evra. Gefur sú staðreynd ekki
tilefni til nokkurrar bjartsýni?
„OMX kauphallirnar hafa verið í mikilli sókn og árangur Kaup-
hallarinnar reyndar verið einstakur á heimsvísu. Til marks um
það hafa hlutabréfaviðskipti meira en tuttugufaldast á sex árum
og markaðsvirði skráðra félaga er nú með því mesta sem þekkist
að tiltölu við stærð þjóðarbúsins, eða um 160% af VLF. Við
núverandi markaðsástand hafa viðskipti minnkað líkt og gerðist
við svipaðar aðstæður árið 2001 en allar forsendur eru fyrir því að
þau aukist hratt á nýjan leik þegar árferði á markaði batnar.
Við erum stöðugt að skoða leiðir til þess að efla viðskipti á mark-
aði enn frekar og teljum að okkur muni verða töluvert ágengt í
þeim efnum næstu misseri. NASDAQ hefur verið leiðandi í raf-
rænum viðskiptum með hlutabréf og við getum m.a. sótt í smiðju
þess. Með hliðsjón af þeim aðstæðum sem ríkja á lánsfjármarkaði
og þeim möguleikum sem NASDAQ OMX býður upp á er líka
að mínu mati full ástæða fyrir félög sem þurfa að sækja sér fjár-
magn að skoða vandlega hvort skráning á markað gæti verið hag-
felldasta leiðin til þess.
Það er því engan bilbug að finna á okkur þrátt fyrir tímabundna
niðursveiflu á markaði. Þvert á móti þá færumst við sífellt í aukana.“
H
öfði er án efa eitt sögufrægasta og glæsilegasta
húsið í Reykjavík. Saga þess er sérstök og mörg
fyrirmennin hafa komið þangað.
Fjöldi franskra sjómanna veiddi við Íslands-
strendur um þrigga alda skeið. Ægir tók líf sumra
en talið er að um 400 skip hafi farist og um
4000 sjómenn drukknað. Upp úr 1900 var ráðinn franskur
ræðismaður, Brillouin að nafni, og það var hann sem sótti um
leyfi til byggingar húss sem var reist árið 1909. Húsið var Höfði.
Um er að ræða norskt „katalóghús“ í frönskum byggingarstíl
sem kallast júgendstíll. Ýmislegt innandyra, svo sem spjaldhurðir
og umbúnaður, er í stíl Lúðvíks 16. Nafn Brillouin er letrað yfir
dyrunum í stofuna og upphafsstafir franska ríkisins, RF
(République Francaise) eru yfir öðrum dyrum.
Brillouin hélt til Frakklands þegar fyrri heimsstyrjöldin skall á.
Einar Benediktsson, skáld og athafnamaður, keypti húsið árið
1914 og bjó þar til ársins 1917. páll Einarsson, hæstaréttar-
dómari og fyrsti borgarstjóri Reykjavíkur, bjó í Höfða og matthías
Einarsson yfirlæknir bjó þar frá 1924.
Höfði komst aftur í hendur útlendinga árið 1938 þegar breska
ríkið tók húsið á leigu en breska ríkið eignaðist það árið 1942.
miðstöð starfsemi Breta hér á landi í seinni heimsstyrjöldinni var
í húsinu. Fyrst var þar bústaður breska alræðismannsins og síðar
sendiherrans. Þess má geta að Sir Winston churchill, forsætis-
ráðherra Breta, heimsótti Höfða í ágúst 1941. á þessum árum
kom marlene dietrich líka í heimsókn. Sendiráð Breta flutti úr
Höfða árið 1951 og þeir voru ýmsir sem bjuggu í húsinu næstu árin.
Reykjavíkurborg festi kaup á Höfða árið 1958 og hefur húsið
verið móttökuhús borgarstjórnar frá 1968.
Höfði komst í heimsfréttirnar í október 1986 þegar þar var
haldinn leiðtogafundur Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, þeirra
Ronald Reagans og mikhail gorbatsjofs. Fundurinn markaði
upphafið að endalokum kalda stríðsins. Síðan þá hafa ýmsir
þjóðarleiðtogar heimsótt Höfða.
Þess má geta að sumir hafa haldið því fram að reimt sé í
þessu húsi. Hvort sem það er rétt eða ekki þá væri forvitnilegt ef
veggirnir gætu talað og upplýst fólk um merka viðburði sem hafa
átt sér stað í norska katalóghúsinu í júgendstílnum.
Ef veggirnir gætu talað
Höfði:
OMX sameinaðist nýlega hinni banda
rísku og vel þekktu NASDAQ kauphöll
og er því orðið NASDAQ OMX sem
eru sannarlega mikilvæg tímamót
fyrir íslenska markaðinn. Þórður Frið
jónsson, forstjóri, segir sameininguna
fela í sér margþætta kosti.