Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 88
88 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
K
yn
n
in
G
K
yn
n
in
G
Hjördís Ásberg, framkvæmdastjóri segir fleiri og fleiri fara í hollan lífsstíl.
maður lifandi
Maður lifandi er heilsuvöruverslun, matsölustaður og fræðslumiðstöð. Í heilsuvöruversluninni er boðið upp á mjög gott úrval af hollri og lífrænni matvöru, bætiefnum, snyrtivörum, hreinlætisvörum og öðrum heilsuvörum og í matsofunni er fjöl-
breytt úrval af tilbúnum heilsuréttum sem hægt er að borða á staðnum
eða taka með í vinnuna eða heim. Kynningar- og fræðslustarfsemin
fjallar um hollustu og betri líðan. Hjördís Ásberg er framkvæmdastjóri:
„Við opnuðum verslun og matsölustað í Borgartúninu árið 2004.
Hugmyndafræði okkar byggist á breytingum sem orðið hafa í sam-
félaginu og tengjast aukinni áherslu á bætta heilsu, aukinni tíðni lífstíls-
sjúkdóma og ofnæmis, lengri vinnutíma og álags og aukinni þörf fyrir
að geta matreitt fljótt og auðveldlega heilsusamlegan mat fyrir alla
fjölskylduna á sanngjörnu verði. Strax lögðum við áherslu á fræðslu-
starfið og hefur neðri hæðin í Borgartúninu nýst vel undir slíka starf-
semi. Þar eru haldin námskeið sem við sjáum sjálf um og fáum einnig
ýmsa aðila á heilsutengdu sviði, bæði varðandi matreiðslu og alls konar
lífsstílsmál. Við vorum mjög heppin með húsnæðið sem við völdum.
Strax var hægt að fara af stað með alla þætti starfseminnar og eru
þessi þrjú og hálft ár sem við höfum starfað verið mjög líflegur tími
á öllum okkar sviðum. Þegar við komum í Borgartúnið var ekki eins
mikið um að vera þar og nú er og gátum við valið um húsnæði. Við
völdum rétt og erum ákaflega ánægð með staðsetninguna og erum á
svæði sem er í mikilli uppbyggingu. Við erum með opið til kl. 20 á
virkum dögum og til kl. 17 á laugardögum og þá er mikið um að fólk
taki með sér heim.“
Góðar viðtökur
Maður lifandi fékk strax í upphafi góðar viðtökur: „Við þurftum að
stækka eldhúsið í Borgartúninu eftir nokkra mánuði og haustið 2005
opnuðum við Maður lifandi í Hæðasmára í Kópavoginum þar sem
við erum með enn stærra eldhús.“ Þegar kemur að vörunum sem Maður
lifandi er með þá segir Hjördís að fljótt hafi verið farið að flytja inn
eigin vörur bæði fyrir verslanirnar og ekki síst fyrir matsölustaðina:
„Þannig náðum við að geta boðið upp á að langmestu leyti lífrænt
hráefni, sem hefði verið útilokað nema með því að standa í innflutn-
ingnum sjálf.“
Maður lifandi hefur verið í miklum vexti og er ekki séð fyrir endann
á því: „Allt frá því við hófum starfsemina hefur hún auknist mikið og
um síðustu áramót urðu breytingar á rekstrinum þegar tvö fyrirtæki
Gefandi að starfa í jákvæðu umhverfi